Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 13.07.1961, Qupperneq 4

Vikan - 13.07.1961, Qupperneq 4
Kaíró er tvískipt: Annars vegar er gamli borgarhlutinn með avafornum byggingum, austrænum spírum og hvolfþökum. Hinsvegar er nýtízkuborg með sambyggingum og háhýsum með vestrænu svipmóti. nnan úr myrkviðum Afríku rennur hin mikla móða Nil hægt til sjávar og kvíslast loks við ósana: Hún hefur skapað þarna frjósamt iandsvæði, þar sem nútímamenn hrærast í landi hinna fornu Faraóa. Þar sem áin íekur að kvíslast, stendur borgin Kairó. Hún er höfuðborg Egyptalands, stærsta horg Afríku, miðstöð arabískrar menningar, andleg miðstöð Múhameðstrúarmanna, nafn- toguð enn í dag sem fyrir þúsund árum. Níl er mjólkurmóðir Kaíró, blóðið í æðum borgarinnar, samgöngu- leið og eilífðarþráður, spunninn aftur úr grárri forneskju, sem tengir þessa fornu borg hinum nýja tíma. Móðan Níl, sem var forðum heilög á, er enn véfrétt Kairó. Við árósana blikar á Miðjarðarliaf. í suður- átt blasir við Afríka, myrk og dularfull. í austri og vestri taka við eyðimerkur, jörðin, sem gaf af sér hina j>rautseigu Araba. í borginni blandast áhrif frá Afríku, Arabiu og Múhameðslöndunum, og hrjúfir drættir frumheiðninnar fá þarna á sig nýja og mýkri mynd fyrir tilstilli evrópskrar siðmenningar. Allt sameinast þetta i hina furðu- legustu hlöndu. Mannlegt litskrúð borgarinnar fornu er óðum að hverfa fyrir einum föstum lit, sem skapast af samruna hinna ólíku þjóða og jjjóðflokka. Gróskan í Kaíró er hvarvetna sýnileg. Frá kollóttum Mokattam- hæðunum sést til pýramídanna í Gíza. Þeir birtast okkur sem fölar myndir í fjarska, umvafðar egypzkri hitamóðu. Þeir standa í út- jaðri eyðimerkurinnar, sem rofnar skyndilega, j>ar sem Níl flæðir gegnum auðnina. Þessi ævafornu mannvirki hafa yfir sér einhvern hrikalegan dularblæ. Fyrir mörgum árum stóðu þessi minnismerki lengst úti í auðninni ásamt Sfinxinni dulúðugu; nú eru pýramídarnir nánast í úthverfi borgarinnar, sem liægt og hægt liefur étið sig inn í eyðimerkursandinn. Þótt einkennilegt megi virðast, stinga þessi fornu mannvirki nær ekkert í stúf við umhverfið: einbýlishús, nætur- klúbba, gistihús og golfvelli. Við förum i strætisvagni til pýramidanna, — strætisvagni! — Við drekkum Coca-Cola í skuggum þeirra, og gamli, gráhærði leiðsögu- maðurinn hegðar sér nánast eins og stúíka, sem er að vísa til sætis í kvikmyndahúsi; í lirikalegum hvelfingum þessara bákna bendir hann okkur á allt hið markverðasta •—• með vasaljósi. Það er eins og fortíð Kaíróborgar sé ofin inn í nútímann. Niðjar liinna fornu Egypta hafa orðið að lúta i lægra haldi fyrir innflytjendum, og það er aðeins stöku sinnum, sem maður rekst á andlit, sem hefði getað verið frá dögum faróanna fornu (skásett augu, arnarnef, drembilegt yfirbragð, blandið kvíða). En í Karíó umvefur Egyptaland allra tima ferðalanginn, svo að jafnvel bregður fyrir fornum dulartón í bjöllum sporvagnanna, eða maður minnist ævagamalla útfararsiða, cr hvít seglin á fljótabátunum líða hægt eftir lygnri ánni. nnur ásjóna Kaíró er næstum miðaldaleg og minnir á þá tíð, er arabísku herskararnir réðust inn í Egyptaland að austan í nafni Múhameðs. Ef litið er i vesturátt frá sjónarhæðinni, getur að líta fornlegan, samslunginn borgarhluta, sem hvílir næstum yfir einhver óræð miðaldamóða. Þetta er Kairó Mamclúk- anna. Heill skógur turnspíra gnæfir upp úr húsaþyrpingunum, og hver hefur sína sérstöku ásjónu. Er sagt, að ein moska sé fyrir hvern dag i árinu. í þröngum götunum er cnn miðaldaandi, og helgir stokkar og steinar marka áþreifanlega þátt sinn í sögu fólksins. Þarna ber fyrir augu blaktandi skikkjur, konur með svartar slæður, marglitt grænmcti, skraddara á hækjum sinum, hálfnakin börn, háa glugga, járngrindur, rykmetta sólargeisla á stöku stað í skuggunum, og allt blandast þetta sleitulausum liávaða, trumbuslætti, glamrinu frá tinkrúsum vatnssalanna, og enn er þetta blandið annarlegri lykt, ef til vill lyktinni frá reykhamj) á stöku stað. í skugga Mokattam-hæðarinnar sefur Borg hinna dauðu, háborg grafhýsanna, og í götum, torgum, skuggaliverfum og höllum þess- arar borgar hvíla aðeins lík og sýrgjendur. f vikið er burt frá manngrúanum á aðalgötunum, taka við götur svo þröngar, að menn minnast með hryllingi hungurs- neyðarinnar árið 1162, þegar saklaust fólk, sem ráfaði um þessar götur, var þrifið með járnkrókum, dregið inn i skugga- legt liús og étið. En frá þessari hrollvekju má samt komast á þremur minútum með strætisvagni að breiðgötum Karíóborgar. Karió nútimans, má segja, að hafi fæðzt árið 1798, þegar Napóleon kom til Egyptalands ásamt vitringum sinum, og siðan má segja, að Kaíró hafi orðið fyrir sifelld- um utan að komandi áhrifum úr austri og vestri. í dag hefur Kaíró loks öðlazt ótvírætt sjálfstæði, og svo mikill bragur er yfir borginni, að aðrar afrískar höfuðborgir, — Bagdað, Damaskus og jafnvel Beirút, virðast ekki annað en sveitaþorp samanborið við Kaíró. Samt er engu Iíkara en borgin standi í stað; l>að hvílir einhver hóglífisslikja yfir Kairó. Einhvern veginn finnst manni orðstir borgarinnar vcra að deyja. En engu að síður er Karíó nútimaborg. Egyptaland liefur verið lýðveldi i sjö ár og sjálfkjörin menningarmiðstöð Arabalanda. Og hvaða hugmyndir sem menn gera sér um stjórn Nassers, ber því ekki að neita, að hann hefur hafið höfuðborg sína lil áhrifa. Cairo, borgin oevngomlo n bökkum Nílnr, er undnrlegur núrídnr og fortídnr nusturs og vesturs, stríðs og friðnr, 4 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.