Vikan


Vikan - 10.08.1961, Blaðsíða 19

Vikan - 10.08.1961, Blaðsíða 19
Barney gat Þó alltaf komið honum í gott skap. Barney blandaði drykkinn Síðan tók hann blað, sem lá fyrir framan hann á borðinu. — Hafið þér lesið um þennan ná- unga í Flórída? — Nei, hvað um hann? — Ég hef fylgzt með þessu í blöð- unum undanfarið, en ég hefði sann- arlega reynt að spjara mig betur, hefði ég verið í hans sporum. Með þessu móti fer hann beint í rafmagns- stólinn. McNeel leit í blaðið og sá mynd af þvermóðskulegum, ungum manni, og lögregluþjónn stóð við hlið hans. — Hafið þér ekki heyrt um þetta? spurði Barney. McNeel hristi höfuðið. — Þessu var þannig háttað, að pilt- urinn ætlaði að kvænast dóttur auð- kýfings nokkurs i Chicago, en karl- inn sá við honum og sagði við dótt- urina, að ef hún hitti náungann aft- ur, mundi hann gera hana arflausa. Þá káiaði pilturinn karlinum í þeirri sælu trú, að dóttirin fengi arfinn. — Hvernig fór þetta? — Það fór allt í handaskolum hjá stráknum, og hann fer áreiðanlega beint i stólinn. — Hvað hefðuð þér gert? spurði McNeel letilega. — Ég skal segja yður, hvað hann hefði átt að gera. Hann hefði átt að fara sína leið og látast vera hættur við allt saman, en hafa jafnframt gætur á karlinum. Seinna hefði hann getað komið að honum óvörum og slegið hann í rot, — látið það líta út eins og innbrotsþjófur hefði verið á ferðinni, — og eftir hæfilega langan tíma hefði allt getað fallið í Ijúfa löð með honum og dótturinni. — Hann bar hönd að enni sér. — Maður hefur þó alltaf einhverja vitglóru í kollinum. Eitthvað svipað þessu hafði verið að brjótast um í undirvitund McNeels undanfarna daga. Nú vissi hann, að dauði Harrys Meltons var eina úr- lausnin. En hann hryllti við tilhugs- uninni og hafði sneitt hjá henni í lengstu lög, og það var ekki neitt tilhlökkunarefni að eiga það kannski á hættu að lenda í rafmagnsstólnum. En það voru þó miklar líkur til þess, að hann kæmist undan. Enginn vissi um samband hans við Klarissu. Sam- kvæmt ósk hennar höfðu þau alltaf farið huldu höfði. Nú var það langt liðið á daginn, að síðdegisgestirnir voru komnir. Greg bað um annan Martini og horfði á Barney, þar sem hann var í óða önn að afgreiða gestina. Hann er hreint ekki svo vitlaus þessi piltur, hugsaði hann. Af vörum brjóstmylk- inga og bareigenda fær maður að heyra sannleikann . .. Þetta var sann- arlega erfitt viðfangsefni, og ef það mistækist, væri hann búinn að vera. En hvers vegna ætti það að mistak- ast? Allt í einu datt honum í hug það, sem Klarissa hafði sagt: „Ef til vill hugkvæmist okkur eitthvað." Hafði hún átt við morð? Kannski hafði hún aðeins viljað gefa það í skyn, en ekki viljað segja það hreint og beint. Það hefði verið heldur ó- hugnanlegt, ef hún hefði komið með slíka uppástungu, þar sem hann sjálfur átti að verða seinni eiginmað- ur hennar ... Hann mætti þá kannski vera við öllu búinn, þegar hún kæmi með morgunkaffið . .. svo að það var i sjálfu sér mjög eðlilegt, að hún vildi ekki leggja á ráðin, en aðeins gefa honum smábendingu. Þegar McNeel hitti Klarissu í næsta skipti, sagði hún: — Harry er væntanlegur frá Los Angeles á morg- un, siðan fer hann til Atlanta og verður þar alla vikuna. Hann er að gera út um einhver viðskipti. Hann vill flytjast til Flórída svo fljótt sem auðið er — Hvenær verður það? — Eftir tæpan mánuð, hugsa ég. Hann hefur tekið á leigu hús við Miamiströndina og segist geta stjórn- að viðskiptunum þaðan, þangað til hann hefur komið öllu í kring. McNeel lyfti glasinu. — En fyrst fer hann til Atlanta? — Já, ég er búin að útvega honum farmiða með flugvélinni og panta hótelherbergi. Hann ætlar að búa á Imperial Plaza og fer með flugvél- inni klukkan kortér yfir sex á föstu- daginn. McNeel lagði við hlustifnar. Kannski var það bara af tilviljun, að hún gaf honum þessar upplýsingar, — en hvers vegna var hún að segja honum, hvar Harry ætlaði að búa og hvenær hann færi, ef hún meinti ekkert með því? Hann tók matseð- ilinn og rannsakaði hann nákvæm- lega. — Humarinn hlýtur að vera góður. Eigum við að biðja um eina flösku af Rínarvíni? Hann vætti var- irnar. — Kortér yfir sex, var það ekki? — Á föstudaginn, sagði Klarissa. — Ég er viss um, að humarinn er ágætur. McNeel hafði séð myndir af Harry Melton í blöðunum öðru hverju og þekkti hann af þeim. McNeel keypti sér farmiða með sömu flugvél og gaf upp nafnið Clarence Smith. Hann sat fjórum sætaröðum fyrir aftan Melton. Þegar flugvélin lenti i Atlanta, náði McNeel sér í leigubil, ók til borgar- innar og settist að á litlu annars flokks hóteli í grennd við Imperial Plaza. Hann var mjög taugaóstyrkur, þegar hann tók skammbyssuna upp úr ferðatöskunni og stakk henni á sig. Hann hringdi til Imperial Plaza og fékk að vita herbergisnúmer Meltons og einnig, að hann var ný- kominn til hótelsins. McNeel fór til Imperial Plaza, beið í forsalnum og þóttist vera að lesa í blaði, þar til eiginmaður Klarissu birtist. McNeel elti hann út á götu og hafði ekki aug- un af honum. Hann var allur í einu svitabaði. Nú mátti honum ekki fip- ast. I þessu beygði Melton inn á h'.ið- argötu. Það leit út fyrir, að hann væri á skemmtigöngu. Barney stóð við afgreiðsluborðið, þegar siminn hringdi. — Sæl og bless- uð, sagði hann. Han nhlustaði af mikl- um áhuga dálitla stund, síðan kinkaði hann kolli. — Þá er allt í þessu fína lagi, er það ekki? Nei, hafðu engar áhyggjur þess vegna. Það gerir ekk- ert til, þó að hann hafi ekki náðst enn þá. Ef hann reynir að flækja þér í málið, kemur hann upp um sjálf- an sig um leið og fer beint í stólinn. Nei, ástin mín, enginn veit, að þú þekkir hann .. . Barney hlustaði leng* enn þá og kinkaði kolli eins og sá, sem talaði, gæti séð hann. Þegar hann loks tók til máls, var viðkvæmnin svo mikil, að við lá, að hann vatnaði mús- um. — Ég veit, að þú elskar mig, Klarissa, og þú veizt, að ég elska Þig. En þú skilur ... Það er ekki við- eigandi að gera það strax, þegar Harry er nýlátinn. Við verðum að bíða nokkra mánuði. Já, vissulega. Eftir nokkra mánuði getum við gift okkur. ★ Hjónnbornin: Hin kúgnðn stétt — Jónina ... — Já. — Ég kann ekki við þetta ... — Þetta hvað? — Þú veizt ... —■ Ég? Nei, guð minn almátt- ugur. Hvernig ætti ég að vita Það. — Ég var að hugleiða þetta í nótt, eftir að við komum heim úr samkvæminu ... — Já, einmitt — Þá fer ég að skilja. En hvað get ég gert að því, þótt ég sé alltaf svona umsetin af karlmönnunum. Þú ættir sjálf- ur bezt að vita hvernig þeir eru ... mega ekki sjá sæmilega snotr- an kvenmann, svo þeir geri sig ekki að fíflum. Eða öllu heldur að þeir sýni hvílík erkifífl þeir eru upp til hópa. Annars finnst mér, satt bezt að segja, að þú ættir að vera stoltur af því, að konan þín nýtur slíkrar aðdáunar, í stað þess að setja upp hundshaus og tauta yfir morgunkaffinu ... ég kann ekki við Þetta, ég kann ekki við Þetta ... — Það er ekki það, Jónína. Þú misskilur mig viljandi. Og þetta kom lika fyrir í samkvæminu, sem við vorum í þar áður ... — Þetta hvað? — Taktu nú einu sinni eftir því, sem ég segi, Jónína! Ef þú ert 5 rauninni eitthvað óánægð í hjóna- bandinu ... — Ég ? Almáttugur minn ... hversvegna dettur þér það í hug? Þótt ég daðri kannski ósköp lítið við laglega og myndarlega karl- menn svona endrum og eins, þá meina ég ekkert með því — ekki annað en það, að ég hef svolitið gaman af að gera grín af Þeim. Og hvernig stendur á að þú virðist fyrst vera að taka eftir því núna? Ertu farinn að halda framhjá mér, eða hvað? — Jónína! Það er ekki það, sem ég á við, og það veiztu líka ósköp vel sjálf. Einmitt þess vegna ertu með þessi undanbrögð. Viltu að ég segi þér það beinum orðum? — Vitanlega ... Almáttugur, hvað ég er spennt, Jón minn, elskan ... — Jón minn elskan ... Jón minn elskan ... Já, þarna kom Það! Og svo getur þú verið að fjölyrða um það í hverju samkvæminu eftir annað, hvað þið konurnar séuð undirokaðar . .. hvað eiginmenn- irnir séu miskunnarlausir harð- stjórar ... hvernig þeir troði á viðkvæmustu og helgustu tilfinn- ingum eiginkonunnar og allt það! Það er þetta, sem ég kann tkki við ... — Nú, var það ekki annað en þetta, Jón minn ... elskan ... — Nei, ég kann ekki við það. Og ég þykist ekki eiga það skilið — því að vitanlega halda allir við- staddir, að þú talir af reynsl- unni .. . —■ Já ... en það vil ég líka. Til þess er leikurinn einmitt gerð- ur — skilurðu það ekki, Jón minn, elskan ... — Já, einmitt Það! Til þess er leikurinn gerður! Jæja, þú viður- kennir þó ... en segðu mér eitt, og svaraðu mér nú af fullri hrein- skilni og einlægni: Á ég þetta skilið ... — Nei, Jón minn ... því miður áttu það ekki skilið ... — Því miður? — Jón, ertu virkilega svona heimskur, eða bara læztu vera það ... Skilurðu i rauninni ekki, hvað mér gengur til? — Nei, fjandinn hafi það ... .—■ Skilurðu ekki, að ég er að reyna að telja öllum viðstöddum trú um, að ég sé gift karlmanni ... þó ég sé það ekki. Eða kannski vegna þess ... — Hvað áttu við? — Hefurðu ekki tekið eftir því hvað þú átt vaxandi kvenhylli að fagna síðan ég fór að læða þvi inn hjá þeim, að þú drægir mig á hárinu, segðir mér að halda mér saman og allt það ... Segðu nú einu sinni aftur, „fjandinn haf: það“ ... og berðu duglega í borö- ið um leið. Og kysstu mig svo ... Jón minn ... elskan ... Gægir. ERU KVENNARÁD ----------1 VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.