Fréttablaðið - 07.12.2009, Side 48
36 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
FÓTBOLTI Manchester City getur
þakkað markverði sínum Shay
Given að liðið slapp við áttunda
jafnteflið í röð og vann glæsilegan
2-1 sigur á toppliði Chelsea í ensku
úrvalsdeildinni um helgina. Shay
Given varði vítaspyrnu Franks
Lampard sjö mínútum fyrir leiks-
lok en áður höfðu Emmanuel Ade-
bayor og Carlos Tevez komið City
yfir.
„Við höfum enga ástæðu til þess
að hafa áhyggjur. Við erum að gera
góða hluti þessa stundina en leikur-
inn í dag var mjög erfiður þar sem
Manchester City spilaði mjög vel,“
sagði Carlo Ancelotti, stjóri Chel-
sea, eftir leikinn og hann sagði líka
að Frank Lampard yrði áfram víta-
skytta liðsins.
„Stundum gerast óvæntir hlutir
og ég bjóst ekki við að Frank myndi
klikka á vítinu,“ sagði Mark Hughes,
stjóri City, og hrósaði markverði
sínum. „Við byrjuðum eins illa og
við gátum með því að fá á okkur
þetta ólukkumark í byrjun en það
eru ekki mörg lið sem geta komið til
baka á móti Chelsea. Það eitt sýnir
sterkan karakter og getu þessa liðs,“
sagði Hughes en hans menn eru að
breytast í mikla áhrifavalda í topp-
baráttunni enda búnir að ná í sjö stig
á móti stóru liðunum á þessu tíma-
bili. City er búið að vinna Chelsea
og Arsenal og gera jafntefli við
Liverpool.
Sir Alex Ferguson
lenti í miklum
vandræðum með
varnarlínu sína á
móti West Ham á
Upton Park en það
hafði engin áhrif á
liðið, sem vann 4-0
sigur. Paul Scholes
skoraði fyrsta markið í
uppbótartíma fyrri hálf-
leiks og Darron Gibson,
Antonio Valencia og Wayne Roon-
ey bættu síðan við mörkum í þeim
síðari.
„Evra hlýtur að vera minnsti
miðvörður í heimi en hann les leik-
inn vel og er fljótur og áræðinn,“
sagði Ferguson eftir leik en Evra
kláraði leikinn í miðri vörninni þar
sem Rio Ferdinand var meiddur,
Nemanja Vidic var veikur, Gary
Neville tognaði í fyrri hálf-
eik og Wes Brown meiddist
í þeim síðari. Þegar Wes
Brown meiddist í seinni
hálfleik varð Ferguson að
færa Patrice Evra í mið-
vörð við hliðina
á Carrick og
Ryan Giggs niður í vinstri bak-
vörð. Miðjumaðurinn Darren
Fletcher spilaði síðan hægri bak-
vörð allan leikinn.
Liverpool missti bæði Aston
Villa og Manchester City upp fyrir
sig í töflunni eftir að hafa aðeins
náð markalausu jafntefli á móti
Blackburn í 500. leik Stevens Gerr-
ard fyrir félagið.
Arsenal komst aftur á sigur-
braut með 2-0 sigri á Stoke þar sem
Andrey Arshavin átti flottan leik;
skoraði eitt, lagði upp annað fyrir
Aaron Ramsay og fiskaði víti sem
Cesc Fabregas lét Thomas Søren-
sen verja frá sér.
Tottenham mistókst að ná aftur
3. sætinu af Arsenal þegar liðið
missti niður tveggja marka forskot
á síðustu tólf mínútum. Jermain
Defoe gat tryggt Tottenham sigur-
inn í uppbótartíma en lét Tim How-
ard verja frá sér vítaspyrnu.
ooj@frettabladid.is
sport@frettabladid.is
Fyrirtæki á Höfuðborgar svæðinu
og Akureyri.
Bjóðum upp á örugga og hraða sendingar þjónustu
fyrir jólin. Pakkar, bögglar og nafnamerkt blöð.
Nánari upplýsingar veiti r Pósthúsið
í síma 585-8300 eða
á posthusid.is
Helena Sverrisdóttir er áfram í stóru hlutverki hjá TCU í bandaríska
háskólaboltanum. TCU tapaði óvænt á móti Minnesota á móti á
Bahamaeyjum á dögunum og tapið fór mjög illa á Jeff Mittie, þjálfara
liðsins. Hann gerði Helenu að blóraböggli.
„Leikurinn gegn Minnesota var bara hreint út sagt hræði-
legur. Það gekk ekkert upp hjá mér né liðinu,” sagði Helena,
sem var með 3 stig. „Ég og TK, sem erum fyrirliðarnir hérna,
vorum „leystar af störfum” í Kansas-leiknum, og tveir nýliðar
settir í það hlutverk þann daginn. Það var kannski mesta
„wake-up call” sem ég hef fengið. Mittie hefur mikla
trú á mér, og hann kann alveg á mig, það virkar
ekkert endilega að öskra á mig, frekar að ná inn á
mig andlega,” segir Helena, sem var líka tekin út úr
byrjunarliðinu. „Það var mjög skrýtið þar sem ég hef
verið í byrjunarliðinu hérna í öll skiptin nema tvö.
Ég ber fullkomið traust til Mittie þjálfara og ég veit
að þetta var rétt í stöðunni. Ég set liðið númer eitt. Þó svo að
ég hafi kannski verið ósátt með þetta lét ég engan vita af því,
heldur kom bara af bekknum og reyndi að gera mitt besta. Við
spiluðum síðan við Kansas, sem er án vafa eitt besta lið sem ég hef
spilað við, og unnum þær,” sagði Helena.
Helena fannst aðgerðir þjálfarans ekki hafa verið ósanngjarnar. „Ég
vil verða betri, ég vil fá alla þá hjálp sem ég mögulega get til þess að
ná sem lengst. Ein af ástæðum þess að ég ber svona mikla virðingu
fyrir honum er að engin fær neitt auðvelt, hann ýtir öllum áfram
og ögrar manni á hverjum degi. Mér fannst ég eiga þetta skilið, ég
spilaði ekki vel gegn Minnesota og eftir að horfa á vídeó af þeim
leik skil ég Mittie hundrað prósent,” sagði Helena, sem stefnir
á að vinna Mountain West deildina með TCU og komast
í úrslitakeppnina. Helena er með góða heimsókn þessa
dagana því foreldrar hennar eru komnir út. „Það verður
frábært að fá þau. Þau hafa alltaf verið til staðar, og ég
tala við þau nánast daglega í gegnum skype eða síma,
en það verður gott að fá alvöru knús. Pabbi hefur alltaf
eitthvað gott að segja um körfuboltahlið leiksins og
mamma er besta klappstýra sem finnst. Sama hvernig
fer er hún alltaf til staðar til að peppa mig upp,” segir
Helena að lokum.
HELENA SVERRISDÓTTIR: ÞURFTI AÐ ÞOLA SÉRSTAKAR REFSINGAR ÞJÁLFARANS EFTIR EINN SLAKAN LEIK
Mamma er besta klappstýran sem finnst
> Ólafur Ingi samdi við SønderjyskE
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmiðjumaður og fyrrum
leikmaður sænska liðsins Helsingborg, hefur gert
þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið
SønderjyskE en þetta var tilkynnt um helgina.
SønderjyskE-liðið hélt upp á komu hans
með því að vinna 2-0 heimasigur á Aalborg
BK en sigurinn kom því upp um tvö sæti
og í 8. sæti deildarinnar. „Við erum mjög
stoltir yfir því að Ólafur skuli hafa valið
SønderjyskE framyfir önnur lið,“ sagði
Jacob Gaxe Gregersen, Íþróttamála-
stjóri SønderjyskE, á heimasíðu
félagsins.
Enska úrvalsdeildin
ARSENAL-STOKE CITY 2-0
1-0 Andrei Arshavin (25.), 2-0 Aaron Ramsey
(78.).
ASTON VILLA-HULL CITY 3-0
1-0 Richard Dunne (12.), 2-0 James Milner (28.),
3-0 John Carew, víti (87.).
MANCHESTER CITY-CHELSEA 2-1
0-1 Sjálfsmark (8.), 1-1 Emmanuel Adebayor
(36.), 2-1 Carlos Tevez (55.).
PORTSMOUTH-BURNLEY 2-0
1-0 Hermann Hreiðarsson (64.), 2-0 Aruna
Dindane (83.).
WEST HAM-MANCHESTER UNITED 0-4
0-1 Paul Scholes (45.), 0-2 Darron Gibson (60.),
0-3 Antonio Valencia (70.), 0-4 Wayne Rooney
(71.).
WIGAN ATHLETIC - BIRMINGHAM CITY 2-3
1-0 Charles N‘Zogbia (32.), 1-1 Sebastian Larsson
(60.), 1-2 Christian Bene tez (65.), 1-3 Sebastian
Larsson (71.), 2-3 Jordi Gomez (88.).
WOLVES-BOLTON 2-1
1-0 Jody Craddock (2.), 2-0 Nenad Milijai¡ (62.),
2-1 Johan Elmander (78.). Grétar Rafn Steinsson
lék allan leikinn með Bolton.
FULHAM-SUNDERLAND 1-0
1-0 Bobby Zamora (7.)
EVERTON-TOTTENHAM 2-2
1-0 Jermain Defoe (47.), 2-0 Michael Dawson
(59.), 2-1 Louis Saha (78.), 2-2 Tim Cahill (86.)
STAÐAN Í DEILDINNI:
Chelsea 15 12 0 3 37-10 36
Man.United 15 11 1 3 34-13 34
Arsenal 14 9 1 4 38-18 28
Tottenham 15 8 3 4 35-21 27
Aston Villa 15 7 5 3 25-14 26
Man. City 14 6 7 1 26-18 25
Liverpool 15 7 3 5 31-20 24
Fulham 15 6 4 5 19-16 22
Birmingham 15 6 3 6 15-16 21
Sunderland 15 6 2 7 21-21 20
Stoke City 15 5 5 5 13-17 20
Blackburn 15 5 3 7 16-28 18
Burnley 15 5 2 8 19-33 17
Wigan Athletic 15 5 2 8 17-34 17
Everton 15 4 4 7 19-27 16
Hull City 16 4 4 8 17-34 16
West Ham 15 3 5 7 24-30 14
Wolves 15 3 4 8 14-28 13
Bolton 14 3 3 8 17-29 12
Portsmouth 15 3 1 11 13-23 10
MARKAHÆSTIR:
Jermain Defoe, Tottenham 12
Wayne Rooney Manchester United 11
Didier Drogba, Chelsea 11
Fernando Torres, Liverpool 10
Darren Bent, Sunderland 9
Louis Saha, Everton 9
ÚRSLITN Í ENSKA Grannagreiði City-liðsins
Manchester United minnkaði forskot Chelsea í tvö stig um helgina þökk sé 2-1
sigri Manchester City á Chelsea þar sem Shay Given var hetjan. United vann 4-0
sigur á West Ham og Liverpool datt niður í 7. sæti eftir markalaust jafntefli.
HETJA LEIKSINS Shay Given sést hér búinn að verja vítaspyrnu frá Chelsea-
manninum Frank Lampard sjö mínútum fyrir leikslok. MYND/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson
var allt í öllu þegar Portsmouth
vann 2-0 sigur á Burnley á Fratt-
on Park í gríðarlega mikilvæg-
um leik í baráttu liðsins á botni
deildar innar.
„Það er fullt af stigum eftir í
pottinum,“ sagði Hermann, sem
skoraði fyrra mark Portsmouth
og fiskaði einnig víti í fyrri hálf-
leik sem nýttist ekki.
„Þetta var ekki víti. Ég var
að bíða eftir sparkinu sem kom
aldrei. Þetta var samt ekki dýfa
því það er ekki það sem ég stend
fyrir,“ viðurkenndi Hermann,
sem hefur staðið í launakrísu
Portsmouth fyrir hönd leikmanna
liðsins. „Allir leikmenn liðsins
hafa staðið saman í þessari erfiðu
stöðu og það hefur enginn verið
að kvarta. Þetta hefur kannski
bara þjappað hópnum saman,“
sagði Hermann. - óój
Mikilvægur sigur Portsmouth:
Hermann allt í
öllu í sigurleik
MIKILVÆGUR Hermann Hreiðarsson fór
fyrir liði Portsmouth. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo sýndi
á sér tvær ólíkar hliðar í 4-2 sigri
Real Madrid á Almeria í spænsku
úrvalsdeildinni um helgina.
Ronaldo var lykilmaðurinn á
bak við endurkomu Real, sem
lenti 1-2 undir í leiknum, en hann
lét einnig reka sig út af í lok
leiks fyrir að sparka í leikmann
Almeria sem hafði ögrað honum.
Spænsku fjölmiðlarnir voru fljót-
ir að líkja honum við hina frægu
sögupersónu R.L. Stevenson, Dr.
Jekyll og Hr. Hyde.
Ronaldo fór í gegnum allan
skalann í leiknum, hann skoraði,
lagði upp mark, fiskaði víti,
klikkaði á víti, fékk gult fyrir að
fagna treyjulaus og fékk síðan
rautt spjald.
„Þetta voru ósjálfráð viðbrögð
en ég veit að ég gerði mistök.
Ég er bara mannlegur. Ég hef
beðið félaga mína í liðinu um að
fyrirgefa mér,“ sagði Ronaldo,
sem verður í leikbanni á móti Val-
encia um næstu helgi. - óój
Cristiano Ronaldo hjá Real:
Líkt við Dr. Jek-
yll og Hr. Hyde
SVEKKTUR Cristiano Ronaldo fagnaði
ekki marki Real sem kom eftir mis-
heppnaða vítaspyrnu hans. MYND/AFP
SIGURMARKIÐ Carlos Tevez
fagnar hér marki sínu.
NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Valskonur náðu þriggja
stiga forskoti í N1-deild kvenna
um helgina eftir 39 marka sigur,
52-13, á nýliðum Víkings í Vík-
inni. Valsliðið nýtti sér það að
Íslandsmeistarar Stjörnunnar
spila ekki næst fyrr en á nýju
ári þar sem Florentina Stanciu
er að keppa með Rúmeníu á HM
í Kína.
Línumennirnir og varnar-
tröllin Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir og
Hildigunnur Einars-
dóttir fengu að njóta
sín í leiknum og brutu
báðar tíu marka múrinn. Anna
Úrsúla skoraði 12 mörk úr 13
skotum og Hildigunnur var með
10 mörk úr 13 skotum.
Hafnarfjarðarliðin FH og
Haukar unnu bæði góða úti-
sigra á sama tíma. FH vann 39-
30 sigur á KA/Þór fyrir norðan á
sama tíma og Haukar unnu 34-25
sigur á HK í Digranesi.
FH-ingurinn Ragnhildur
Rósa Guðmundsdóttir hélt
áfram að spila frábærlega
með FH og skoraði 11
mörk í sigrinum á KA/
Þór. Þrátt fyrir tap
tókst HK-liðinu þó að
halda Haukakonunni
Hönnu Guðrúnu Stefánsdóttur
í 7 mörkum en hún hafði skorað
14,7 mörk að meðtali í þremur
leikjum á undan þessum. - óój
Topplið Vals í N1-deild kvenna í handbolta:
Þriggja stiga forskot
12 MÖRK Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN