Fréttablaðið - 07.12.2009, Page 23
JÓLABASAR KLÚBBSINS GEYSIS verður haldinn
fimmtudaginn 10. desember í húsnæði klúbbsins að Skipholti
29. Til sölu verður fjölbreytt handverk og hannyrðir sem klúbb-
félagar hafa unnið að á síðastliðnu hausti. Basarinn stendur frá
16 til 18 og allur ágóði rennur til starfsemi klúbbsins.
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordis@365.is 512 5447
Karl á heima í Þingholtunum í
Reykjavík og þegar hann er spurð-
ur hvort hann eigi einhvern ein-
stakan hlut sem hann hafi meiri
mætur á en öðrum er hann fljót-
ur til svars. „Já, reiðstígvélin hans
afa.“ Þetta þarf hann að útskýra
nánar. „Afi var ekki stóreigna-
maður; hann starfaði sem rútu-
bílstjóri og keypti fáa en vandaða
hluti. Reiðstígvélin mun hann hafa
fengið sér um miðja síðustu öld.“
Karl segir afa sinn ekki hafa átt
hross þótt hann félli fyrir stígvél-
unum. „En hann hélt alltaf tengsl-
um við sína sveit sem var Gríms-
nesið. Hann var frá Vaðnesi og þar
fóru þau á hestbak sér til gam-
ans hjónin. Svo féll afi frá 1986
og amma gaf mér stígvélin fyrir
svona fimmtán árum. Ég ber nafn
afa og kannski hefur það átt sinn
þátt í að mér áskotnuðust þau og
líka það að ég var á kafi í hesta-
mennsku þar til ég flutti til Dan-
merkur árið 2000, þá seldi ég hest-
ana sem ég átti.
Sé eftir þeim? Það er til fullt af
hestum og einhvern tíma kaupi
ég mér nýja. Þangað til fæ ég
útrás fyrir bakteríuna með því að
skreppa á bak gæðingum Valbergs
bróður míns sem býr vestur í
Dölum. Þar tek ég þátt í smölunum
á haustin.“ Ekki hefur Karl þó stíg-
vélin með sér vestur. „Þau eru
númer 41 en ég er með talsvert
stærri býfur en svo að ég komist í
þau,“ segir hann hlæjandi.
Nú býr Karl með fjölskyldu sinni
í húsinu sem amma hans og afi
áttu og er að gera það upp smátt
og smátt. Í ljós kemur að stígvél-
in eru á góðum stað í stofunni
með öðrum munum sem í húsinu
fundust. „Já, það má segja að þau
séu komin heim aftur,“ segir Karl
brosandi. „Svo eru þau full af dag-
blöðum frá því um 1960 sem eru
auðvitað forngripir líka og merkar
heimildir.“ gun@frettabladid.is
Stígvélin hans afa aftur
komin til síns heima
Karl Sigfússon verkfræðingur sinnir sínum rótum vel. Hann býr ásamt konu og börnum í húsi sem afi
hans og amma áttu í áratugi og eitt af því sem prýðir stofuna þar eru hin brúnu reiðstígvél afa hans.
„Þau eru númer 41 en ég er með talsvert stærri býfur en svo að ég komist í þau,“ segir Karl um reiðstígvélin hans afa síns, Karls
Magnússonar bifreiðarstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Fyrst og fremst í heilsudýnum
JÓLATILBOÐ
á stillanlegum rúmum
6 mán.
vaxtalausar greiðslur
Strandgötu 43 | Hafnarfirði | Sími 565 5454
Söluaðilar.: Járn og gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan - Búsáhöld
Kringlunni - Pottar og Prik Akureyri. www.weber.is
Frábært úrval af gjafavörum frá Weber
Könnur með dýrum
og traktorum