Vikan


Vikan - 09.03.1961, Síða 5

Vikan - 09.03.1961, Síða 5
inn í aftursætinu. Hún grúfði andlit- ið í höndum sér og æpti. — Já, en læknir, sjáið þér alls ekki manninn þarna í aftursætinu? Læknirinn leit í annað sinn aftur í vagninn. Síðan sneri hann sér að henni, greip hönd hennar og þrýsti hana hughreystandi. — Kæra frú Dóra, sagði hann vin- gjarnlega, — þér eruð ekki með sjálfri yður, og það skil ég mætavel. Engin móðir getur tekið á móti slík- um fréttum um litlu dóttur sína, án þess að það reyni á taugarnar. En við verðum að koma okkur af stað til að hjálpa Önnu. Setjizt hérna í mitt sæti, og hvílið yður. Eg skal taka við stjórninni. — Þér sjáið hann þá alls ekki, læknir? sagði hún hásri röddu. — Þetta sagði ég yður, frú, heyrð- ist í skikkjuklædda manninum I aft- ursætinu. — Sendiboðar dauðans eru aldrei sýnilegir dauðlegum mönnum. Hún tók í handlegg læknisins. — Heyrðuð þér ekki, Marteinn. Heyrðuð þér ekki, hvað hann sagði rétt í þessu? Læknirinn hristi höfuðið rauna- mæddur, greip um axlir hennar og ýtti henni gætilega frá stýrinu. ■— Það er bezt, að ég aki, frú. Þér eruð allt of þreytt og taugaspennt. Hvílið yður nú! Bíilinn þaut af stað út í myrkrið, og hún þvingaði sig til að halla sér aftur í sætinu og vera róleg. — Það er þá ég. sem er orðin vit- laus, hugsaði hún, — band-sjóðandi- vitlaus, og ætti eiginlega að liggja á sjúkrahúsi. — Gerið svo vel, — nýtt tilfelli af skynvillu. — Hún hló móðursýkislega og sneri afskræmdu andlitinu að unga manninum í aftur- sætinu, en hann vafði kápunni þéttar um sig og brosti dauflega. — Þér eruð alls ekki vitlausari en lögregluþjónninn og læknirinn, sagði hann, eins og hann hefði séð á svip hennar, hvaða hugsanir ásóttu hana.ust hægt yfir dimman himininn, og •— Um yður hefur aðeins eitt gerzt, og það er, að þér getið á einhvern yfirnáttúrlegan hátt séð og heyrt það, sem aldrei hefur komið inn fyrir mannlegt sjónarsvið í sögu lífsins. — En annars, bætti hann við, þegar honum varð litið dökkum augunum á sjálflýsandi klukkuna í mælaborðinu, — frú! Segið Marteini lækni að auka hraðann. Við eigum að vera komin að gatnamótum Bosby og Halsted eftir 4 mínútur. Eg á erindi þangað. Bifhjólsmaður. — Við ökum ekki þá leið, sagði hún taugaóstyrk — Við förum bein- ustu leið eftir aðalgötunni. — Hvað? sagði Marteinn læknir og sneri sér spyrjandi að henni. — Ég var ekki að tala við yður, læknir. Ég var að tala við manninn í aftursætinu, sagði hún. — Hann segir, að ... Læknirinn gaut. augunum til henn- ar áhyggjufullur. — Nú verðið þér að hvíla yður, frú Dóra, sagði hann blíðlega. — Og æsið sjálfa yður ekki upp með ástæðulausum ótta. Ég full- vissa yður um, að við erum alveg ein í bilnum, þér og ég. Verið þér nú skynsöm, og snúið yður fram í sætinu, og reynið að hvíla yður. Hann er læknir. Hann veit betur en ég, hugsaði hún. Hún hnipraði sig saman i sætinu og reyndi af öll- um mætti að beina athyglinni að veg- inum og reyna að hvilast. Hún sá Ijóstýru úti á veginum, sem færðist óðum nær, og eftir augnablik gat hún lesið á viðvörunarskilti, sem stóð undir ljósinu: Akið varlega! — VEGAGERÐ. Ak- ið hliðargötuna til Bosby og Halsted. — Hver þremillinn, sagði læknir- inn. — Þetta tefur okkur um 5—6 mínútur, og vegurinn er skrambi háll. En þrátt fyrir það jók hann hraðann. Það var stytt upp, og skýin dreifð- við og við brauzt máninn fram úr skýjunum og kastaði draugalegri birtu á gljáandi veginn. Hún sat hreyfingarlaus og starði út um bílrúðuna, þegar vegamótin til Bosby og Halsted komu i ljós. Og hún kom auga á hóp manna, sem stóðu úti við vegbrúnina og stumr- uðu yfir manni í ferðafötum, auð- sjáanlega hjólreiðamanni, sem hafði misst stjórn á hjóli sínu á hálkunni. Alveg rétt! Þarna kom hjólið i ljós, hálft á kafi i skurðinum hinum megin við veginn. Marteinn læknir! — Hún þreif í handlegg hans og horfði óttaslegn- um augum á hann. — Nú verðið þér að trúa mér, læknir. Ég er alveg með fullu viti, en þessi mað.ur ... En Marteinn læknir heyrði ekki til hennar. Hann hafði einnig komið auga á manninn á veginum. — Hér hefur orðið slys, sagði hann fljótmæltur og hægði ferðina. — Þessi aumingja maður þarfnast lækn- ishjálpar, og við tefjum aðeins nokk- ur augnablik. Marteinn lagði vagninum fáum metrum frá bifhjólinu, spánnýju og skærrauðu hjóli, sem virtist ekki hafa skemmzt hið minnsta við óhappið. Læknirinn greip í flýti aðra tösku sína og flýtti sér í áttina til hins slasaða manns, og í sama mund hvarf maðurinn i svörtu skikkjunni úr aft- ursætinu og fylgdi lækninum eftir með löngum, þungum skrefum. Hún sat sem steini lostin og starði út um rúðuna. Hún efaðist ekki hið minnsta lengur. Ungi, svartklæddi maðurinn var það, sem hann sagðist vera, ■— nefnilega Dauðinn! Þarna úti á upplýstum veginum kraup læknirinn og reyndi eftir veik- um mætti að glæða hið litla, flökt- andi Ijós lífsins, — en þarna., með frakkann flaksandi draugaiega í vindinum, beygði Dauðinn sig yfir manninn og slökkti neistann. Á sama augabragði datt henni Anna Í hug, og hún skildi Þegar, að hvorki Marteinn né hinn duglegasti læknir gæti bjargað lifi litlu stúlk- unnar hennar, ef hún kæmi um leið rúeð Dauðann til hennar. I einu vetfangi þaut hún út úr bílnum, og rödd hennar varð að rámu ópi, þegar hún kallaði: — Marteinn! Marteinn læknir! Flýtið þér yður! — Hún klöngraðist aftur inn i bilinn og settist við stýrið og ók hægt af stað. Læknirinn, sem varla hafði sleppt taki sínu af hinum látna manni, tók á rás á eftir bílnum, og á and- liti hans gat hún séð, að nú var hann ekki í neinum vafa um, að hún væri orðin vitlaus. — Stökkvið upp í, læknir, hrópaði hún og hratt afturhurðinni upp. Marteinn læknir henti sér inn í bíl- inn og lenti með þungum skelli á gólfinu. Hún jók samstundis ferðina og steig benzíngjafann í botn. En Dauðinn stóð eftir á veginum með frakkalöfin blaktandi og útréttar hendur. Eftir 15 mínútna akstur ók hún upp traðirnar og inn um hliðið hjá Markúsi bónda. Marteinn læknir greip töskur sínar í flýti, en hún sá, að svitinn draup af enni hans, svo að hún ályktaði, að síðasta spölinn hefði hann setið í aftursætinu dauðskelk- aður um, að hún æki bílnum út af. — Ó! Það er gott, að þér eruð komin, frú Dóra. Markús bóndi kom hlaupandi eftir hlaðinu. — Flýtið þér yður. Anna liggur uppi á iofti. Hún hljóp upp stigann og stóð augnabliki síðar við rúm önnu. Hún fann til sársauka fyrir hjartanu, þeg- ar hún sá litlu stúlkuna sína, sem lyfti sóttheitu, grátbólgnu andlitinu frá blautum koddanum og kallaði: — Hjálpaðu mér, mamma! —Svo heyrði Framhald á bls. 27. VIKAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.