Fréttablaðið - 07.12.2009, Qupperneq 10
10 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
Ring er ný farsímaþjónusta á vegum Símans. Fyrir 1.990 kr. áfyllingu á mánuði færðu 1500 mín/SMS á mánuði
til að hafa samband við 160 þúsund vini innan GSM kerfis Símans og 990 kr. inneign til að ringja í fólk í öðrum kerfum.
Skráðu þig á ring.is, fylltu á fyrir 1.990 kr. á mánuði og þá eignastu 160 þúsund vini
innan GSM kerfis Símans og færð 990 kr. til að ringja í fólk í öðrum kerfum.
3G sími
á 12 þúsund,
12 þúsund
í inneign, 160
þúsund vinir.
Skelltu þér á ring.is eða í sölubása okkar
í Kringlunni og Smáralind og gakktu frá kaupunum
Fullkominn
og ótrúlega
nettur 3G sími
og netið
Ódýrasti 3G síminn með
öllu sem þú þarft. Styður
m.a. 3G langdrægt kerfi.
HUAWEI U1251
1.000 kr. afborgun á
mánuði í 12 mánuði.
1.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
0 kr.
Útborgun
Tveir litir eru í boði.
Ódýras
ti
3G sím
inn
á Íslan
di
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
16
2
MÓTMÆLT Í NEPAL Tugþúsundir
mótmælenda fylltu götur í kringum
stjórnarráðið í Katmandú í Nepal í
einum mestu mótmælum gegn for-
seta og ríkisstjórn sem farið hafa fram
um margra missera skeið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÍKNARMÁL Velunnarar kvenna-
deildar Landspítala Háskólasjúkra-
húss hafa ákveðið að stofna styrktar -
félag sem ætlað er að styrkja alla
þætti kvennadeildarinnar.
Nafn félagsins verður Líf og
standa núverandi og fyrrverandi
starfsmenn kvennadeildar að
stofnun þess ásamt breiðum hópi
fólks víðs vegar að úr þjóðfélag-
inu.
Áætlað er að fyrsta verkefni
félagsins verði að ljúka við fram-
kvæmdir á húsnæði meðgöngu- og
sængurkvennadeildar.
Um helmingur deildarinnar var
endurnýjaður fyrr árinu. Ekki tókst
að afla fjár til að ljúka verkinu. Því
standa eftir 400 fermetrar sem
þarf að lagfæra og er áætlaður
kostnaður um áttatíu milljónir.
Um fjórðungur svæðisins er hús-
næði sem vökudeild nýtti áður en
vökudeildin flutti í nýtt húsnæði
árið 2003.
Þetta svæði er vannýtt í dag,
meðal annars vegna þess að ekki er
hægt að koma inn sjúkrarúmum.
Fjármögnun þessa verkefnis er
hvatinn að stofnun félagsins en
því er þó ætlað að styðja við starf
kvennadeildarinnar til langs tíma.
Félagið mun hafa félagsgjöld,
3.000 krónur á ári en standa síðan
að margvíslegum fjáröflunum á
næsta ári.
Styrktarfélag um Kvennadeild Landspítalans stofnað:
Stuðningur til framtíðar
KVENNADEILD LSH Stofnfundur Lífs
verður haldinn í kvöld klukkan 20.00 í
safnaðarheimili Háteigskirkju.
SAMFÉLAGSMÁL Stuðnings- og nærþjónusta við langveik
börn og börn sem greind hafa verið með ofvirkni og
athyglisbrest (ADHD) verður aukin með nýjum sam-
starfssamningi ráðuneyta og sveitarfélaga um tilrauna-
verkefni í þessu skyni til þriggja ára. Samningur inn
var undiritaður í síðustu viku. Áttatíu milljónir króna
renna til verkefnisins árið 2009. Fjárhæðinni er skipt
milli félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og
menningarmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis en
samstarfssamningurinn er milli þessara ráðuneyta og
Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd sveitar-
félaga í landinu.
Samkvæmt samstarfssamningnum geta sveitarfélög
eða stofnanir á þeirra vegum sótt um styrki vegna
verkefna sem ætluð eru til þess að auka þjónustu við
börn með athyglisbrest og ofvirkni og þjónustu við
langveik börn og fjölskyldur þeirra. Sveitarfélög geta
einnig sótt um styrki vegna verkefna sem unnin eru í
samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.
Á næstu dögum mun stjórn verkefnisins auglýsa
eftir umsóknum sveitarfélaga um styrki til verkefna í
samræmi við samkomulagið. - jss
Nýr samstarfssamningur ráðuneyta og sveitarfélaga:
Þjónusta við langveik börn aukin
UNDIRRITUN Frá undirritun samstarfssamningsins: Ingibjörg Karlsdóttir, formaður ADHD, og Ragna
Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Umhyggju, félags til stuðning langveikum börnum.
ÞÝSKALAND Sjö þúsund ára
gamlar mannvistarleifar
skammt frá bænum Herxheim í
Rínarlöndum í Þýskalandi bera
þess nánast ótvíræð merki að
þar hafi verið stundað mannát í
stórum stíl.
Fornleifafræðingar segja
jarðneskar leifar allt að fimm
hundruð manna, þar á meðal
barna og jafnvel ófæddra
fóstra, bera þess merki að
holdið hafi verið skafið af bein-
unum og þau jafnvel nöguð.
Frá þessu er skýrt í nýjasta
hefti tímaritsins Antiquity.
Á fréttasíðum BBC er þó haft
eftir Bruno Boulestin, leiðtoga
fornleifarannsóknanna, að erf-
itt sé að sanna að mannát hafi
verið stundað þarna.
Ekki er talið að mannát hafi
tíðkast víða í Evrópu. - gb
Fornleifafundur í Þýskalandi:
Greinileg merki
um mannætur
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í tvo
grunnskóla í Reykjavík aðfara-
nótt sunnudags.
Brotist var inn í Laugarnes-
skóla og tölvu stolið þaðan.
Vegfarandi tilkynnti lögreglu
um glugga sem spenntur hafði
verið upp í skólanum. Þjófurinn
náðist ekki, en málið er í rann-
sókn hjá lögreglu.
Þá var einnig brotist inn í
Háteigsskóla. Lögreglan handtók
fjóra drengi á tvítugsaldri á
staðnum, einn inni í skólanum og
þrjá í bíl fyrir utan.
Skjávarpi fannst í fórum
þeirra. Þeir gistu allir fanga-
geymslur lögreglunnar. - þeb
Innbrot í höfuðborginni:
Brotist inn í tvo
grunnskóla