Vikan - 18.01.1962, Blaðsíða 2
RSS
dB
nJU
PaUMulBlnW
Draumspakur maður ræður drauma
fyrir lesendur Vikunnar.
Draumráðningamaður góður.
Viítu gjöra svo vel að ráða fyrir
mig eftirfarandi daum. Fyrir nokkru
dreymdi mig stúlku, sem ég var í
kunningsskap við fyrir nokkrum
þennan, sem við ríðum?
Fríða mín, hvernig heldurðu það
mundi líta út, er þú skriðir dálítið
lengra niður í kjólinn?
segi yður að hér er mönnum greitt
eftir afköstum.
—• Nei, af því get ég aldrei lifað.
2 VIKAN
órum, en slitnaði upp úr þeim fé-
lagsskap. Ég þóttist sjá hana mjög
fáklædda að mér virtist vera að
hátta ofan í rúm. Ekkert talaði hún
til mín né ég til hennar.
Var mér nú gengið þaðan út og
sá ég þar rétt hjá litla tjörn eða
lón og í sama mund bar þar að lítinn
dreng, sem stúlkan á og vissi ég
ekki fyrr til en hann féll ofan í
vatnið og fór í kaf. Ég snaraðist út
í og náði barninu og var það þá
meðvitundarlaust. Ég bar það á
þurrt og hagræddi því. Sá ég þá að
jDað var með lifsmarki og fór brátt
að anda. Draumurinn var ekki
lengri því ég vaknaði. Heldurðu að
ég eigi eftir að eiga einhver við-
skipti við þessa stúlku og barn
hennar og veita þeim einliverja
hjálp?
Dagfinnur.
Svar til Dagfinns.
Af draumnum má ráða að
stúlkan er vissulega hjálpar þurfi
þar, sem hún var fáklædd að
hátta upp í rúm. Það táknar að
hún standi veik fyrir ísköldum
næðingi veruleikans. Fall drengs-
ins í vatnið bendir til þess að
þér bjóðist óvænt tækifæri til að
rétta stúlkunni hjálparhönd í erf-
iðleikum hennar. Hins vegar er
ýmislegt sem bendir til þess í
draumnum að allt fari vel að
lokum.
Kæri draumráðandi.
Síðastliðna nótt dreymdi mig það
að mér fannst systir mín eiga mjög
fallega nýja skó, sem voru dökk
brúnir og sanseraðir. Mér fannst
þeir vera mjög fallegir og var því
mjög undrandi þegar systir mín
kemur með nýju skóna til mín og
segir að ég megi eiga þá, því hún
gæti ekki notað þá. Skórnir voru
mér alveg mátulegir og var ég mjög
hamingjusöm með þá.
Ég vona að þú getir birt ráðn-
inguna á draumnum fljótt, með
fyrirfram þakklæti.
Anna Pálsdóttir.
Svar til Önnu Pálsdóttur.
Talið er að nýir skór sem mað-
ur fer f í draumi sé tákn um stutt
ferðalög. Dökkbrúni liturinn er
tákn um erfiðleika í einni slíkri
ferð, en „sanseringin“ ben'dir til
fjölbreyttra og viðburðaríkra
ferðalaga.
Herra draumráðningamaður.
Mig dreymdi draum fyrir nokkr-
um dögum. Ég var, að mér fannst
stödd í jeppabifreið niðri á Skóla-
vörðustig. Skyndilega sé ég að
Volkswagen bifreið veltur tvær velt-
ur, en kemur á hjólin aftur. Ég spyr
bílstjórann hvort ekki hafi orðið
slys, en i því vaknaði ég. Mér leik-
ur hugur á að vita fyrir hverju
draumurinn er, ég er gift.
Guðrún.
Svar til Guðrúnar.
Ekki er mér kleift að sjá að
gifting þín komi draumi þessum
nokkuð við, hins vegar virðist
mér hann að nokkru táknrænn
fyrir efnahag þinn. Þannig mundi
ég álykta að hann ætti eftir að
taka eina eða tvær veltur í lík-
ingu við Volkswagenbifreiðina
eða með öðrum orðum, að bylt-
ingar yrðu á efnahag þínum, en
að lokum kemst hann samt á
réttan kjöl.
Kæri draumráðandi. fór beint að vaskinum að þvo sér,
Mig langar að biðja þig að ráða en upp úr engu vatni og var hann
fyrir mig draum, sem mig dreymdi hara á skyrtunni, en horfir alltaf
í vetur. Ég var stödd á bæ úti á á mig. Mér fannst móðir hans vera
landi en þar býr frændfólk mitt eitthvað gröm út af því. En við lét-
og fannst mér ég vera stödd í her- Um sem við sæjum það ekki en ég
bergi frænda mins. Hann lá upp á vaknaði við það að hann segir: „Við
dívan en ég var að brjóta upp barna- skiljum aldrei“.
föt á borði, sem stóð þar. Þá fannst
mér hann standa upp og leggur
höndina yfir mittið á mér og fannst
mér ég þá vera ófrísk og vera í víð-
um slopp. Svo fórum við fram að
fá okkur kaffi og lagði ég hvita bolla
með rauðum rósum á borðið, en
þegar við ætluðum að fara að drekka
kaffið kemur móðir hans og horfir
á oldcur og við það vaknaði ég. Svo
dreymdi mig annan draum. Ég var
stödd á sama stað, þá fannst mér
ég og móðir hans fara upp i vöru-
bíl, sem er á þessum bæ, en það er
keyrt aftan á bílinn, þá kemur þessi
frændi minn og segir að það sé meiri
vitleysan að keyra á bílinn, því
hann væri kominn til þess að færa
hann. Svo fórum við inn og hann
Með fyrirfram þakklæti fyrir
ráðninguna. Día.
Svar til Díu.
Merki ástarinnar í draumnum
er mörg og ágæt. Til dæmis að
þú berð frænda þínum kaffi í
hinum rauðrósóttu hvítu bollum.
Rauði liturinn er tákn ástarinnar,
en hinn hvíti tákn hreinleikans.
Með öðrum orðum tákn hinnar
hreinu ástar, sem ríkir milli
ykkar. Einnig handtak hans um
mitti bitt bendir til þess að hann
hafi girnd á þér. Síðari draum-
urinn er ennfremur styrking
sambands ykkar.
Framhald á bls, 43.
Bréfaviðskipti
Vikunni berzt ávallt fjöldinn all-
ur af bréfum, bæði erlendum og
innlendum, frá fólki, sem langar
til að komast í bréfasamband við
aðra.
Því miður er ekki pláss til að
birta öll þessi bréf, né allar þær
nákvæmu og ólíku upplýsingar, sem
bréfritarar gefa af sér og áhuga-
málum sínum, né þær óskir, sem
látnar eru í ljós um þá, sem bréf-
ritarar vilja komast í samband við.
Slíkt yrði efni í mörg blöð.
Þess vegna birtum við nú nöfn
þeirra — og heimilisföng — ásamt
nauðsynlegustu upplýsingum, sem
við vonumst til að nægi til þess að
lcsendur geti valið úr.
INNLEND BRÉFASAMBÖND
Ninja Kristmannsdóttir, Frumskóg-
um 9, Hveragerði. Vill skrifast á
við pilt eða stúlku 11—12 ára.
Bergþóra Árnadóttir, Laufskógurn 7,
Hveragerði, við pilt eða stúlku 13
—15 ára.
Birna Bessadóttir, Garðarsbraut 34,
við pilta og stúlkur 14—16 ára.
Sigþrúður Guðnadóttir, Ljósafossi,
Grímsnesi, við pilt 13—14 ára.
Kamilla Axelsdóttir, Gjögri, Stranda-
sýsíu, við pilt eða stúlku 15—19
ára.
Olga S. Axelsdóttir, Gjögri, Stranda-
sýslu, við pilt eða stúlku 15—19
ára.
Guðrún Eiríksdóttir, Víganesi,
Strandas., vil pilt eða stúlku 15—
19 ára.
Guðrún E. Óskarsdóttir, V-Fifilholti,
V.-Landcyjum, við pilt eða stúlku
14—16 ára.
Gunnlaug Árnad., Ingunn Tryggvad.
og Karólína Þorgrímsdóttir, allar
á Kvennaskólanum að Blönduósi,
við pilta 17—21 árs.
Jenny Ólafsdóttir, Syðstu-Grund, V.-
Eyjafjöllum, Rang., við pilt eða
stúlku 17—18 ára.
Ásta Hulda Markúsdóttir, Heiðar-
gerði 121, Rvik, við stúlku frá Ak-
ureyri, ísafirði, Akranesi eða Vest-
mannaeyjum, 12—14 ára.
Ragnheiður Guðmundsdóttir, Innra
Hólmi við Akranes, við pilt og
stúlku 13—15 ára.
Frá Menntaskólanum að Laugar-
vatni skrifa tveir, sem vilja kom-
ast i samband við stúlkur 17—19
ára: — Páll Þór Imsland og Ás-
geir Gunnarsson.
Ellen Pétursdóttir, KIöpp, Vogum,
Vatnsleysuströnd við pilt 15—17
ára.
Sigríður Jónsdóttir, Garðshúsi, Vog-
um, Vatnsleysuströnd, pilt 14—
16 ára.
Þórdís Óskarsdóttir, Gránufélags-
götu 53, Akureyri, við pilt 20—30
ára.
Guðrún Ingimundardóttir, Hafnar-
hólmi, Hólmavík, Strandas., pilta
15—18 ára.
Frá Húsmæðraskólanum að Lauga-
landi, Eyjafirði, skrifa eftirtaldar
sex stúlkur, sem allar óska eftir
bréfasamböndum við pilta. (Æski-
legur aldur þeirra i svigum): —
Dröfn Sumarliðadóttir (18—20),
Jóna Sigurðardóttir (18—20),
Hulda Sigurbjörnsdóttir (18—20),
Kristín Helgadóttir (19—21),
Fanney Jósteinsdóttir (22—25)
og María Friðriksdóttir (18—20).
Einar Bragi Gíslason, Lundi, Lund-
arreykjardal, Borg., við stúlku 18
—21 árs.
Frá Héraðsskólanum að Laugar-
vatni skrifa þessir piltar, sem
vilja skrifast á við stúlkur 15—
17 ára: — Valur Valsson, Sæ-
björn Valdimarsson, Jón Hjartar-
son og Erlingur Torfason.
ERLEND BRÉFASAMBÖND
Birthe Tietgen Hansen, „Danevang“
Framhald á bls. 19.