Vikan - 26.01.1961, Blaðsíða 19
<] Jóhannes XXIII. páfi sagðist ætla að vera „góður
hirðir allra“ daginn sem hann var krýndur páfi. Fyr-
irrennari hans á stóli heilags Péturs, Píus páfi XII.
var menntamaður og slunginn stjórnmálamaður.
Jóhannes aftur á móti er sonur leiguliða og er miklu
frekar páfi alþýðunnar. Föðurlegur og þolinmóður,
þolinn og gæddur ríkri kímnigáfu, sem ekki var hægt
“S'-að segja um Píus XII- Jóhannes leitar sambands við
fólkið og fólkið leitar til hans. Hér er mynd, sem
tekin var á Péturstorgi í Vatikaninu. Fólkið hrópar
„Evviva il Papa“ og býr sig undir blessun hins heil-
aga föðurs. Nunnur þessar bíða andaktugar eftir
páfanum.
Pal Nixon hafði tekið fullan þátt í
kosningabaráttu manns síns og var þvi
me'ra en lítið breytt um það er úrslitin
urðu kunn. Hún var búin að gera sitt
til þess að maðurinn hennar yrði næsti
forseti Bandaríkjanna og hún frúin í
Hvíta húsinu. En svo fór sem fór. John
Kennedy var kosinn forseti og þegar
Nixon varð það ljóst, að hann hafði tapað,
óskaði hann hinum nýja forseta til ham-
ingju og þakkaði góða baráttu. Er þau
hjónin komu fram i útvarpi að loknum
kosningum hló Nixon, en frúin grét.
Gáfurnar og fegurðin komu því miður að litlu
haldi hjá Miller og Monroe. Nú eru þau skilin
og fór verr en á horfðist. En allir eru sammála
um það, að þetta er ekki venjulegt hneykslisskiln-
aðarmál, eins og þau gerast í Hollywood. Enda
hefur ekki tekizt að blanda þriðja aðila í málið,
þótt kjaftakerlingarnar hafa þótzt vita eitthvað.
Hún er fjölmenn fjölskyldan hans Fernandels, eða hvað
finnst ykkur? Einir fjörutíu bræður. Til allrar ham-
ingju eru þetta aðeins smátilfæringar í Ijósmyndatækni.
Hann tekur sig vel út, það er greindarsvipur á manninum.
Pierre Lagaillarde er einn mannanna, sem gcrði uppreisn í Alsir út af fyrirætlunum
de Gaulle, að veita Serkjum sjálfstæði. Nú biður hann dóms fyrir tiltækið og hjá hon-
um situr kona hans, Babette. Frökkum er heitt í hamsi út af þessu máli og skiptast
að sjálfsögðu i tvo hópa um hvað skuli við manninn gert.
VIKAN