Fréttablaðið - 07.12.2009, Side 46
34 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
Andri Ásgrímsson hefur
sent frá sér sólóplötuna
Orrustan um Esjuna. Andri
er einnig í hljómsveitinni
Leaves og segist alltaf vera
að nostra við einhverja
músík.
„Þetta er háalvarleg tónlist og alveg
jafn dramatísk og umslagið gefur
til kynna,“ segir Andri Ásgrímsson
um fyrstu sólóplötu sína, Orrust-
an um Esjuna. Á umslaginu fljúga
fljúgandi furðuhlutir yfir Reykja-
vík og ofurhetjan, Andri í hlut-
verki Sveimhugans, stendur keik
með leysibyssu. Þetta er konsept-
plata. „Ég vildi fara eitthvað með
þetta, hafa eitthvert form til að
vinna út frá,“ segir Andri. „Sagan
á plötunni er að geimverur hafa
ráðist á Reykjavíkurborg og það er
allt brjálað. Leysigeislaskothríð,
sprengingar og læti. Svo kemur
Sveimhuginn og bjargar Reykja-
vík frá geimverunum.“
Lögin bera nöfn eins og „Borgin
brennur“ og „För sniglanna“ og
tónlistin er bæði hljóðgervlaknúin
og spiluð með kammerhljóðfærum.
Andra þykir ekki óvitlaust að kalla
tónlistina „sci-fi klassík“. „Annars
vegar dregur músíkin áhrif sín frá
þýska krautrokkinu og hins vegar
frá klassíkinni.“
Auk þess að berjast við geim-
verur á plötu spilar Andri á hljóm-
borð og gítar með Leaves. „Maður
hefur alveg ágætis tíma fyrir utan
bandið og mig hefur alltaf langað
lengi til að gera eitthvað í þessa átt-
ina. Ég er alltaf að nostra við ein-
hverja músík. Sum lögin eru orðin
mjög gömul. Maður er búinn að
taka gamlar hugmyndir og vinna
þær almennilega.“
Fyrir Leaves var Andri í hinu frá-
bæra post-rokkbandi Náttfari, sem
hætti áður en hjólin fóru að snú-
ast. „Það band gerði best-of demó
sem ekkert varð út. Við vorum bara
ekki nógu þroskaðir á þeim tíma til
að taka Náttfara lengra. Því miður,
þetta var gott efni. Við fokkuð-
um þessu bara upp,“ segir Andri.
Hann langar til að spila nýju plöt-
una á tónleikum en það gæti verið
snúið því þetta er mikið hljóðvers-
verk. „Það væri erfitt að feika þetta
á tónleikum. Strengir og sprengjur
og fimm effektar á röddinni. Maður
reynir samt.“
Andri er búinn að keyra plötuna í
allar helstu plötubúðir og hún fæst
líka á Gogoyoko.
drgunni@frettabladid.is
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
L
L
16
L
10
10
JULIE AND JULIA kl. 5.20 - 8 - 10.35
ARTÚR 2 kl. 4 - 6
THE BOX kl. .5.30 - t8 - 10.30
LOVE HAPPENS kl. 8
2012 kl. 4.45 - 8 - 10.30
2012 LÚXUS kl. 4.45 - 8
SÍMI 462 3500
2012 kl. 8
THE BOX kl. 8 - 10.10
LOVE HAPPENS kl. 6
9 kl. 6
10
16
L
7
7
12
10
L
16
WHATEVER WORKS kl. 5.50 - 8 - 10.10
A SERIOUS MAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
2012 kl. 5.45 - 9
DESEMBER kl. 6 - 8
STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 10
SÍMI 530 1919
L
16
10
16
16
JULIE AND JULIA kl. 5.20 - 8 - 10.35
PARANORMAL ACTIVITY kl. 8 - 10
2012 kl. 6 - 9.15
ZOMBIELAND kl. 6
STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 6 - 9
SÍMI 551 9000
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
SÍÐ
UST
U S
ÝNI
NG
AR
.com/smarabio
AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ,
BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL.
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
30.000 MANNS!
32.000
MANNS!
JÓLAMYNDIN Í ÁR!
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
EKKI VIÐ HÆFI UNGRA BARNASÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
J i m C a r r e y
ROBERT PATTINSON OG KRISTEN
STEWART ERU MÆTT Í EINNI STÆRSTU
KVIKMYNDASERÍU ALLRA TÍMA!
Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16
16
16
NINJA ASSASSIN kl. 5:50 - 8 - 10:10
NINJA ASSASSIN kl. 8 - 10:10
TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:20 - 8 - 10:10 - 10:40
TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:20
A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 5:50(3D) Ótextuð
A CHRISTMAS CAROL M/ ísl. Tali kl. 5:50
A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 8 - 10:10
PANDORUM kl. 8
LAW ABIDING CITIZEN kl. 8
COUPLES RETREAT kl. 5:50
NINJA ASSASSIN kl. 8 - 10:40
TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 6 - 8 - 9 - 10:10
A CHRISTMAS CAROL M/ ísl. Tali kl. 5:50(3D)
A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 5:50(3D) Ótextuð
THE TWILIGHT SAGA: NEW MOON kl. 8 - 10:30
MORE THAN A GAME kl. 8
NINJA ASSASSIN kl. 10
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR MATRIX
HÖRKU HASARMYND
12
12
12
12
V I P
V I P
7
7
7
7
7
7
7
16
16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
EXTRACT kl. 6, 8 og 10 12
ARTHÚR 2 - Íslenskt tal kl. 6 L
COCO BEFORE CHANEL kl. 8 og 10.10 L
2012 kl. 7 og 10.10 10
HUGLJÚF OG HEILLANDI
MYND UM ÆVI COCO CHANEL
JÓLAMYNDIN Í ÁR
„Þetta byrjar allt voða vel,“ segir Ragnar Ólafs-
son úr þjóðlagasveitinni Árstíðum. Hún hefur gert
samning við sænska útgáfufyritækið Adore Music
um útgáfu á sinni fyrstu plötu, sem kom út hér á
landi í sumar. „Þetta er miðlungsstórt óháð fyrir-
tæki í Gautaborg og ágætlega vel tengt hvað varðar
dreifingu á Norðurlöndunum. Ég er nokkuð sáttur
við þennan samning og ég held að hann muni skila
sínu,“ segir Ragnar en bætir við: „Þetta er mest
kynning. Við verðum ekkert ríkir á þessu.“
Áhugi Svíanna á Árstíðum hófst á tónlistarhátíð-
inni Réttum þegar hljómsveitin hélt vel heppnaða
tónleika í Fríkirkjunni. Margir höfðu þá samband
við sveitina en hún vildi bíða með að semja þangað
til eftir norsku hátíðina By:Larm þar sem Árstíð-
ir áttu að spila næsta vor. Ekkert verður af þeim
tónleikum og því var ákveðið að semja við Adore
Music. Platan kemur líklega út í apríl í Svíþjóð og
þriggja vikna tónleikaferð um landið er síðan fyrir-
huguð í lok maí til að fylgja henni eftir.
Sænskir fjölmiðlar hafa verið áhugasamir um
Árstíðir að undanförnu. Nýlega birtist stórt viðtal
við sveitina í blaðinu Sydsvenskan og einnig tók tón-
listartímaritið Zero Music viðtal við hana. Þar hefur
platan þegar fengið mjög jákvæða dóma, átta af tíu
mögulegum. Jafnframt birtist viðtal við Ragnar í
ítalska tísku- og lífsstílstímaritinu Salad Days eftir
áramót þar sem hann var spurður út í lopapeysur og
annað sem tengist Íslandi.
Árstíðir áttu að spila á jólatónleikum Björgvins
Halldórssonar en ekkert varð af því. Í staðinn
heldur hljómsveitin sína eigin jólatónleika í Frí-
kirkjunni 23. desember. - fb
Útgáfusamningur í Svíþjóð
ÁRSTÍÐIR Þjóðlagasveitin Árstíðir hefur gert útgáfusamning við
sænskt fyrirtæki. MYND/ÓSKAR PÁLL ELFARSSON
Litlu munaði að illa færi þegar
glerhurð í sturtu Ross Jarman,
trommara The Cribs, brotnaði.
Jarman skarst illa, en harkaði það
af sér.
Íslandsvinurinn Ross Jarman,
trommari bresku hljómsveitarinn-
ar The Cribs, slasaðist illa í sturtu
á mánudag. Jarman var að hressa
upp á sig á hótelherbergi sínu eftir
tónleika í O2-höllinni í Birming-
ham þegar glerhurðin losnaði frá
sturtunni og brotnaði með þeim
afleiðingum að hann hlaut nokk-
ur djúp sár. Jarman var fluttur
á sjúkrahús þar sem gert var að
sárum hans.
The Cribs neyddist ekki til að
hætta við fyrirhugaða tónleika
vegna atviksins, en Jarman lætur
slysin ekki stoppa sig. Hann úln-
liðsbrotnaði fyrr á þessu ári þegar
hljómsveitin var í Los Angeles
við upptökur á nýrri plötu. Þrátt
fyrir það kláraði hann að taka upp
trommurnar á plötunni, en bruddi
verkjalyfið vicodin inni á milli
laga.
The Cribs kom til Íslands árið
2006 og spilaði á Iceland Airwaves-
hátíðinni. Félagarnir létu vel af
dvölinni og fóru á marga tónleika
á hátíðinni.
atlifannar@frettabladid.is
Íslandsvinur slasar sig
SKORINN Trommari The Cribs slasaði sig
í sturtu.
GEIMVERUR RÁÐAST Á
REYKJAVÍK Á NÝRRI PLÖTU
MEÐ LEYSIBYSSUNA Á LOFTI Andri Ásgrímsson úr Leaves hefur gefið út konsept-
sólóplötu.