Fréttablaðið - 07.12.2009, Blaðsíða 54
42 7. desember 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Ég nýt þess að sjá hann
blómstra í þessu því hann var
búinn að segja mér að hann
ætlaði að lifa af tónlist. Mér
finnst hann flytja fallegan boð-
skap vináttu og virðingar.“
Magnea Kristjana Guðmundsdóttir er
móðir Halldórs Gunnars Pálssonar,
forsprakka Fjallabræðra. Kórinn syngur
Bítlalagið All You Need Is Love í dag,
en það er hluti af risastóru alþjóðlegu
verkefni.
Duncan McKnight, söngvari hljóm-
sveitarinnar The Virgin Tongues,
er á batavegi eftir fall ofan af þaki
fjölbýlishúss á Skólavörðustíg 1.
maí síðastliðinn. Duncan höfuð-
kúpubrotnaði og hlaut innvortis
meiðsli en er allur að koma til.
Hann hefur eignast nýja kærustu
en það er hjúkrunarkonan sem
hjálpaði honum við endurhæf-
ingu þegar hann lá á Landspít-
alanum. „Hún vann í sumar sem
hjúkrunar kona. Ég hitti hana og
við spjölluðum saman. Hún hjálp-
aði mér að borða og kenndi mér
að bursta tennurnar á nýjan leik,“
segir Duncan, sem ætti því að vera
í góðum höndum í framtíðinni.
Hann segir að batann ganga
hægt en örugglega. Hann eigi erf-
itt með gang auk þess sem taland-
inn sé breyttur. Andlega hliðin er
þó í góðu lagi þrátt fyrir að líf hans
hafi tekið miklum stakkaskiptum.
„Ég er ekki þunglyndur eða neitt
slíkt. Aðalatriðið er að ég er ekki
eins kærulaus núna. Fyrir slysið
drakk ég vodka og gerði það sem
mér datt í hug, eins og rokkarar
gera. Núna er ég miklu skynsam-
ari og varkárari.“
Hvernig vildi slysið eiginlega
til? „Ég var í þakherbergi sem er
fyrir utan íbúð vinar míns. Ég lok-
aðist út úr íbúðinni, fór aftur inn í
herbergið, skreið út um gluggann
og reyndi að komast inn um hinn
gluggann. Ætli ég hafi ekki tekið
skref á vitlausan stað.“
Þrátt fyrir að hafa ekki náð
fullri heilsu ætlar Duncan að
halda sína fyrstu tónleika í lang-
an tíma á Kaffibarnum 29. desem-
ber. Með honum á sviðinu verða
íslenskir vinir hans úr tónlistar-
geiranum því félagar hans úr The
Virgin Tongues eru fluttir aftur
til Berlínar þar sem hljómsveitin
var með bækistöðvar fyrir slys-
ið. „Ég stefni á að fara til Berlín-
ar í mars og byrja aftur að spila
með The Virgin Tongues. En mig
langar að halda þessa tónleika
hérna á Íslandi til að venjast því að
vera uppi á sviði á nýjan leik. Þetta
verður kannski ekki fullkomið hjá
mér en mér er alveg sama. Mig
langar bara að gera þetta.“
Duncan er einnig með hlið-
arverkefni í gangi með eigin
lögum sem nefnist The Flaming
Banshees. Áhugasamir geta fest
kaup á nýrri vínylplötu hljómsveit-
arinnar í versluninni 12 Tónum
og styrkt Duncan í leiðinni, enda
hefur fjárhagur hans verið erfið-
ur undanfarna mánuði.
freyr@frettabladid.is
DUNCAN MCKNIGHT: Á BATAVEGI EFTIR LÍFSHÆTTULEGT SLYS
Nældi sér í hjúkrunarkonu
sem kom honum til heilsu
KÆRUSTUPAR Duncan McKnight ásamt kærustu sinni Ylfu Úlfsdóttur Grönvold. Hún
hjúkraði honum þegar hann lá á Landspítalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Mér fannst mikilvægt að gera eitthvað sem
myndi skapa skemmtilega stemningu því nei-
kvæðnin er búin að vera of mikil síðustu mán-
uði,“ segir Auður Lind Aðalsteinsdóttir, sem
stendur fyrir verkefninu Brosum saman. Hún
hefur látið framleiða 10.000 endurskinsmerki
með mynd af broskarli sem dóttir hennar
Hanna María Petersdóttir, fjögurra ára, teikn-
aði. Merkin verða til sölu frá og með deginum í
dag í verslunum Hagkaupa, Nóatúns, Krónunn-
ar, Fjarðarkaupa og Cintamani og verða seld
á 500 krónur við kassann. Allur ágóðinn mun
renna óskiptur til Fjölskylduhjálpar.
„Mér finnst ástandið vera verra en ég hafði
búist við og finn svolítið fyrir því að þessi sam-
staða meðal Íslendinga hefur gleymst. Mér
fannst ég þurfa að finna eitthvað sem myndi
vekja smá samstöðu, væri einfalt og hefði nota-
gildi. Þegar ég hafði ákveðið að gera endurskins-
merki fór af stað umfjöllun um að að vöntun
væri á að fólk notaði endurskinsmerki, sem eru
nauðsynleg nú í skammdeginu, svo það kom sér
vel,“ útskýrir hún og segir fyrirtækin sem hún
leitaði til hafa fjármagnað verkefnið. „Sjálf er
ég með lítið á milli handanna en vil samt gera
eitthvað,“ segir Auður, sem stundar meistara-
nám í fjármálum fyrirtækja í HR.
„Ég lít ekki á þetta verkefni sem góðverk
heldur er ég frekar að gera þetta til þess að
við, fólkið, getum staðið saman og hjálpað góðu
starfi Fjölskylduhjálparinnar. Þetta er nokkurs
konar samstarf okkar allra og ég kom aðeins
með hugmyndina og gef fólki tækifæri að taka
þátt með mér,“ segir Auður. „Annað hvort flopp-
ar þetta eða verður mjög vinsælt,“ bætir hún
við og vonast til að selja öll merkin innan viku.
- ag
Dóttirin hannaði endurskinsmerki
LÁRÉTT
2. plat, 6. óhreinindi, 8. spíra, 9.
gljúfur, 11. æst, 12. yfirstéttar, 14. létt
hlaup, 16. innan, 17. frjó, 18. frestur,
20. frá, 21. innyfla.
LÓÐRÉTT
1. etja, 3. í röð, 4. ofbjóða, 5. mæli-
eining, 7. höfuðstöðvar, 10. draup, 13.
hrós, 15. bæla niður, 16. erlendis, 19.
skammstöfun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gabb, 6. im, 8. ála, 9. gil,
11. ör, 12. aðals, 14. skokk, 16. út, 17.
fræ, 18. töf, 20. af, 21. iðra.
LÓÐRÉTT: 1. siga, 3. aá, 4. blöskra,
5. bar, 7. miðstöð, 10. lak, 13. lof, 15.
kæfa, 16. úti, 19. fr.
Íslenskir bókaútgefendur borguðu
rúmar tvær milljónir fyrir þær
hundrað bækur sem sendar voru
og gátu fengið tilnefningu til hinna
íslensku bókmenntaverðlauna. 44
bækur voru sendar inn í flokk
fræðirita og bóka almenns efnis
en 56 í fagurfræðibókaflokkinn,
þar af tólf barnabækur. Bókaútgef-
endur þurfa að reiða fram 25 þús-
und krónur fyrir hverja bók nema
barnabækur en tilnefningagjaldið
fyrir þær er fimmtán þúsund krón-
ur. Kristján Bjarki Jónasson, for-
maður Félags bókaútgefenda, segir
gjaldið vera það sama og það var
fyrir tuttugu árum. „Og það hefur
ekki verið mikil stemning fyrir
því að gjaldinu verði breytt. Ég
tel það hins vegar æskilegt því þá
gæti verðlaunaupphæðin hækkað.
Gjöldin í dag ná varla upp í kostn-
aðinn,“ segir Kristján en verð-
launaupphæðin í ár er 750
þúsund krónur í hvorum
flokki.
Kristján segir að á vel-
megunarárum fjármála-
lífsins hafi komið til
tals, bæði innan og
utan bókaheimsins,
að leggja þessi
gjöld einfald-
lega niður, jafn-
vel verðlaun-
in sjálf, og fá
bara styrki úr
digrum menn-
ingarsjóð-
um fjármála-
fyrirtækjanna. Í dag séu menn
hins vegar sáttir við að hafa ekki
farið þá leið. „Verðlaunin fjár-
magna sig sjálf, það er enginn
bakhjarl eða sjóður, þau eru
algjörlega óháð. Og mér finnst
eins og bókmenntaheimurinn
sé almennt ánægðari núna en
oft áður með verðlaunin og
hvernig staðið er að þeim,“
segir Kristján. - fgg
Útgefendur borguðu tvær milljónir
ALMENN SÁTT Formaður
Félags bókaútgefenda
segir meiri sátt ríkja um
verðlaunin núna en oft
áður enda hafi ekki mörg
menningarverðlaun staðið af
sér tímans tönn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1. Arnar Birkir Hálfdánarson.
2. Hún heitir Mjöll og er bolabítur.
Þær voru 2.747, sem er 77,5
prósenta fækkun frá sama
tímabili í fyrra.
3.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Dagur rauða nefsins
var haldinn hátíðleg-
ur á föstudag. Meira
en 100 milljónir
söfnuðust í átakinu
og útsending Stöðv-
ar 2 þótti afar
vel heppnuð.
Sveppi og
Auddi
voru með
gríninnslög
sem vöktu
athygli á vatnsskortinum í Afríku
með því að hella vatni inn á
útvalda. Á meðal þeirra sem fengu
vatn inn á sig var Máni Pétursson,
útvarpsmaður á X-inu. Auddi hefur
væntanlega notið þess að hella inn
á hann þar sem hann er oftar en
ekki skotspónn Mána og Frosta í
þættinum Harmageddon á X-inu.
Og meira um dag
rauða nefsins.
Fjölmargir lögðu
söfnuninni lið
í símaverinu og
mátti meðal annars
sjá Jónsa í Sigur
Rós og Sigur-
jón Kjartans-
son. Þegar sá
síðarnefndi
fékk afhent-
an eldrauðan
bol til að klæðast í söfnunni vissi
hann ekki alveg hvert hann var að
fara, enda ekki þekktur fyrir litríkan
klæðnað. Hann lét sig þó hafa það,
enda málstaðurinn góður.
Útvarpskonan Margrét Erla
Maack gerði afar óheppileg mistök
í gær þegar hún tannburstaði
sig með vöðvaslakandi kreminu
Bengay rétt fyrir útsendingu. Hún
lét það ekki stöðva sig og var vopn-
uð servíettu þegar hún talaði við
þjóðina á Rás 2,
þar sem það
reyndist
henni
afar erfitt
að hefta
munnvatns-
flæðið úr
dofnum
munnin-
um. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
STYRKJA FJÖLSKYLDUHJÁLP Auður hefur látið framleiða
10.000 endurskinsmerki með mynd af broskarli sem
Hanna María, fjögurra ára dóttir hennar, teiknaði. Allur
ágóði af sölu merkjanna mun renna til Fjölskylduhjálpar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N