Fréttablaðið - 07.12.2009, Qupperneq 43
MÁNUDAGUR 7. desember 2009
Auglýsingasími
– Mest lesið
Jólako
rt og
jólafr
ímerk
i
Ætting
jar vil
ja sjá
myndi
r.
Nú ge
tur þú
hann
að þín
eigin
jólako
rt og j
ólafrím
erki á
www.
postu
r.is
Bókmenntir ★★
Byltingarmenn og bóhemar
Ólafur Ormsson
Villta vinstrið
Í Byltingar-
mönnum og
bóhemum
fer Ólafur
Ormsson yfir
sögu vinstri-
hreyfingarinnar
hér á landi á
blómatíma
hugsjónanna.
Ólafur lýsir því
hvernig ungt
fólk fann eldheitum skoðunum
sínum farveg innan hinna ýmsu
vinstri samtaka og tekist var á um
hvaða spámanni ætti að fylgja;
Maó, Stalín, Trotskí, Lenín eða
Marx. Þetta var litríkur tími og þó
vissulega sé á stundum grátbros-
legt að lesa um deilur fólks um
landbúnaðarstefnu Maós, verður
það ekki frá fólkinu tekið að það
hafði skoðanir.
Bókin er skemmtileg heimild
um horfinn tíma. Hún er þokka-
lega skrifuð og mjög persónuleg,
en hún hefði vel þolað betri
yfirlestur. Hún er full af stafsetn-
ingarvillum og sömu menn eru
oft kynntir til sögunnar þegar eitt
skipti hefði dugað.
Kolbeinn Óttarson Proppe
Niðurstaða Skemmtileg heimild
um horfinn tíma.
Bókmenntir ★★★
Eitt sinn gangster, ávallt gangster
Spennusaga
Josh Bazell
Hjúkrað og hefnt
Við nýjan tón kveður í þessari spennusögu, nokkuð
sem ekki er auðvelt að ná í þessum heimi sem fullur
er af spennusögum. Sagan segir frá einni vakt í lífi
læknisins Brown, sem poppar sig upp á örvandi til að
komast í gegnum erfiða vakt. Fortíðin bankar á dyrnar á
sjúkrahúsinu og það verður til þess að hann rifjar hana
upp. Og vart má á milli sjá hvort er blóðugra, minningar
hans um lífið og hefndina eða núið í skurðaðgerðunum.
Sagan er fersk og skemmtilega hrá, óþægilega brútal
á köflum en falleg á köflum. Hress andvari í glæpa-
sagnaheiminn. Þýðing Arnars Matthíassonar er fín, þótt
vissulega sé umhugsunarefni hvernig titillinn fór úr Beat
the Reaper í Eitt sinn gangster, ávallt gangster.
Kolbeinn Óttarsson Proppé
Niðurstaða: Grimm og grípandi saga, full af húmör og spennu.