Fréttablaðið - 07.12.2009, Side 40
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
28 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þessar frönsku
kartöflur hefðu
verið miklu betri
með sjávarsalti.
Ónei, ekki
smámunasami
dómarinn
aftur.
MMMM.
Já.
Ég veit
það
ekki.
Nei,
takk.
Nei, sko! Ég fann
heilan kassa af
íspinnum.
Við tölum
saman
seinna.
Vel
grip-
ið!
Það var nú
miklu frek-
ar rúllað
yfir hana.
10. HVERVINNUR!
VILTU
MIÐA?
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
JÓLAMYNDIN Í ÁR
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
FULLT AF
AUKAVIN
NINGUM
TÖLVULE
IKIR · DVD
MYNDIR
· PEPSI M
AX
OG MARG
T FLEIRA!
SENDU SM
S SKEYTIÐ
ESL ART Á
NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆ
TIR
UNNIÐ MIÐ
A!
FRUMSÝN
D 4. DESE
MBER
Fréttastofa Ríkissjónvarpsins sagði frá því fyrir viku að verð á bókum hefði
hækkað frá því í fyrra. Eins og flestir hafa
gert sér grein fyrir hefur býsna margt
hækkað í verði síðan þá. Og það þarf ekki
einu sinni að fara svo langt aftur því verð-
lag hefur hækkað heilmikið frá því bara í
sumar sem leið. Í ágúst keypti ég borðspil
á verði sem nú er orðið 80% hærra. Hér er
um að ræða fjóra trékalla, tréhettur sem
hægt er að hvolfa yfir þá, tening, sjálft
spjaldið og loks kassann utan um herleg-
heitin. Skýringin sem mér var gefin í
búðinni á þessari hækkun var sú að
það hefði komið ný sending af vör-
unni.
SPILIÐ er að mestu leyti úr pappír
– líkt og bækur – og pappír hefur
hækkað í verði. Það er gott að
íslenskar bækur hafa ekki hækkað
jafnskarpt og umrætt spil, heldur
aðeins um nokkur hundruð krónur
hver og sumar ekki neitt. Þeir sem
ætla að gefa börnum jólagjafir í ár
reka sig fljótt á að verð á bókum er
mun viðráðanlegra en á mörgum
vinsælum innfluttum leikföngum.
Þessi jólin er það útsjónarsemin
sem gildir og um að gera að bera
saman verð og þjónustu áður en
innkaupin hefjast. Fjöldi manns
nýtti sér bókamarkaðina sem
stóðu fram í október og runnu þar með
saman við jólabókaflóðið. Þar sást til fólks
velja klassískar og góðar bækur til jóla-
gjafa. Bók er og verður góð gjöf, hvort sem
hún er nýkomin út eður ei.
BÆKUR eru nefnilega ekki bara kækur.
Þær eru líka lækur sem seytlar um heila-
búið og svalar þörf mannsins fyrir ævin-
týri og lönguninni til að skilja annað fólk
og sjálfan sig helst líka. Fréttaflutningur
Ríkissjónvarpsins á mánudagskvöld, dag-
inn fyrir fullveldisdaginn, minnir á frétt-
irnar af skólabókaverðinu sem þjóðinni var
boðið upp á í haust. Viðtöl við háskólanema
sem greiddu tugi þúsunda króna fyrir
skólabækur runnu saman við foreldra sem
tuðuðu yfir því að þurfa að greiða 10.000
kr. fyrir skólavörur handa sex ára börnum
– eins og menntun væri einskis virði.
ÉG HVET FÓLK sem finnst bókaverð út úr
öllu korti að tölta nú út í búð og glugga til
dæmis í Gásasöguna eftir Brynhildi Þór-
arinsdóttur, Komin til að vera nóttin eftir
Ingunni Snædal, Milli trjánna eftir Gyrði
Elíasson eða Auði eftir Vilborgu Davíðs-
dóttur og velta því fyrir sér hvort það sé
ekki einhvers virði að svona bækur séu
skrifaðar hér á landi á íslenskri tungu fyrir
íslenska þjóð. Og hvort ekki megi þá greiða
eilítið fyrir þær líka eins og eldhúsinnrétt-
ingar, jólaljósaseríur og kort í skíðalyftu.
Komin til að vera bókin