Vikan - 10.08.1961, Side 25
Yon er á fyrsta gestinum til dvalar
í Monte Paraiso, og Lísa bíður komu
hans með eftirvæntingu - og
nokkrum kvíða.
getum einmitt látið í té, þarf það ekki jafnframt
að búast við óhófi og viðhöfn.
— Nei, líkast til ekki, samsinnti hún. Og þó
hafði hún sterkan grun um, að ef hann annars
kæmi, þessi leikritahöfundur, mundi hann heimta
sitt af hverju í þá átt.
En svo var alls ekki víst, að hann kæmi. Það
flaug henni í hug, er hún póstlagði bréfið i Nova
Friburgo.
Drembinn og drýldinn?
Þar kom þó nokkrum dögum síðar, er þau sóttu
póstinn, að bréf hafði borizt til þeirra. Marin
var með þeim að þessu sinni, og það var hún,
sem gall við: — Það er stimplað í Ríó! Það er
áreiðanlega frá honum, Lisa. Flýttu þér að opna
það og sjá, hvað hann skrifar!
Bréfið var vélritað á póstpappír Copacabana
Palace gistihússins. Upplýsingar merktar 1234.
Undirskriftin var tilgerðarleg, en Lísa þóttist geta
lesið úr því nafnið Viktor J. Cleveland.
Óskaði bréfritari þess, að ungfrú Tremein ætl-
aði honum rólegt og þægilegt, bjart og loftgott
herbergi með skrifborði um óákveðinn tíma, að
líkindum fjórar til sex vikur. Óskaði hann að geta
fengið matinn fram borinn í herberginu, hvenær
sem honum hentaði, og vildi leyfa sér að taka það
fram, að hann kærði sig ekki um að taka þátt í
neins konar samkvæmislifi með öðrum gestum
eða vera með i hugsanlegum skemmtiferðum.
Eina ástæða hans til að flytja sig út i sveit væri
sem sé sú, að hann þyrfti fullkominn vinnufrið.
Loks skýrði hann frá Þvi með fullri vinsemd,
en nokkru lítillæti sem kunnur rithöfundur, að
sér fyndist samkvæmislífið i Ríó meina sér að
geta helgað tíma sinn að fullu leikriti þvi, er
hann væri að semja. Væri hann því þakklátur,
ef ungfrú Tremein gæti sent honum staðfestingu
þess, að hún hefði herbergi fyrir hann til reiðu,
og þætti vænt um að vera sóttur á stöðina í Nova
Friburgo síðari hluta laugardags.
Neðan máls var handrituð klausa, er hljóðaði
svo: Skrifborðið þarf að vera á björtum stað.
-— Hann veit að minnsta kosti, hvað hann vill!
varð Maureen að orði. Hún hafði lesið bréfið yfir
öxlina á systur sinni.
Lísa hló. ■— Já, skrifborð með góðri birtu getur
hann að minnsta kosti fengið. Við flytjum gamla
skrifborðið hans Terens frænda inn í eitt af her-
bergjunum, sem snúa út að garðinum. Þar fær
hann allt siádegissólskinið inn til sín. Það verður
kannski I heitasta lagi, en hann getur þá ekki
kvartað yfir ónógri birtu. Og loft fær hann nóg
með því að opna gluggann. Og sama er mér, þó
að hann láti bera allan mat sinn inn til sín á
herbergið. En hann er svo hátíðlegur og sjálf-
birgingslegur, að mig hryllir við!
-—- Drembinn og drýldinn, bætti Maureen við all-
“vonsvikin. Hún hafði vonazt eftir viðkunnanlegri
leigjanda. En svo birti verulega yfir svip hennar.
-— Hann er sjálfsagt múraður af peningum og
fús til að borga vel fyrir sig, sagði hún.
Þeim bar öllum saman um, að það væri fyrir
mestu, eins og sakir stæðu. Það var orðið æði-
knappt um lausafé hjá þeim eftir kaupin á Gæð-
ingi. En ef þessi Cleveland yrði hjá þeim í sex
vikur ...
— Það er skrítið, að hann skuli koma með
lestinni, en ekki í einkabíl, hélt Maureen áfram. —
Hann hlýtur þó að eiga bifreið.
— Honum er kannski hægra að losna við að-
dáendahópinn, ef hann tekur lestina, svaraði Lisa
og var farin að hugleiða, hve mikið gjald væri
hægt að heimta, ef máltiðir væru bornar inn til
hans. -— Haldið þið, að sjötíu og fimm krónur
á dag sé of mikið?
— Hann verður áreiðanlega hrifinn af að fá að
aka i Gæðingi, haldið þið það ekki? sagði Maureen
og kímdi meinfýsilega. Lísa hrökk við og leit
til hennar. Hugsuninn um, að hinn frægi Viktor
J. Cleveland, — því að frægur hlaut hann að
vera, — færi að hossast og hristast i jeppanum
yfir stokka og steina á leiðinni upp til Monte
Faraiso, var svo fráleit, að hún gleymdi í bili
sínum eigin bollaleggingum.
— Við ættum ef til vill að vara hann við, mælti
hún með tregðu og hugsaði með sér, að vafa-
laust þyrfti hún að geta um ýmislegt annað, er
hún svaraði bréfi hans, — til dæmis, að þar væri
ekkert rafmagn ...
— Ef þú gerir það, kemur hann áreiðanlega ekki,
sagði Maureen.
Lísa hnyklaði brýnnar. —■ En ég verð þó að
skrifa honum, og þá ...
— Við sendum honum skeyti, flýtti Mikki sér
að segja. — Enginn getur búizt við að fá ná-
kvæmar upplýsingar i einu símskeyti. Bara segja,
að herbergið sé tilbúið og við sækjum hann á
stöðina.
Þetta virtist einfaldasta lausnin. Og meðan
stúlkan á pósthúsinu var að stafa sig fram úr
hinum flóknu erlendu orðum, reyndi Lísa að friða
samvizkuna með Því, að þau hefðu þó alls engu
skrökvað að Viktor J. Cleveland. Og Monte
Paraiso var friðsæll og rólegur staður.
Það er Mikki, sem verður þó að aka honum
hingað upp eftir, hugsaði hún feginsamlega. Og
ef hann lifir af hristinginn í Gæðingi, getur Mikki
á leiðinni búið hann undir eitthvað að þvi, sem
bíður hans.
Það kom glettnisglampi i augu henanr. Þetta
verður ágætisæfing fyrir hann. Hann verður að
segja Billu það sama, þegar hann sækir hana í
næstu viku ...
Óvæntir endurfundir.
En þegar laugardagurinn rann upp, lýsti Mikki
yfir því, að hann yrði að bora upp vatnsleiðsluna,
Framhald á bls. 38.
Lísa vék sér að eldri manni
spurði hvort hann væri herra
Cleveland.
:• X' :•;:'•'•iý':-;::--:-
t