Vikan


Vikan - 09.03.1961, Blaðsíða 25

Vikan - 09.03.1961, Blaðsíða 25
LAUGAVEGI 19 Hrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Stjörnurnar eru þér einstaklega hagstæðar i þessari viku. Leggðu ótrauður út í það fyrirtæki, sem þú hefur haft á prjónunum undanfarið. Þú finnur tryggan og góðan förunaut, og vertu þess minnugur í því sambandi, að tryggð og einlægni er meira virði til langframa en ytri glæsileiki. Farðu vel með heilsu þína, sérstaklega um helgina. NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Það verður rómantíkin, sem á hug þinn í vikunni. Bf til vill gætir þú orðið fyrir nokkrum vonbrigðum, ef þú ert þess ekki megnugur að taka mikilvæga ákvörðun. Ef þú ert á báðum áttum, skaltu ekki leita ráða annarra i þetta sinn, heldur yfirvega málið vandlega. Laugar- dagurinn virðist mjög hagstæður til allrar verzlunar. TviburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Þú verður í mjög góðu skipi í þessari viku, og þú skalt umfram allt ekki taka það nærri þér, þótt glaðlyndi þitt fari i taugarnar á nokkrum kunningjum þínum. Þetta er ekki annað en öfund. Á fimmtudag eða föstudag munt þú fá að glíma við vandamál, sem þú hefur glímt við áður — og þá árangurslaust. Reyndu að nota þér fengna reynslu. Þú átt von á skemmtilegri heimsókn. Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú virðist líta allt of miklum svartsýnisaugum á tilveruna þessa dagana — en sannleikurinn er samt sá, að þú þarft síður en svo nokkru að kviða. Vinur þinn vill verða þér að liði, og væri þér hjálp hans ómetanleg, en hætt er við að þér finnist það litillækkandi að leita hjálpar hans. Vikan verður ungu, ástföngnu fólki mjög hliðholl. LjónsmerkiÖ (24. júli—23. ág.): Þér munu gefast mun fleiri frístundir í þessari viku en fyrri viku, og reyndu nú að nota þér þær sem skyldi. Heima við verður samkomulagið víst ekki allt of gott, og væri þér þá hollast að taka enga afstöðu til mál- anna. Þú færð skemmtilega hugmynd í vikunni, en þér til sárra vonbrigða muntu komast að því, að þú varst ekki fyrstur til að fá þá hugmynd. Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): I þessari viku skaltu fara að öllu með gát hvað snertir kaup og sölu. Umfram allt skaltu varast að skrifa undir neitt, sem er bindandi. Ef þú ferð vel að vissri persónu, eru .líkur á því að Þú komist í stutta en afar skemmtilega ferð, líklega um helgina. Varaztu að falla í sömu gildru og einn kunningi þinn fyrir skemmstu. Þú gagnrýnir einmitt þennan veikleika kunningjans. Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Það skipast á skin og skúrir í vikunni, og reyndu nú að vera mað- ur til þess að meta það sem gott er og gleyma þvi sem ver fer. Einhver mun verða þér að liði, einmitt þegar þú þarfnast mest hjálpar. Það bíður þín skemmtilegt en erfitt verkefni. Líklega væri þér bezt að leita til vinkonu þinnar, því að í sameiningu verður ykkur mikið úr verki. Heillatala 8. DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þessi vika er eink- um mikilvæg fyrir kvenþjóðina. Fyrir karlmenn verður vikan heldur dauf og tilbreytingalítil. Eink- um skyldu karlmenn varast það glappaskot, sem þeim varð á fyrir nokkru. Konur fá gamla ósk sína uppfyllta að nokkru leyti, svo að vikan verður þeim mjög ánægjuleg. Þú kynnist mjög viðsjárverðum manni í vikunni. Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Þetta verður á- nægjurík og þægileg vika. Þú mun þurfa að taka mikilvæga ákvörðun, en eitt skaltu varast: að fær- ast of mikið í fang. Reyndu heldur að glíma við þau verkefni, sem þú sérð fyrir endann á. Þú færð ein- kennilega frét't um helgina, sem á eítir að valda þér miklum heilabrotum. Kvöldin verða mjög skemmtileg i vikunni, eink- um á mánudag og þriðjudag. Heillalitur rautt. GeitarmerkiÖ (22. des,—20. jan.): Þessi vika skiptir einkamál þín langmest. Þú munt kynnast manni eða konu, sem þú sættir þig alls ekki við í fyrstu, en við nánari kynningu muntu komast að þvi, að þessi persóna er verðugur félagi, svo að ekki sé meira sagt. Þú hefur verið allt of eigingjarn gagnvart einum vini þínum, og virðist hann vera farinn að fjarlægjast þig nokkuð. Það má alls ekki verða. Heillatala 4. VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. íeb.): Það er eitt- hvað eirðarleysi í þér þessa dagana, og þú virðist hafa allt á hornum sér. Sannleikurinn er sá, að þú mátt sjálfum þér um kenna. Meinið virðist vera það að þú hefur allt of lítið fyrir stafni. Eitthvert kvöldið ferð þú að líkindum í skemmtilegt samkvæmi, þar sem glatt verður á hjalla. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þú hefur ekki verið allskostar sáttur við lífið og tilveruna undan- farið, en i þessari viku mun eitthvað gerast, sem kemur þér einkar gott skap. Um helgina munt þú byrja að vinna að nýju verkefni, sem mun ganga mun betur en þú þorðir að gera þér vonir um. Farðu varlega með peninga í vikunni, því að innan skamms muntu þarfnast þeirra svo um munar. Heillatala 9.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.