Fréttablaðið - 07.12.2009, Qupperneq 50
38 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
Eimskipsbikar karla
FH-Haukar 37-38 (18-15)
Mörk FH (skot): Bjarni Fritzson 9/6 (12), Ásbjörn
Friðriksson 8 (13), Ólafur Guðmundsson 6 (12),
Jón Heiðar Gunnarsson 4 (4), Örn Ingi Bjarkason
4 (7), Ólafur Gústafsson 3 (8), Hermann Ragnar
Björnsson 1 (1), Benedikt Reynir Kristinsson 1
(2), Sigurgeir Árni Ægisson 1 (2).
Varin skot: Pálmar Pétursson 4 (11/3) 36%.
Daníel Andrésson 16/1 (27/3) 59%
Hraðaupphlaup: 7 (Jón Heiðar 2, Ólafur Guðm.
2, Bjarni Fritzson, Sigurgeir, Ólafur Gústafsson)
Fiskuð víti: 5 (Jón Heiðar 2, Ólafur Guðm, Örn
Ingi, Hermann Ragnar)
Utan vallar: 12 min.
Mörk Hauka (skot): Sigurbergur Sveinsson 10/2
(22), Björgvin Hólmgeirsson 6 (17), Guðmundur
Árni Ólafsson 6/4 (6), Einar Örn Jónsson 5 (6),
Pétur Pálsson 4 (6), Freyr Brynjarsson 4 (7), Elías
Már Halldórsson 3 (3).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 16 (35/4)
46%. Aron Rafn Eðvarðsson 1.
Hraðaupphlaup: 4 (Freyr Brynjarsson 3, Stefán)
Fiskuð víti: 7 (Pétur 3, Björgvin, Einar Örn, Elías,
Freyr). Utan vallar: 10 min.
Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og Gísli Hlynur
Jóhansson, misstu tökin á leiknum oft á tíðum.
Selfoss-HK 18-25
Markahæstir: Atli Kristinsson 7, Helgi Héðinsson
3 - Ólafur Víðir Ólafsspon 9/3, Már Þórarinsson 3,
Ragnar Hjaltested 3, Valdimar Þórsson 3, Hákon
Bridde 3.
Subway-bikar karla
Skallagrímur-Fjölnir 63-84
Stigahæstir: Silver Laku 20, Hafþór Ingi Gunnar
soin 17, Konrad Tota 14 - Chris Smith 25, Magni
Hafsteinsson 16 (11 frák.), Tómas Tómasson 14,
Ægir Þór Steinarsson 12 (10 frák., 11 stoðs.).
Snæfell-Hamar 130-75
Stigahæstir: Sean Burton 55 (hitti úr 16 af 20
3ja stiga skotum), Jón Ólafur Jónsson 15, Hlynur
Bæringsson 12, Sigurður Þorvaldsson 12 - Andre
Dabney 29, Svavar Páll Pálsson 12.
KFÍ-ÍR 86-93
Stigahæstir: Pance Ilievski 29, Craig Schoen 18
(9 stoðs.) - Hreggviður Magnússon 23, Nemanja
Sobvic 22, Ólafur Þórisson 14, Steinar Arason 12.
Valur-Keflavík 90-100
Stigahæstir: Byron Davis 22, Hörður Hreiðarsson
17 - Gunnar Einarsson 16, Gunnar Stefánsson
16, Hörður Axel Vilhjálmsson 15, Þröstur Leó
Jóhannsson 15.
Hrunamenn-Njarðvík 55-107
Stigahæstir: Mate Dalmay 20, Sigurður Sig
urjónsson 14 - Kristján Rúnar Sigurðsson 20,
Guiðmundur Jónsson 19, Hjörtur Hrafn Einarsson
15, Jóhann Árni Ólafsson 14.
Breiðablik-IBV 102-58
Stigahæstir: Sæmundur Oddsson 27, Arnar
Pæetursson 15, Þorsteinn Gunnlaugsson 11
- Kristján Tómasson 24, Baldvin Johnsen 19.
Grindavík-Ármann 132-76
Páll Axel Vilbergsson 28, Guðlaugur Eyjólfsson
18, Darrell Flake 17 - John Davis 31.
Laugdælir-Tindastóll 72-88
Lið í 8 liða úrslitum: Grindavík, Njarðvík, Keflavík,
Breiðablik, Tindastóll, Snæfell, ÍR og Fjölnir.
Subway-bikar kvenna
KR-Hamar 64-74 (30-28)
Stig KR: Jenny Pfieffer-Finora 18, Signý
Hermannsdóttir 14 (20 frák.), Guðrún Gróa Þor
steinsdóttir 9, Margrér Kara Sturludóttir 8, Hildur
Sigurðardóttir 6 (8 stoðs.), Unnur Tara Jónsdóttir
6, Helga Einarsdóttir 3.
Stig Hamars: Sigrún Ámundadóttir 18, Guð
björg Sverrisdóttir 17 (10 frák.), Fanney Lind
Guðmundsdóttir 13, Koren Schram 13, Kristrún
Sigurjónsdóttir 9, Sóley Guðgeirsdóttir 3, Hafrún
Hálfdánardóttir 1.
Keflavík-Grindavík 70-61 (39-33)
Stigahæstar: Kristi Smith 20, Birna Valgarðs
dóttir 19 (10 frák.) , Bryndís Guðmundsdóttir 15,
Svava Ósk Stefánsdóttir 9 - Michele DeVault 16,
Jovana Lilja Stefánsdóttir 12, Íris Sverrisdóttir 10.
Haukar-Valur 68-53 (32-30)
Stigahæstar: Heather Ezell 25, Heiðrún Ösp
Hauksdóttir 18 - Birna Eiríksdóttir 16, Hrund
Jóhannsdóttir 14, Þórunn Bjarnadóttir 12.
Skallagrímur-Fjölnir 49-54 (23-25)
Stigahæstar: Íris Gunnarsdóttir 17, Sigríður Dóra
Sigurgeirsdóttir 11 - Bergdís Ragnarsdóttir 15,
Gréta María Grétarsdóttir 10.
Laugdælir-Stjarnan 52-46
Keflavík b-Þór Ak. 57-87
Lið í 8 liða úrslitum: Snæfell (sat hjá) Keflavík,
Haukar, Þór Akureyri, Laugdælir, Fjölnir og Hamar
Grindavík b og Njarðvík mætast í kvöld.
N1-deild kvenna
Víkingur-Valur 13-52 (4-26)
Markahæstar: Guðríður Ósk Jónsdóttir 5, Kristín
Jónsdóttir 2, María Karlsdóttir 2 - Anna Úrsula
Guðmundsdóttir 12, Hildigunnur Einarsdóttir 10,
Íris Ásta Pétursdóttir 8, Arndís María Erlings
dóttir 6, Ágústa Edda Björnsdóttir 4, Soffía Rut
Gísladóttir 4.
HK-Haukar 24-34 (10-18)
Markahæstar: Elín Anna Baldursdóttir 10, Gerður
Arinbjarnar 4 - Hanna Guðrún Stefánsdóttir 7,
Ramune Pekarskyte 6, Nína Arnfinnsdóttir 4.
KA/Þór-FH 30-39 (15-18)
Markahæstar: Emma Havin Davoody 8, Martha
Hermansdóttir 8, Arna Valgerður Erlingsdóttir
6- Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 11, Birna Íris
Helgadóttir 7, Berglind Ó Björgvinsdóttir 6, Birna
Berg Haraldsdóttir 5, Arnheiður Guðmundsd 4.
STAÐA EFSTU LIÐA
Valur 10 8 2 0 320-179 18
Stjarnan 9 7 1 1 294-198 15
Fram 9 7 1 1 261-190 15
Haukar 10 7 0 3 300-247 14
FH 8 4 0 4 220-229 8
ÚRSLITIN
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen byrjaði á varamannabekkn-
um en kom inn á í hálfleik í 1-3
tapi Mónakó fyrir Valenciennes í
frönsku úrvalsdeildinni.
Mónakó jafnaði leikinn fimm
mínútum eftir að Eiður kom inn
á völlinn en Valenciennes skor-
aði síðan tvö mörk á síðustu fimm
mínútunum. Eiður Smári fékk
fimm í einkunn fyrir frammi-
stöðu sína hjá Ĺ Equipe, sem er
með bestu einkunnum sem hann
hefur fengið á tímabilinu. - óój
Franski fótboltinn um helgina:
Eiður Smári
inn á í hálfleik
FÓTBOLTI Gunnar Heiðar Þorvalds-
son sagði í samtali við Íþrótta-
deild Stöðvar 2 í gær að níutíu
prósenta líkur væru á að hann
yrði leikmaður Reading á næstu
dögum. Þjálfari Reading vill
fá hann strax en Danirnir hafa
verið tregir til að leyfa honum að
fara.
„Ég held að þeir séu að mýkjast
núna,“ sagði Gunnar Heiðar og
bætti við: „Ég átti gott spjall við
þjálfarann. Hann er með stórt
hlutverk fyrir mig í liðinu. Eigum
við ekki að segja að það séu átta-
tíu til níutíu prósenta líkur á að ég
fari til Reading. Ég vona að það
gerist eftir helgi,“ sagði Gunnar
Heiðar við Stöð 2 í gærkvöldi. - óój
Gunnar Heiðar Þorvaldsson:
Líklega á leið-
inni til Reading
GUNNAR HEIÐAR Heillaði Reading-
menn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Haukar tryggðu sér sæti
í undanúrslit Eimskips bikarsins í
handbolta eftir sigur á FH í Kapla-
krika í gær en tvær framlenging-
ar þurfti til þess að fá úrslit. FH-
ingar unnu bikarleik liðanna í
fyrra, einnig í átta liða úrslitum,
en nú náðu nágrannar þeirra að
hefna.
FH-ingar mættu brjálaðir til
leiks, spiluðu hraðan sóknarleik
og börðust allir sem einn eins og
ljón í vörninni. Gestirnir voru
hins vegar lengur í gang en eftir
tíu mínútna leik var loksins kvikn-
að á lærisveinum Arons Kristjáns-
sonar.
Heimamenn voru líklegri
allan fyrri hálf leikinn og
var staðan 18-15 í hálfleik.
Seinni hálf leikur einkenndist
áfram af mikill hörku og sér-
staklega góðum varnarleik hjá
báðum liðum. Birkir Ívar minnti
á sig með góðum vörslum og kom
Haukum aftur inn í leikinn. Mark-
vörður FH-inga Daníel Andrésson
átti stórleik og varði stórkostlega
oft á tíðum. Einar Örn Jónsson
tryggði Haukum framlengingu í
blálokin og staðan eftir venjuleg-
an leiktíma, 29-29.
Framlengingin var stórkostleg
skemmtun. Markverðirnir héldu
áfram að verja vel og bæði lið voru
mjög vel samstillt í vörn og sókn. Í
lok framlengingarinnar fengu FH-
ingar víti og var það Bjarni Fritz-
son sem steig á punktinn; hann
skoraði örugglega og leikurinn
var á leið í tvíframlengingu. Þegar
hér var komið sögu voru allar dyr
í Kaplakrika opnar, fólk rennandi
blautt af svita á pöllunum að öskra
örmagna leikmenn sinna liða
áfram. Stórkostleg stemning.
Daníel Andrésson hélt upptækn-
um hætti og varði vel. Birkir Ívar
sömuleiðis hinum megin á vell-
inum. Útlit var fyrir að Haukar
væru bunir að klára leikinn
þegar að haukamaðurinn Freyr
Brynjarsson stal boltanum af FH-
ingum eftir klaufalega sendingu
og skoraði úr hraðaupphlaupi.
Bjarni Fritzson var ekki á sama
máli og kom fljúgandi úr horn-
inu í næstu sókn og hélt sínum
mönnum í leiknum. Sigurbergur
Sveinsson og Freyr Brynjarsson
kláruðu svo þennan ævintýra-
lega bardaga hafnfirsku liðanna
með sínu markinu hvor. FH-ingar
minnkuðu muninn í eitt mark áður
en flautan gall en á þeirri stundu
voru Haukamenn nánast allir
komnir upp í stúku að fagna með
áhorfendum sínum.
„Gríðarleg vonbrigði en stoltur
af strákunum. Þeir lögðu allt í
þetta og það er mín skoðun að þeir
hefðu átt skilið að vinna þennan
leik.“ sagði Einar Andri Einars-
son, þjálfari FH, eftir leik.
Aron Kristjánsson var eðlilega
mjög ánægður og er nú kominn
með lið sitt í undanúrslit bikars-
ins. „Þetta var frábær sigur og
við erum virkilega ánægðir með
að vera komnir áfram í bikarn-
um. Töpuðum hérna í fyrra með
einu marki í spennuleik eins og
fór fram hér í dag þannig það að
var gott að hefna fyrir þetta núna,“
sagði Aron Kristjánsson.
HK tryggði sér einnig sæti í
undan úrslitunum með 25-18 sigri
á 1. deildarliði Selfoss í gær. Ólaf-
ur Víðir Ólafsson skoraði 9 mörk
fyrir HK í leiknum.
Hinir tveir leikirnir fara fram
í kvöld; Valur tekur á móti Fram í
Vodafone-höllinni og Víkingur fær
Gróttu í heimsókn í Víkina. Báðir
leikirnir hefjast klukkan 19. 30.
- rog, óój
Haukar áfram eftir magnaðan leik
Haukar gengu brosandi út úr Krikanum eftir 38-37 sigur í tvíframlengdum leik á móti FH í átta liða
úrslitum Eimskipsbikarsins í gær. Einar Örn Jónsson tryggði Haukum framlengingu fjórum sekúndum
fyrir leikslok eftir að Haukarnir voru mest komnir fimm mörkum undir í seinni hálfleiknum.
BROSANDI HEIM ÚR KRIKANUM Sigurbergur Sveinsson og félagar í Haukum unnu sigur í miklum spennu- og baráttuleik í gær.
Hér sést Sigurbergur brosa eftir átök við FH-inga í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Kvennalið KR tap-
aði sínum fyrsta leik á tímabil-
inu þegar Hamar frá Hveragerði
náði að leggja það að velli í Vestur-
bænum. Lokatölurnar urðu 64-74
í jöfnum og fjörugum leik í sex-
tán liða úrslitum Subway-bikars-
ins. Þarna voru tvö efstu liðin
á Íslandsmótinu að mætast og
var ljóst að sigurliðið í leiknum
yrði sigurstranglegast í þessari
bikarkeppni.
KR-konur voru búnar að vinna
alla þrettán leiki tímabilsins, tíu
í deildinni, tvo í Powerade-bik-
arnum og einn í Meistarakeppn-
inni. Flesta leikina hafði KR-liðið
unnið mjög örugglega en liðið er
með sex stiga forskot í deildinni.
„Það er náttúrlega mikið svekk-
elsi að detta út úr bikarnum strax
í fyrstu umferð. Vörnin náði sér
aldrei almennilega á strik en
hún hefur verið okkar aðals-
merki. Fyrir mér er það skýr-
ingin á þessu,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari KR, eftir
leik.
Bæði lið hittu illa í fyrsta leik-
hlutanum en staðan var jöfn 9-
9 að honum loknum. Áfram hélt
svo jafnræðið og var KR með
tveggja stiga forystu í hálfleik,
30-28. Sóknarlega voru bæði lið
nokkuð frá sínu besta en staðan
var hnífjöfn fyrir síðasta leik-
hlutann, 48-48.
Heimakonur byrjuðu lokafjórð-
unginn mjög illa á meðan gestirn-
ir frá Hveragerði voru í miklum
ham og náðu að skora 14 stig í röð.
Það var þessi kafli í leiknum sem
gerði útslagið og Vesturbæjar-
konum mistókst að vinna þetta
upp á þeim tíma sem eftir var.
„KR er með meiriháttar gott
lið og það var komin mikil pressa
á það eftir að hafa unnið svona
marga leiki í röð. Það var plan-
ið okkar að halda leiknum jöfnum
og koma sterkar inn í fjórða leik-
hluta. Það gekk upp,“ sagði Ágúst
Björgvinsson, þjálfari Hamars.
„Þær voru í stöðu sem þær
eru ekki vanar í vetur. Þær hafa
venjulega verið búnar að gera út
um leikina fyrir fjórða leikhluta.
Á móti höfum við verið að klára
okkar leiki í síðasta leikhlutan-
um og sú reynsla hjálpaði okkur
mikið í dag. Það er ekkert annað
en meiriháttar að ná að vinna
toppliðið á heimavelli þess,“ sagði
Ágúst.
Keflavík vann 70-61 sigur á
Grindavík í hinu uppgjöri efstu
liðanna í Subway-bikar kvenna.
Birna Valgarðsdóttir átti mjög
góðan leik fyrir Keflavík og þá
sérstaklega í þriðja leikhlutanum
þegar Keflavík náði upp góðu for-
skoti. Grindavíkurliðið var búið
að vinna Keflavík tvisvar í vetur
en nú náðu þær keflvísku að svara
fyrir sig. - egm, óój
KR-konur töpuðu sínum fyrsta leik og fyrsta titli á tímabilinu í DHL-Höllinni í gær:
Planið okkar var að koma
sterkar inn í fjórða leikhluta
GÓÐ GEGN GÖMLU FÉLÖGUNUM Sigrún Ámundadóttir átti góðan dag hjá Hamri
og sést hér skora 2 af 18 stigum sínum framhjá KR-ingunum Signýju Hermanns-
dóttur og Unni Töru Jónsdóttur (14). FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN