Vikan - 26.01.1961, Page 3
Biðstofuhreinlæti
Grímur ræðir um óhreinu blöðin á bið
stofunum í bréfi til Póstsins
leggjum þér að vera lesandi áfram og sjá
hvað setur.
Formúla fyrir metsölu
Kæri Póstur minn.
Segðu mér eitt i hreinskilni: Er nóg að vera
um eða innan við tvítugt og setjast niður og
skrifa skáldsögu? Verður það metsölubók?
Eva.
P. S. Hvernig er skriftin?
Ekki er ég alveg viss um það, en nokkrar
líkur virðast benda til þess. — Skriftin er
liðleg, en með óþarfa tilgerðarhnútum.
Bíladella
Kæra Vika!
Fyrir hvað standa stafirnir G.M.C. (á bila-
tegundinni) ? Það er strákur, sem segir að það
séu upphafsstafirnir i nafninu á eldra bróðir
hans Chevrolet, sem fann upp Chevrolet bílinn.
Er það ekki bara vitleysa? Maggi.
Jú, Maggi minn, það er alger vitleysa. G.M.
er skammstöfun á heiti verksmiðjunnar, sem
framleiðir m. a. Chevrolet, hún heitir
General Motors. C. stendur fyrir Car, sem
þýðir bíll. G.M.C. þýðir því bíll frá General
Motors.
Ráðdeild
Til Vikunnar, Reykjavík.
Mig langar til þess að mega segja lesendum
þínum smá viðreisnarsögu. Hún er um það,
hvernig fánýtt og furðulegt rusl er flutt inn til
landsins, án tillits til þurfta og gjaldeyriseyðslu.
Sem dæmi má taka, að skömmu fyrir jólin fór
kona mín út í búð, og spurði um verð á stífu
undirpilsi, sem hana vanhagaði um. Komið var
með laglegt pils, með svampi innst, tjulli utan
um og blúndu á neðri kanti. Pilsið var innflutt,
og verðið — 525 kr. !
Þar sem mín kona er nú með skynsamari kon-
um, hætti hún við að kaupa pilsið, en keypti sér
í staðinn svamp, tjull og blúndur. Svo settist
hún við saumavélina, og áður en langt um leið
var hún komin í reglulega fallegt, stíft undir-
pils. Efniskoslnaðurinn var tæpar 150 kr. vinnan
var 1—2 tímar. — Væri þetta ekki atvinnuvegur
fyrir nokkrar framtakssamar konur, að taka til
við sauin á svona löguðu og öðru, sem flutt er
inn fyrir rándýran gjaldeyri en hægt er að fá
efnið i fyrir mun minni gjaldeyri?
H. H.
\
Ég óska þér til hamingju með svona ráð-
deildarsama konu, og víst væri þetta athug-
andi. Við verðum að beita öllum tiltækum
ráðum til þess að spara gjaldeyri og auka
vinnuna í landinu — eða það er mitt álit.
Bjórinn á dagskrá
Mér finnst furðulegt, að nokkur maður skuli
láta sér detta í hug að vera á móti því að hér
verði farið að framleiða og selja sterkan bjór,
þegar hann á nú ekki einu sinni að vera nema
3,5%. Mér finnst það vera alveg eins og tóbaks-
einkasata ríkisins mætti selja mariuana og ó-
pium og þess háttar en mætti ekki selja síga-
rettur og píputóbak. Ég er alveg á sama máli
og Helgi Sæm í einhverri Vikunni ura daginn.
Með þeirri grein sýndi hann það, sem reyndar
mátti vera lýðnum ljóst áður, að hann er með
skynsamari körlum þessa lands.
B. Jór.
Egi er því að leyna, að ég er á sama máli,
kunningi. Grein Helga var góð. Mér hafa bor-
izt fleiri bréf um þetta málefni, og hafa þau
öll tekið sömu afstöðu. Hér á eftir fer annað,
sem er mjög líkt efnislega séð:
Meiri bjór
Pósturinn, Vikunni.
Mér þykir merkilegt, að það skuli þurfa langa
umhugsun og deilur til þess að leyfa okkur ís-
lendingum að brugga og drekka almennilegan
bjór, í staðinn fyrir þetta bragðlausa gutl, sem
okkur er skammtað eins og skítur úr hnefa. —
Ef bjórfrumvarpið fæst ekki í gegn, er ég viss
um að næsta skrefið í „framfaraátt" hjá þess-
um hérumbil úcdauðu bindindispostulum okkar
verður að banna apótekunum að selja aspirín!
T. K.
PRENTSMIÖJAN — SIMAU: 35320, 35321, 35322, 35323
tnh
VIKAN 3