Fréttablaðið - 07.12.2009, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
JÓLABASAR KLÚBBSINS GEYSIS verður haldinn
fimmtudaginn 10. desember í húsnæði klúbbsins að Skipholti
29. Til sölu verður fjölbreytt handverk og hannyrðir sem klúbb-
félagar hafa unnið að á síðastliðnu hausti. Basarinn stendur frá
16 til 18 og allur ágóði rennur til starfsemi klúbbsins.Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordis@365.is 512 5447
Karl á heima í Þingholtunum í Reykjavík og þegar hann er spurð-ur hvort hann eigi einhvern ein-stakan hlut sem hann hafi meiri mætur á en öðrum er hann fljót-ur til svars. „Já, reiðstígvélin hans afa.“ Þetta þarf hann að útskýranánar. „Afi var ekki óð
fóru þau á hestbak sér til gam-ans hjónin. Svo féll afi frá 1986 og amma gaf mér stígvélin fyrir svona fimmtán árum. Ég ber nafn afa og kannski hefur það átt sinn þátt í að mér áskotnuðust þalíka það ð
á haustin.“ Ekki hefur Karl þó stíg-vélin með sér vestur. „Þau eru númer 41 en ég er með talsvert stærri býfur en svo að ég komist íþau,“ segir ha h
Stígvélin hans afa aftur komin til síns heimaKarl Sigfússon verkfræðingur sinnir sínum rótum vel. Hann býr ásamt konu og börnum í húsi sem afi
hans og amma áttu í áratugi og eitt af því sem prýðir stofuna þar eru hin brúnu reiðstígvél afa hans.
„Þau eru númer 41 en ég er með talsvert stærri býfur en svo að ég komist í þau,“ segir Karl um reiðstígvélin hans afa síns, Karls
Magnússonar bifreiðarstjóra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Strandgötu 43 | Hafnarfirði | Sími 565 5454
Söluaðilar.: Járn og gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan - Búsáhöld
Kringlunni - Pottar og Prik Akureyri. www.weber.is
Frábært úrval af gjafavörum frá Weber
Könnur með dýrum og traktorum
MÁNUDAGUR
7. desember 2009 — 289. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Seljabraut
Tvíreykt sauðahangikjöt
ms.is
Gómsæt gjöf
fyrir sælkera
Kynni› ykkur úrvali›
af sælkeraostakörfum
á ms.is
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Fagmennska í fyrirrúmi
KARL SIGFÚSSON
Geymir reiðstígvél afa
síns í stofunni heima
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Útilokuð frá
samfélaginu
Kristín Björns-
dóttir rannsakaði
þátttöku þroska-
hamlaðra í
samfélaginu.
TÍMAMÓT 26
UMHVERFISMÁL Fimmtánda ráðstefna Sameinuðu
þjóðanna um loftslagsmál hefst í dag í Kaupmanna-
höfn. Bjartsýni á útkomu ráðstefnunnar hefur auk-
ist, en þó eru litlar líkur á að samkomulag náist um
lagalega bindandi niðurstöðu. Von manna stendur
frekar til að pólitísk samstaða náist um markmið
sem megi setja í bindandi samning á næsta ári,
þegar ráðstefnan verður haldin í Mexíkó.
Umræðan síðustu daga hefur farið fram í skugga
upplýsinga um tölvubréf sem prófessorar í enskum
háskólum höfðu sent sín á milli og stolið var. Þar
kom fram sú skoðun að allt væri á huldu um hlýnun
jarðar af mannavöldum. Yvo de Boer, yfirmaður
loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur
áhyggjur af því að bréfin ýti undir efasemda raddir.
Hann segir þó vart hægt að bera brigður á niður-
stöðu 2.500 vísindamanna sem fullyrtu nýverið
í skýrslu að hlýnun jarðar af mannavöldum væri
óhrekjanleg staðreynd.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sækja
báðar ráðstefnuna. - kóp /sjá síðu 18
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn hefst í dag:
Aukin bjartsýni á útkomuna
Þurrt SV-lands en annars
úrkoma. Strekkingur á V-fjörðum
en annars hægari vindur. Hiti 2 til
7 stig.
VEÐUR 4
5
5
6
44
Trúverðug kristni?
Það er gróf sögufölsun að gefa
það í skyn að hin lúterska
þjóðkirkja sé þúsund ára gömul,
skrifar Hjörtur Magni Jóhannsson.
UMRÆÐAN 20
VONBRIGÐI Haukar og FH áttust við í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í handbolta karla í gær. Gríðarleg spenna var í leiknum
og þurfti að tvíframlengja leikinn. Svo fór að Haukar höfðu betur með tveimur mörkum. Vonbrigðin voru gríðarleg eins og sjá má
á andlitum stuðningsmanna FH-liðsins en að sama skapi fögnuðu Haukarnir sigrinum vel og lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Grannagreiði hjá City
Manchester United minnk-
aði forskot Chelsea í tvö
stig um helgina.
ÍÞRÓTTIR 36
DUNCAN MCKNIGHT
Nældi sér í
hjúkrunarkonu
Á batavegi eftir lífshættulegt slys
FÓLK 42
BANDARÍKIN, AP Offita barna stafar
í sumum tilvikum af því að nokkra
búta af erfðaefni vantar í litning
númer sextán. Þetta kemur fram
í niðurstöðum rannsóknar sem
breskir vísindamenn hafa gert á
300 börnum sem eiga við alvarleg
offituvandamál að stríða.
Svo virðist sem ákveðið gen
skorti í sum þessara barna, en
það gen virðist nauðsynlegt
til þess að heilinn bregðist við
hormóni sem stjórnar matarlyst.
Þau börn, sem vantar þetta
erfðaefni, hafa afar sterka
löngun í mat á öllum tímum sólar-
hringsins. „Þau eru mjög, mjög
svöng. Þau vilja alltaf vera að
borða,“ segir Sadaf Farooqi við
Harvard-háskóla, annar tveggja
forystumanna rannsóknarinnar.
Niðurstöður rannsóknarinnar
eru birtar í nýjasta hefti vísinda-
tímaritsins Nature. Niðurstöð-
urnar hafa þegar orðið til þess að
barnaverndaryfirvöld í Bretlandi
hafa dregið til baka ásakanir á
hendur foreldrum tveggja barna.
- gb
Börn með offituvandamál:
Búta vantar í
litning sextán
FJÁRMÁL Ekki liggur enn fyrir
hvort ríkið leggur sparisjóðunum
til eiginfjárframlag líkt og þeim
stendur til boða samkvæmt neyðar-
lögunum.
Átta sparisjóðir af þeim tólf sem
enn starfa í landinu óskuðu eftir
framlaginu í vor. Það hljóðar upp
á samtals tuttugu milljarða króna.
Byr fengi helming en Sparisjóður
Keflavíkur (SpKef) fjórðung.
Kostnaður ríkisins við að bæta
eiginfjárstöðu Byrs gæti orðið tæpir
ellefu milljarðar króna og óvíst er
hvort það dugi. Til við miðunar
lagði ríkið samtals níu milljarða
á endanum inn í Arion banka og
Íslandsbanka.
Þeir sem Fréttablaðið hefur
rætt við, bæði innan fjármála-
ráðuneytisins og í bankageiranum,
segja málið enn á borði fjármála-
ráðherra. Margir telja það stranda á
endurskipulagningu Byrs og SpKef.
Viðkvæmust sé staða Byrs, sem tók
við greiðslumiðlun sparisjóðanna
eftir fall Sparisjóðabankans í vor.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir málið á borði
síns ráðuneytis að því leyti að það
hafi heimild til að leggja spari-
sjóðunum til fjármagn sem svari
til tuttugu prósenta af efnahags-
reikningi þeirra á árinu 2007.
„Ef það dugar þeim til fjárhags-
legrar endurskipulagningar er það
í boði en það er fyrst og fremst á
hendi sparisjóðanna sjálfra að vinna
úr sínum málum. Svo þurfa þeir
auðvitað að fá samþykki Fjármála-
eftirlits og eftir atvikum kröfuhafa
og fleiri aðila til að áætlan irnar
gangi upp,“ segir fjármálaráðherra,
sem ekki vill tjá sig um núverandi
stöðu málsins.
Þá vill Steingrímur ekkert segja
um meinta afstöðu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (AGS) en samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins mein-
ar AGS stjórnvöldum að borga inn í
sparisjóðina. Vísað er til samnings
Byrs við kröfuhafa um að framlagið
renni til þeirra. AGS er sagt mót-
fallið slíkri meðferð á skattfé.
Breska ráðgjafarfyrirtækið
Oliver Wyman veitir fjármálaráðu-
neytinu sérfræðiaðstoð um endur-
skipulagningu sparisjóðakerfisins.
Fundað er reglulega í ráðuneytinu
og dregur að lokum þess verks, að
sögn Hjördísar Drafnar Vilhjálms-
dóttur, ráðgjafa fjármálaráðherra.
Niðurstaða kann að liggja fyrir
um eða eftir áramót. Einn mögu-
leiki er að nýta tækifærið og skera
fjármálakerfi landsins meira niður
með tiltölulega litlum tilkostnaði.
Hagkvæmt er talið að láta banka
eða fjármálafyrirtæki taka yfir
eignir og skuldbindingar Byrs
ásamt greiðslumiðlun. Rætt hefur
verið við MP Banka og Saga Capital
um þetta. Þannig sparar ríkið sér
framlagið á sama tíma og spari-
sjóðakerfið helst í óbreyttri mynd
á landsbyggðinni. - jab
Byr verður trauðla bjargað
Framtíð sparisjóðakerfisins er enn óráðin eftir hrun fjármálakerfisins. AGS er sagt mótfallið frekari björg-
unaraðgerðum. Möguleiki er að láta yfirtaka Byr en halda sparisjóðanetinu á landsbyggðinni óbreyttu.
Gerir það gott í Svíþjóð
Þjóðlagasveitin Árstíðir
hefur gert samning við
útgáfufyrirtækið
Adore Music í
Svíaríki.
FÓLK 34