Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.12.2009, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 07.12.2009, Qupperneq 6
6 7. desember 2009 MÁNUDAGUR FULLT HÚS JÓLAGJAFA 18.990 kr. Ekta Egils Malt og Appelsín blandað að hætti íslenskra heimila SAMGÖNGUR Opinbera hlutafélagið Flugstoðir hefur eytt 38 milljónum króna í undirbúning samgöngu- miðstöðvar við Reykjavíkurflug- völl síðan 2007. Áður en Flugstoðir voru stofn- aðar sinnti Flugmálastjórn hlut- verki þeirra. Flugmálastjórn varði 815.097 krónum í verkefnið árið 2006, en engu árin 2004 og 2005. Þá er ótalinn kostnaður sem liggur í vinnu starfsfólks sam- gönguráðuneytis og starfsfólks Reykjavíkurborgar, en hann mun vera óverulegur. Þó gætu einhverj- ar milljónir falist í hönnunarvinnu vegna lóðarinnar. Líkt og heyrst hefur íhugar sam- gönguráðherra nú annan kost; að endurbyggja núverandi flugstöð og hverfa alveg frá stórri samgöngu- miðstöð. Umferðar miðstöð BSÍ yrði á sínum stað. Formaður skipu- lagsráðs borgarinnar er þessu ekki afhuga. Þó greiddu allir borgar- fulltrúar, fyrir utan Ólaf F. Magn- ússon, atkvæði gegn því í vikunni að festa flugvöllinn í sessi. Landssamtök lífeyrissjóða vilja fjármagna hvorn kostinn sem er, flugstöð eða samgöngumiðstöð, og bíða þess að ríki og borg taki ákvörðun. Borgin segist vinna að samgöngumiðstöð þar til erindi berist frá ráðherranum. Fyrrgreindur kostnaður Flug- stoða liggur í vinnu arkitekta, ráð- gjöf, þarfagreiningu, gerð reikni- líkana og öðru. Sigrún Traustadóttir, fjármála- stjóri hjá Flugstoðum, segist ekki líta svo á að þetta sé glatað fé, þótt ekkert verði úr samgöngumiðstöð- inni. Féð hafi farið í að ígrunda málin vel áður en farið yrði út í stórframkvæmd. Þess má geta að Flugstoðir velta um þremur millj- örðum á ári. Þær upplýsingar fengust í sam- gönguráðuneytinu að Flugstoð- ir hefðu borið meginþungann af þróunar vinnu samgöngumiðstöðv- ar. Kostnaður ráðuneytisins fælist í tíma starfsfólks og hugmynda- vinnu. Dagur B. Eggertsson, borgar- fulltrúi Samfylkingar, hefur bent á að kostnaður vegna lóðarinnar við Hlíðarfót, þar sem samgöngu- miðstöðin átti að vera, nemi 450 milljónum á árinu. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulags- ráðs, hefur hafnað beintengingu þess kostnaðar við samgöngu- miðstöðina. Kostnaðurinn deilist einnig á Háskólann í Reykjavík og fleiri verkefni. klemens@frettabladid.is Fjörutíu milljónir í samgöngumiðstöð Síðan Flugstoðir voru stofnaðar 2007 hafa þær eytt 38 milljónum í undirbúning samgöngumiðstöðvar. Flugmálastjórn eyddi rúmum 800 þúsundum í þetta árið 2006. Ótalinn er kostnaður ráðuneytis og borgar, sem liggur helst í vinnu. SAMGÖNGUMIÐSTÖÐ Þessi mynd úr safni blaðsins er frá árinu 2006 og sýnir hug- mynd að samgöngumiðstöð í Reykjavík frá Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar. MYND/ÚR SAFNI ELDVARNIR Þriðja hver jólasería er hættuleg, sam- kvæmt nýrri könnun Evrópusambandsins. Kann- aðar voru nær 200 seríur í öllum verðflokkum í fimm löndum, Hollandi, Þýskalandi, Ungverja- landi, Slóveníu og Slóvakíu. Seríurnar féllu margar á ýmiss konar öryggisprófunum sem gerðar voru, algengasti gallinn voru lélegar leiðslur í snúrunum og hætta á ofhitnun af ýmsum ástæðum. Í dagblaðinu Politiken er greint frá þessu og því að ástandið hafi þó verið misjafnt milli landa, ein- ungis helmingur seríanna var lélegur í Hollandi en nær allar í Ungverjalandi. „Mikil krafa er um að seríur séu ódýrar sem getur komið niður á gæðun- um,“ segir í greininni Á heimasíðu Brunamálastofnunar er varað við seríum sem farnar eru að bila. „Sumar seríur eru þannig að þegar slokknar á einni peru þá hitna hinar perurnar meira og þegar nokkrar perur eru farnar er hitinn á þeim perum sem eftir eru orðinn verulegur og þá getur verið stutt í að kvikni í,“ segir þar. Lélegar leiðslur og hætta á ofhitnun gera jólaseríur varasamar: Þriðja hver sería reyndist hættuleg JÓLALEGT Flestir setja upp seríur fyrir jólin en ekki er ráðlegt að hafa þær uppi ef þær eru farnir að bila. STJÓRNSÝSLA Forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem ætlað er að endurskoða lög um stjórnarráðið. Lögin eru að stofni til frá árinu 1969 en hafa tekið ýmsum breyt- ingum. Telur forsætisráðherra rétt og tímabært að fenginni reynslu að ráðast í slíka heildarendurskoðun. Meðal þess sem nefndin á að taka til sérstakrar skoðunar eru starfs- hættir ríkisstjórnar og fyrirkomu- lag ríkisstjórnarfunda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ætlun- in að skoða hvaða mál skuli afgreiða í ríkisstjórn og hver ekki. Einnig hvernig hátta beri undirbúningi mála fyrir ríkisstjórnarfundi. Þá á að fjalla um pólitíska aðstoðar menn ráðherra, um stöðu þeirra innan ráðuneyta, ráðningu, starfslok og fjölda. Ýmis sjónarmið eru á lofti í þeim efnum, til dæmis það að ráðherrar eigi að hafa mögu- leika á að styrkja pólitíska forystu í ráðuneytum með tímabundn- um ráðningum. Tilflutningur ráðuneytisstjóra í þeim tilgangi hefur einnig verið nefndur. Á móti vegur sú skoðun að ráðherrar eigi ekki koma nálægt mannaráðning- um í ráðuneytum. Anna Kristín Ólafsdóttir stjórn- sýslufræðingur er formaður nefndarinnar en í henni sitja líka Hafdís Ólafsdóttir skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, Gunnar Helgi Kristinsson prófessor, Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórn- sýslufræðingur. - bþs Nefnd gert að fjalla um starfshætti ríkisstjórnar og pólitíska aðstoðarmenn: Lög um stjórnarráðið endurskoðuð STJÓRNARRÁÐSHÚSIÐ Nefnd forsætisráðherra á að leggja til breytingar á lögum um stjórnarráð Íslands. PAKISTAN, AP Lögreglumenn hand- tóku hóp manna sem grunaður er um aðild að sprengjuárásum í borginni Peshawar og nágrenni í Pakistan. Lögreglunni hafði borist vís- bending um að sprengjumenn- irnir væru í húsi einu í borginni. Þar fundust sprengjur og vopn af ýmsu tagi. Einn maður lét lífið þegar lögreglan réðst til atlögu. Undanfarið hafa herskáir upp- reisnarhópar gert fjölda sprengju- árása í Pakistan, einkum í norð- vestanverðu landinu, líklega í hefndarskyni vegna árása hers- ins á uppreisnarmenn í héraðinu Suður-Waziristan. - gb Sjálfsvígsárásir í Pakistan: Sprengjumenn handteknir Ætti að skattleggja fjármagns- tekjur með sömu prósentutölu og launatekjur? Já 39,6% Nei 60,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Er rétt að leggja niður Varnar- málastofnun? Segðu þína skoðun á vísir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.