Vikan


Vikan - 09.03.1961, Page 15

Vikan - 09.03.1961, Page 15
 kvöldið stökk hann upp þrepin og hringdi kröftuglega bjöllunni. Þegar hún opnaði, brá honum heldur en ekki í brún. Hún bauð honum inn fyrir, en varaðist að horfast í augu við hann. Hann fór með henni inn í stofu og vissi hreint ekki, livað hann átti að segja eða gera. Þótt hún sneri sér undan, gat hann ekki gleymt rjóðum kinnum hennar og brúnum, tár- votum augum. Hann varð leiður, þvi að hann gat aðeins hugsað um það, að eitthvað amaði að. Hann vorkenndi henni, því að honum hafði farið að þykja vænt um hana þessa mánuði, sem þau höfðu þekkzt, ......sem vin og félaga vitaskuld. —• Fáðu þér sæti, sagði hún dálítið ergilega, við þurfum rétt að skála í vínglasi. •—• Þegar hann sá, að hún sneri sér undan og reyndi að þurrka tárin með svunt- unni, gat hann ekki á sér setið. í hendingskasti var hann kominn til hennar og vafði hana örmum. — Elsku litla Inga, segðu mér, hvað er að. Ég þoli ekki að sjá þig hrygga, .... þvi að ég elska þig, stundi hann klaufalega. Þeim skildist ekki á þessu andar- taki, að þau væru elskendurnir úr kvikmyndinni, — því að hún leit á hann tárvotum augum og varir þeirra mættust í löngum kossi. Því næst leit hún undan og lijúfraði sig að honum, og hann strauk á henni hárið. Er það satt, muldraði liún loks- ins, og hvers vegna gaztu allt i einu sagt það? — Það voru tár þín, svaraði hann biíðlega. Þau stóðst ég ekki. Mér varð allt í einu ljóst, að þú ert raunveruleg kona með tilfinn- ingar, — sú sem ég hef alltaf þráð án þess að vita það. Segðu mér, livað amar að þér. Kannski get ég eitthvað gert.... — Nei, nei, sagði hún dálitið hræðslukennt og færði sig frá hon- um, það færðu aldrei að vita. Spurðu eklci meir. Það var hvort sem er ekkert. Hún sneri sér frá honum og hellti í glösin. Nú skul- um við skála hvort fyrir öðru, sagði hún glaðlega, um leið og hún rétti honum glasið, og svo vildi ég miklu frekar fara út að borða. Framhald á bls. 35. vinna. — Að lokum vildi ég segja, að grein þessi finnst mér stúlkunni til mestu háðungar, og ætti hún ekki að bera slíka sýndar- og yfir- borðsmennsku fyrir almenning. Og það er hvers manns að vona, að stéttaskipting ryðji sér eigi rúms hér, því að það væri merki aftur- farar á þroskabraut íslendinga. Með fyrirfram þökk, verzlunarskólanemandi. Ég get ekki annað en komið þessu á fram- færi fyrir þig, og þess má einnig geta, að margir munu þér sammála. Sýnir það bezt fjöldi bréfa, sem Póstinum hefur borizt um sama efni. Annað svipað fer hér á eftir, og hefur Pósturinn ekki frekar við þau að bæta. Meira um stéttaskiptinguna. 21. jair. 1961. Við skrifum vegna þess, að við erum af lægstu stétt þjóðfélagsins, sem menntaskóla- fólk virðist fyrirlíta, og af því að við erum ekki sammála menntaskólastúlkunni, sem viðtal er við í Vikunni uni stéttarskiptingu unga fólksins. Hvers konar áhugamál hefur menntaskóla- fólkið, úr þvi að áhugamálin skipta unga fólk- inu í liærri og lægri stéttir? Að hvaða leyti er stéttaskipting sjálfsögð og eðlileg? Við berum alls ekki neina virðingu fyrir menntaskólafólki og teljum okkur ekki vera neitt af lægri stétt en það og því síður meira í lágkúrunni og lubbaskapnum, þó að við vinn- um fyrir okkar lífsviðurværi, en það hangi á skólabekk. | , Þessi menntaskólastúlka hlýtur að vera mjögÁy .óaðlaðandi, löng og mjó, með gleraugu, og biú’-fflp ur engin önnur áhugamál en heimspeki og stéttaskiptingu og getur því ekki samlagazt öðru ungu fólki, sem hefur venjuleg áhugamál. Við ósltum eindregið, að þetta bréf verði birt sem fyrst og að menntaskólastúlkan standi fyr- ir máli sínu. Virðingarfyllst, þrjár millistéttarstúlkur. Bókmenntasmekkur þjóSarinnar. Ég hef oft sent þér smáfyrirspurnir og ávallt fengið einhverja viðunandi -úrlausn. Nú er ég með eina enn. Hvernig má ráða, að íslenzkur bókmennta- smekkur sé, þar sem bækur eins og Skyggna konan og Ást á rauðu Ijósi voru metsölubækur okkar fyrir jólin? Það virðist litið vera hægt að ráða af þessu nema neikvætt, þar sem fjöld- inn allur af efnismiklum og vel skrifuðum bók- um var engu siður auglýstur og útgefinn en jiessar tvær. Einnig vil ég bæta því við, að hin fyrrnefnda er bæði sundnrlaus og illa stiluð. Með kærri kveðju, S. Á. Mér finnst það skylda okkar að taka vel á móti nýjum höfundum. Hvort þeir hljóta viðurkenningu almennings, verður ekki ráð- ið af einni bók. Bókum eins og Skyggna kon- an er yfirleitt vel tekið af okkur íslending- um, því að fæsturn er þessi dulargáfa gefin, en allir forvitnir um hana. Við erum ekki svo langt frá hjátrúnni þrátt fýrir allt og allt, og efni sem þetta hlúir að þeim gróðri. Þess vegna vil ég svara þér því, að ég er fullviss um, að margir hafa lesið hana sér til gamans. Um bókmenntagildi má lengi deila og ekki mitt að svara því. Hins vegar vil ég benda þér á, að þetta efni er meira einkamál viðkomandi konu, sem við ættum að virða og láta liggja dómlaust, þó að margt virðist ósagt. Reykjavík 12.1. ‘61. Kæra Vika. Viltu nú ekki vera svo góð og segja okkur, hvernig orðatiltækið „að kæra sig kollóttan“ varð til. Með fyrirfram þökk. Tveir hyrndir. Ekki veit ég, hvort einhver sögn liggur að baki þessu orðatiltæki, en trúlegast þykir mér, að þetta hafi orðið til vegna ljóðstaf- anna, — „kæra“ og „kollóttan“. Slfkt er fólk fljótt að grípa og muna. En ef einhver les- andi væri mér fróðari, mundi ég þiggja hjálp hans. Almenningsnáðhús. Blesugróf, 19.1. ‘61. Halló Póstur- Það, sem ég er að velta vöngum yfir, er ástandið í okkar kæra höfuðstað. Auðvitað er alltaf hægt að kvarta, en um eitt get ég ekki stillt mig, og er það vegna þess, hve oft ég rek mig á þá vöntun, þ. e. a. s. skortur á al- menningsnáðhúsum bæjarbúa. Ég kann ekki alls kostar við að skjótast inn i port til að létta á mér, þó að okkur karlmönnunum sé það hægðarleikur miðað við blessað kven- fólkið, enda er það enginn menningarbragur. Þetta salerni, sem staðsett er í Bankastræti 0, kemur mörgum að gagni, en maður er ekki alltaf á þeim slóðum, þegar mest liggur við. Láttu mig heyra, hvað þú herma kannt. Vertu sæll, Lási. Ég get sagt þér það, Lási minn, að á fyrsta fundi heilbrigðismálanefndar Reykjavíkur var vandamál þitt tekið fyrir, svo að ein- hverrar úrlausnar má vænta, þó að tillögur um það hafi ekki enn verið gerðar kunnar. VjKANÍ 15

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.