Vikan - 09.03.1961, Page 33
Leiðbeiningar um frystingu
ávaxta.
Framhald af bls. 10.
Svo eru hér fáeinar uppskriftir.
SÓLBER, YLLIBER OG BLÁBER.
VAL: Frystið stór og þroskuð ber
með mjúku hýði og sæt á bragðið.
UNDIRBÚNINGUR: Þvoið berin
vel og þurrkið, um leið og þið fjar-
lægið stilka og óþroskuð ber.
ÓSÆT FRYSTING: Hún er bezt,
ef nota á í tertur og tebollur.
SYKURFRYSTING: Notið 40%
blöndu. Munið að fylla pakkann
ekki alveg. Lokið og frystið strax.
RIFSBER.
350 gr af þeim eru u. þ. b. hálf-
ur litri.
UNDIRBÚNINGUR: Þvoið þau í
köldu vatni, og látið renna af þeim.
Takið stillcana af.
ÓSÆT FRYSTING: Fullnóg, þá
búið þið til hlaup seinna á árinu.
SYKURFRYSTING: Setjið % úr
bolla af sykri í hvern litra af rifs-
berjum. Pakkið niður og frystið.
RABARBARI.
VAL: Bezt er að frysta dökk-
rauðan rabarbara, stinnan og
bragðgóðan.
UNDIRBÚNINGUR: Fjarlægið
blöðin, og þvoið stilkana. Skerið
þá niður i svona 2% cm langa bita.
ÓSÆT FRYSTING: Getur verið
ágæt.
S YKURFR Y STIN G: Notið 40%
blöndu. Lokið strax og frystið.
EPLASÓSA.
VAL: Sérhver tegund af eplum
gefur af sér góða sósu.
UNDIRBÚNINGUR: Afhýðið, tak-
ið fræhúsin úr, og skerið eplin í
stykki. Sjóðið svo, þangað lil að
stykkin eru orðin að mauki. Gerið
sætt eftir vild. Kælið, pakkið nið-
ur og frystið.
Ökuníðingar.
Framhald af bls. 17.
Peir hafa ekki lært að aka bil, fyrr
en jieir voru komnir á efri ár, og
telja ])að bæði öruggara og skyn-
samlegra að aka lúshægt og helzt
á miðju vegarins. Oftast gera þeir
sér enga grein fyrir þeirri hættu,
sem þeir valda, og þeim er ekki
heldur Iagið að taka tillit til ann-
arra fremur en rosknum mönnum
yfirleitt.
Rólegu ökuníðingarnir hafa ekki
til að bera það öryggi, sem nauð-
synlegt er í mikilli umferð. Það eru
þeii', sem gefa stefnuljós til hægri,
en Iieygja svo til vinstri. Allir sæmi-
legir öluimenn verða að vera á
varðbergi fyrir þeim og búast við
hverju, sem er.
Nýlega las ég í bandarisku blaði
grein uin þetta vandamál. Þar var
talið, að „sleðarnir" í umferðinni
væru ínun hættulegri hinum, sem
færu full-greitt. Þó ber þess að
geta, að þar er nálega eingöngu um
einstefnuakstur að ræða.
Ekki hef ég orðið var við það,
að lögreglan taki í lurginn á hinum
yfirlætislausu ökuniðingum, og yfir-
leitt cr aldrei minnzt á það, að þeir
séu til eða valdi neinni hættu.
Slysavarnafélagið brýnir fyrir
mönnum að „aka varlega og forð-
ast slysin“. Það er að vísu gott og
blessað. Ég er ekki að mæla með
hröðum akstri. En mér finnst, að
lögreglan ælti að brýna fyrir öku-
mönnum þá öryggisráðstöfun og
tillitssemi við náungann að aka með
þeim hraða, sem umferðin gengur,
og hvorki hægar né hraðar
Friðlaust geð,
Framhald af bls. 3.
En það tekur lengri tima að
breyta eðli manns. Þjóðfélag okkar
nú morar af fólki, sem reikar frið-
laust um, rótlaust í jarðvegi'sam-
félagsins, án markmiðs, stefnu og
lífstrúar. Förumaðurinn í nútíma-
samfélagi flýr sérhver mannleg
tengsl, um leið og hann grunar, að
í þeim felist skuldbinding.
Hin ytri skilyrði, sem friðleysi
hugans vex af, skortir ekki í sam-
félagi nútímans fremur en liðinna
alda. Viða raskast hin dulvituðu
tilfinningatengsl, sem sætta frels-
isþyrstan hug við takmarkanir og
skyldur, sem samfélagið leggur á
hann. Þá getur geigþrunginn grun-
ur vaknað snemma, að andstaðan
gegn kröfum samfélagsins sé eina
leiðin til frelsis. Með því hugarfari
taka börn og unglingar skróp og ráp
fram yfir skyldurækna skólasókn
og ástundun i námi, það gerir ungl-
inginn reikulan í stöðuvali sínu og
leyfir honum hvergi að tolla í starfi
til lengdar, fyrir táldrægni þess
svíkur foreldri barn sitt og maka.
Förumaður nútímans flakkar
ekki lengur á vegum úti. Hann
reikar um í samfélaginu, og leið
hans er oft furðulega fábreytt. Víð-
erni förumanna fyrr á tið eru hon-
um týnd og glötuð. Auðuulítill, eins
og forrerar hans, sviptist hann á
milli geðþóttafullrar sjálfræðisþrár
og samfélagshneigðar, og að lokum
ber hann ósjaldan vonarvöl í þeirri
upprunalegu merkingu, að hann
lifir á líknsemd þeirrar manngerð-
ar, sem hann fyrirleit vegna ráð-
deildar hennar og skyldurækni.
á
þér fannst gott að drekka úr
skónum hennar Lóu á Gamla-
árskvöld?
Fegurð hársins hefst með
/✓ ./ , /^ / ,/
Hversvegna? Vegna þess, að
með því að nota White Rain
verður hárið lifandi og blæfagurt.
Þessi silkimjúki vökvi er með
lokkandi ilmi, gerir hárið glitr-
andi, gefur því blæbrigði ... vek-
ur hina duldu fegurð þess. White
Rain er framleitt á þrennan mis-
munandi hátt til þess að fegra
sérhverja hárgerð — ein þeirra
hæfir einmitt yðar hári.
VUCAN 33