Fréttablaðið - 07.12.2009, Side 16
16 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
MIZUHO FUKUSHIMA Ráðherra neyt-
endamála í Japan ræðir við blaðamenn
eftir ríkisstjórnarfund í gær. Fukushima,
sem fer fyrir einum stjórnarflokka, segir
stjórnarslit kunna að fylgja ef herstöð
sjóhers Bandaríkjanna á Okinawa
verður færð á norðurhluta eyjunnar, líkt
og ráð er fyrir gert í áætlun frá 2006.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Norskir útflytjend-
ur standa nú frammi fyrir því að
útflutningur á óverulegu magni af
fiski getur kallað á gríðarlegt flóð
vottorða vegna hertra reglna Evr-
ópusambandsins. Þetta kemur til
vegna tilrauna til þess að stemma
stigu við ólöglegum fiskveiðum.
Reglugerð þar að lútandi tekur
gildi þann 1. janúar næstkomandi.
Eftir breytinguna eru dæmi um
að framvísa gæti þurft 1.875 upp-
runavottorðum vegna útflutnings
fimm tonna af blönduðum fiski frá
Noregi til kaupanda í Þýskalandi.
Þetta kemur fram í frétt vefmið-
ilsins IntraFish þar sem rætt er við
þá Matthias Keller, framkvæmda-
stjóra samtaka fiskvinnslustöðva
í Þýskalandi, og Jurgen Meinert,
framkvæmdastjóra samtaka fram-
leiðenda sjávarafurða í Noregi.
Meinert segir breytingarnar
kalla á „pappírsflóð“ og Keller
segir það orðið augljóst að ógern-
ingur sé að uppfylla þær kröf-
ur sem ætlað er að ná fram með
breytingunum.
Samkvæmt tilkynningu frá
sjávar útvegsráðuneytinu hafa
íslensk stjórnvöld óskað eftir upp-
lýsingum frá framkvæmdastjórn
ESB um um hvernig framkvæmd
umræddrar reglugerðar ESB
verður háttað í aðildarríkjum sam-
bandsins. - shá
Ný reglugerð ESB útheimtir gríðarlega skriffinnsku hjá fiskútflytjendum:
Þurfa 1.875 upprunavottorð
LÖNDUN Útflutningur á litlu magni af
ferskfiski getur útheimt gríðarlega skrif-
finnsku taki ný reglugerð gildi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEILBRIGÐISMÁL Um helmingur
íslenskra bænda hefur lent í vinnu-
slysi og þurft að vera frá vinnu
vegna þess. Rúm átján prósent
höfðu þurft að vera frá vinnu í
meira en tvær vikur. Þetta kemur
fram í könnun sem tveir læknar
hafa gert á meðal ríflega þúsund
bænda. Greint er frá niðurstöðum
hennar í nýjasta hefti Læknablaðs-
ins.
Rannsóknin leiðir í ljós að lang-
flest vinnuslysanna, um helmingur,
verða við meðhöndlun búpen-
ings. Segir í greininni að umhirða
búpenings geti enda verið erfið,
einkum stórra skepna á borð við
nautgripi. Viðhald og endurnýjun
húsa er næstalgengustu aðstæð-
urnar sem slys verða við.
Haraldur Benediktsson, for-
maður Bændasamtakanna, segir
að þessar niðurstöður komi sér í
sjálfu sér lítið á óvart. Hann segir
til dæmis algengt að menn sinni
verkum einir sem þeir ættu ef til
vill að hafa aðstoð við. Það bjóði
hættunni heim. „Við höfum í nokk-
urn tíma hvatt til þess að menn
hugi að vinnuaðstæðum, að þær
séu öruggar og heilnæmar. En mér
heyrist á þessu að við þurfum að
gera betur og vera markvissari í
þessari vinnu,“ segir Haraldur.
Þá segir í niðurstöðunum að um
fimmtungur bænda hafi einhvern
tímann verið ölvaður við störf, og
að vinnuslys meðal þess hóps séu
tíðari en hjá hinum sem aldrei
hafi sinnt bústörfum undir áhrif-
um áfengis. Þrátt fyrir þetta séu
áfengisvandamál fátíðari meðal
bænda en annarra.
Þetta undirstriki þá staðreynd að
bóndinn sé í raun alltaf í vinnunni,
„þannig að líkurnar á að bóndi
sem neytir áfengra drykkja þurfi
að sinna starfi sínu undir áhrifum
eru í eðli sínu miklar“.
Segir í grein-
inni að þessar
niðurstöður kalli
á að átak verði
gert í forvörnum
vegna slysa af
búpeningi ann-
ars vegar, og
hins vegar að
umræðu og átak
þurfi meðal
bænda til að
taka á þeim vanda sem er notkun
áfengis við bústörf.
„Ég fatta þetta nú ekki alveg,“
viðurkennir Haraldur. Vissulega
geti menn þurft að sinna vinnu
hvenær sem er, en hann hafi ekki
litið á þetta sem stórvægilegt
vandamál. „En auðvitað er algjör-
lega óásættanlegt ef menn eru
til dæmis að vinna á vélum undir
áhrifum, það vita menn.“
Könnunin var send 2.042 bænd-
um með bú stærra en 100 ærgildi
og svöruðu 54 prósent þeirra.
Könnunin var hluti af stærri
könnun á heilsufari íslenskra
bænda. Meðal annarra helstu
niður staðna var að bændur væru
almennt viðlíka heilsuhraustir og
aðrir, þrátt fyrir hærri meðalaldur.
Þetta var skýrt með því að ef heilsa
bænda brysti þyrftu þeir jafnan að
bregða búi.
Þá kom í ljós að andleg heilsa
bænda væri almennt betri en ann-
arra og þeim fyndist vinnuálag
síður of mikið. stigur@frettabladid.is
Annar hver
bóndi slasast
við störf sín
Talsverðar líkur eru á að bændur slasist við með-
höndlun búpenings. Rannsókn sýnir að slík slys eru
tíð. Fimmtungur bænda hefur sinnt störfum ölvaður.
VARASAMUR VINNUSTAÐUR Í greininni segir að algengt sé að menn slasist við með-
höndlun stórra gripa. Myndin er úr safni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HARALDUR BENE-
DIKTSSON
VIÐURKENNING Norðlingaskóli í
Reykjavík, MS á Selfossi og List án
landamæra hlutu Múrbrjótinn, við-
urkenningu Landssamtaka Þroska-
hjálpar.
Verðlaunagripurinn er smíðaður
af fötluðum listamönnum á hand-
verkstæðinu Ásgarði. Landssamtök-
in Þroskahjálp hafa á síðustu árum
veitt viðurkenningar til þeirra aðila
sem að mati samtakanna hafa staðið
sig vel í því að ryðja fötluðum nýja
braut í samfélaginu, sýnt ábyrgð og
frumkvæði og stuðlað að þátttöku
og jafnrétti fatlaðs fólks.
Norðlingaskóli í Reykjavík fær
verðlaunin fyrir skólastefnu sína
um nám fyrir alla nemendur, án
aðgreiningar. MS á Selfossi fær
viðurkenninguna fyrir atvinnu-
stefnu sem hefur stuðlað að aukinni
atvinnuþátttöku fatlaðs fólks á. List
án landamæra, er menningarhátíð
með það hlutverka að stefna saman
fötluðum og ófötluðum listamönn-
um. - sbt
Þrír hlutu Múrbrjótinn, viðurkenningu Þroskahjálpar:
Stuðla að þátttöku og
jafnrétti fatlaðs fólks
MÚRBRJÓTURINN AFHENTUR Fulltrúar
Norðlingaskóla taka við verðlaununum
úr hendi Árna Páls Árnasonar, félags- og
tryggingamálaráðherra.
LÖGREGLUMÁL Þrír góðkunningjar
lögreglunnar voru handteknir á
stolinni bifreið á Laugaveginum
í gær.
Mennirnir, sem eru allir á þrí-
tugsaldri, stálu bílnum á Snorra-
braut, skammt frá lögreglustöð-
inni, og óku sem leið lá niður
Laugaveg. Eigandi bílsins var á
leið upp Laugaveginn þegar hann
mætti þjófunum. Þegar hann átt-
aði sig á því að bílnum hans hafði
verið stolið lét hann lögregluna
vita og brást hún skjótt við.
Mennirnir voru handteknir
skömmu síðar og fengu að dúsa í
fangageymslum á lögreglustöð-
inni á Hverfisgötu.
Góðkunningjar lögreglunnar:
Stálu bíl hjá
löggustöðinni
KAUPMANNAHÖFN Tæplega sex-
tugur þýskur kaupsýslumaður
var handtekinn á Kastrup-flug-
velli í Kaupmannahöfn í síðustu
viku eftir að hann kvaðst vera
með sprengju.
Öryggisverðir hugðust líta
í tösku mannsins þegar hann
sagði þeim að taskan spryngi
væri hún opnuð.
Maðurinn ætlaði sér þó ekki
annað en að slá á létta strengi
en var handtekinn tafarlaust.
Lögreglan á Kastrup-flug-
velli segist líta það mjög alvar-
legum augum að talað sé um
sprengjur á flugvellinum.
Stutt er síðan kona hlaut
tíu daga fangelsisdóm bara
fyrir það eitt að segja orðið
„sprengja“ í flugstöðvarbygg-
ingunni á Kastrup.
Handtekinn á Kastrup:
Grínið féll ekki
í góðan jarðveg