Vikan


Vikan - 26.01.1961, Síða 8

Vikan - 26.01.1961, Síða 8
Þessari verðlaunakeppni lýkur í þessu blaði og nú er mál til komið að slá utan um getraunaseðlana og senda þá til Vikunnar í pósthólf 149. Við tökum það fram að gefnu tilefni, að lausnir verða því aðeins teknar gildar, að þær séu skrifaðar á getraunaseðil úr blaðinu sjálfu. Við byrjum bráðlega á annarri stórri verðlaunakeppni og um það verður nánar sagt í næsta blaði, Við viljum enn einu sinni minna á, að hér er gullið tækifæri til þess að eignast góðan grip — átján þúsund króna verðmæti er ekki tekið upp úr steinunum nú á dögum. Getraunin hefur \erið létt og ætti ekki að þvælast svo mjög fyrir lesendum Vikunnar. Ef til vill er það ögn torráðnara að finna nafnið hér að neðan, en við trúum ekki, að ykkur verði skotaskuld úr því. Það er sjálfsagt hægt að finna mörg kvenmannsnöfn út úr þeim, ef vel er leitað, meðal annarra eitt, sem er tíu stafir, en nafnið, sem við viljum fá er ellefu stafa orð og þá eiga að vera tveir bókstafir umfram. Hán Maut ferðioA ttl New york Á tilsettum tíma var farið yfir lausnir þær, er bárust í verð- launagetraun Vikunnar, þeirri er New York-ferðinni var heitið að launum. Margar launsir bárust að vanda, en það þvældist fyrir mönnum að svara rétt og var heldur meira af röngum lausn- um en áður í verðlaunagetraunum Vikunnar. Fulltrúi Loftleiða við athöfnina var Erna Hjaltalín, flugfreyja og dró hún úr rétt- um lausnum og vottur fyrir hönd Vikunnar var Loftur Guðmunds- son. Upp kom hlutur Fanneyjar Sigurjónsdóttur, Framnesvegi 27, Reykjavík. Hún er húsmóðir og tveggja barna móðir, 26 ára að aldri, ættuð úr Reykjavík. Fanney er gift Ólafi Magnússyni, framkvæmdastjóra. Hún var að vonum himinlifandi yfir sigrinum og kvaðst hlakka mjög til fararinnar, sem farin verður um 15. apríl eins og áður hefur verið talað um. Hún bjóst við að bjóða bónda sínum með í förina. B VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.