Vikan


Vikan - 26.01.1961, Blaðsíða 4

Vikan - 26.01.1961, Blaðsíða 4
BRODDBORGARAR á listsýningu Það er listsýning í Þjóðminjasafninu, sem vekur talsverða atliygli: Yfir- litssýning á verkum Svavars Guðnasonar. Þessi sýning er búin að veya uppi hjá Dönum og þeir hafa farið um hana lofsamlegum orðum. Það var ekki sizt vegna þess, að margir voru forvitnir að sjá verk þessa ágæta brautryðjanda í íslenzkri nútímalist. Við opnunina voru einungis boðs- gestir: Framámenn í þjóðfélaginu, fyrirmenn og heldrikonur. Fyrst settust menn frammi á pallinum og hlýddu á Gylfa menntamálaráðherra undirbúa jarðveginn, áður en gengið væri í sjálfan helgidóminn. Hann bað menn hafa það hugfast að meta list eftir áhrifunum, sem þær hefðu en ekki því, hvort þær sýndu eitthvað ákveðið. Helgi Sæmundsson, formaður menntamálaráðs hélt líka tölu og talaði um aðdraganda sýningarinnar. Að því búnu voru slagbrandar dregnir frá durum og forsetinn gekk fyrstur inn í fylgd með listamanninum. Menn virtust sýna listinni sæmilegan áhuga og gættu að heiti og verði myndanna í sýningarskránni. En það var hér eins og oftast við opnun málverkasýninga: Menn höfðu enn meiri áhuga hver á öðrum og stundum finnst manni það vera aukaatriði að sjá listina. Menn tóku yfirleitt í einn streng um það að lxalda fram ágæti myndanna; liefur þeim kannski fundist það öruggara þar sem Danir höfðu haft ágæt orð um þær. Eldri maður, sem hingað til hefur verið svarinn andstæðingur abstraktmynda sagði: „Þetta hlýtur að vera gott, hann Svavar er svo ágætur maður.“ Það var mikil litagleði víðast og sumstaðar skar í augun. Alls staðar var einhver firnakraftur á ferðinni, en margar myndir voru heldur liráar. Samt liristi enginn höfuðið, hneykslaður eins og stund- um sést, þegar minni spámenn dirfast að hengja upp. Menn sögðu aðeins: „Þetta hlýtur að eiga að vera svona, — hann Svavar veit, hvað hann er að gera.“ Halldór Kiljan Laxness skrifaði um list Svavars í sýningarskrána og kemst þar svo að orði: „Þegar Svavar Guðnason kom heirn til íslands eftir lánga fjarveru að loknu stríði 1945, og efndi hér til sýníngar á list sinni, þá var sá skiln- íngur á myndgerð sem bjó í verkum hans mörgum listskoðara þeim mun nýstárlegri sem menníngarlegt samband við meginlandið hafði verið ó- , greiðara um skeið. Margir liethneigðir íslendíngar höfðu ekki gert sér grein fyrir nýum skilgreiníngum grundvallaratriða sem þá voru efst á baugi í miðstöðvum heimslistarinnar, og því vanbúnir að játa réttmæti slíkrar gerbyltingar í afstöðu listamannsins til efnis og forms sem sýníng Svavars bar vitni. Menn vöruðu sig ekki á að myndlistamaður gæti gert hinni sýnilegu veröld önnur skil en leitast við að samlíkja myndina ytra útliti hlutanna. Hér var þess umfram alt ekki freistað að flytja til lér- eftsins á misjafnlega sannfróðan — eða skrumskældan — hátt þá mynd sem augað sá af hlutnum, heldur leitast við að tjá þá opinberun, þann „sannleika“, sem hinn sýnilegi heimur varpaði á sálartjald listamannsins. Því einsog í öllum straumhvarfastefnum í menníngu var list þessari um nýa vitrun — eða að minnsta kosti breytíngu sjónarmiðsins — að ræða. Hér var innra lífa listamannsins uppmálað sem andsvar við sýnilegum veruleika heimsins. Flestir menn voru tilbúnir af göfuglyndi sínu að fyrir- gefa listamanni jafnvel þó honum mistækist greypilega í því að líkja eftir ytra útliti hlutar, þeir virtu við hann tilraun hans svo fremi þeir gætu þekkt hlutinn, eða þó ekki væri nema einhvern part af honum, í myndinni. Menn sögðu hrifnir: hann nær þessu alveg skínandi vel; ellegar menn sögðu í umburðarlyndum, fyrirgefandi tóni: það er mesta furða hvað hann nær því. En þá fór nú mörgum ekki að verða um sel þegar upp skaut myndlist sem vitandi vits hafnaði allri hlutrænni eftirlíkingu. Sumir sögðu: þetta er ekki annað en tómt klessuverk. Slík viðbrögð við nýmælúm í list eru fjarri því að vera sérkenni íslendínga. Það var algeingt í Ameriku þegar ólistrænir menn virtu fyrir sér hin jötunnefldu för eftir pent- skúfinn í málverkum Soulages, sem jafnvel einginn listamaður annar getur leikið eftir, þá sögðu þeir: Þetta gæti ég líka ef ég væri nógu heimskur og hefði nógu stóran busta. Þó voru þeir furðu margir bæði í hópi listamanna og listskoðara sem mátu myndsköpun Svavars Guðnasonar að verðleikum þegar á fyrstu sýn- ingu hans hér 1945. Þeir fundu að takmark hennar var ekki eftirlíking náttúrunnar, heldur reikníngsskil við náttúruna þar sem hinn ytri veru- leiki er brotinn undir vald hugarins og hvert far pentskúfsins hlítir hnit- miðaðri takmörkun samfara meinlætafullum aga jafnt í viðtöku áhrifa sem í því að tjá sig. Það var ekki útí bláinn sem gagnrýnendur Kaup- mannahafnarblaðanna um daginn lýstu listsköpun Svavars Guðnasonar sem ástríðufullu fagnaðarópi lífsins bundnu miskunnarlausum sjálfsaga í forminu. Að þú skulir geta heingt upp annan eins ófögnuð, sagði úng stúlka haustið eftir að Svavar kom í landið, og átti við eina af myndum hans sem húsbóndinn í húsinu hafði eignast: ég varast að líta uppá þennan vegg þegar ég geing um herbergið! Um vorið sagði hún: ég veit ekki fyr en ég er farin að standa kyr og horfa í leiðslu á þessa mynd eftir hann Svavar þegar ég geing um herbergið. Svei mér ef ég er ekki orðin leið á hinum myndunum.“ Halldór Kiljan gleðst með glöðum. Hann er hér með Árna Kristjáns- syni píanóleikara — til vinstri — og Gunnlaugi Briem ráðuneytis- stjóra, til hægri. Nú liggur vel á mér. — Vilhjálmur Þ. Gíslason ósamt Sigrúnu Ögmundsdóttur fyrrverandi útvarpsþul og núverandi konu Árna Tryggvasonar, hæstaréttardómara. Jónas Jónsson sannfærir Bjartmar frá Sandi. Til hægri sést hinn nýkjörni rektor Háskólans, Ármann Snævarr. 4 VtKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.