Vikan


Vikan - 18.01.1962, Blaðsíða 20

Vikan - 18.01.1962, Blaðsíða 20
Framhaldssagan: Að styi’jöld lokinni tóku Þeir í kvikmyndaverinu Clark opnum örm- um, en kvikmyndahlutverkin, sem honum voru fengin, áttu ekki við hann og hæfileika hans. Fyrir það varð ósamkomulag með honum og framámönnum MGM um það, hvers- konar hlutverk hentuðu honum bezt. Hann sagði mér það seinna, að hann hefði alltaf gert sér Ijóst að hann ætti alls ekki heima i þeim kvik- myndum, sem hann var þá valinn í, og hann kvaðst hafa verið farinn að kvíða því, eftir að þetta hafði gengið þannig um nokkurt skeið, að frægðar- ferill sinn sem leikara væri þar með á enda. Clark hafði því sína örðugleika við að glíma -um þetta leyti, og ég mina, þótt Þeir væru að visu annars eðlis. Ég hafði fyrir löngu komizt að raun um, að mér féll leiklistin ekki sérlega vel, og að ég hafði síður en svo nokkra brennandi löngun til að berjast til frægðar sem kvikmyndaleikkona. Þetta var mér í rauninni mikið lán, því að það kom brátt á daginn, að enda þótt ég hefði i fyllsta mæli allt það, sem til Þess þurfti að auglýsa andlitssmyrsl, hafði ég ekki neina leikhæfileika. Um nokkurt skeið stundaði ég af kappi nám í framsögn, dansi og söng, eins og þeir í kvikmyndaverinu kröfðust af mér, en þegar ég hafði haft með höndum nokkur smærri hlutverk, kvaddi ég þar kóng og prest. Ég ákvað að vera sjálfri mér hrein- skilin — þetta var ekki það lif, sem mér hentaði. Jafnvel þótt ég hefði verið gædd einhverjum leikhæfileik- um, geri ég ráð fyrir að öll sú barátta og baktjaldamakk, sem það kostar að hljóta viðurkenningu, að minnsta kosti oftast nær, hefði ekki átt við mig. Nei, ég hafði ekki neina löngun til að leika í kvikmyndum, en hinsvegar var mér mjög i mun að njóta sól- skinsins í Kaliforníu. Ég varð strax ákaflega hrifin af loftslaginu þar. Skömmu eftir að ég settist þar að, taldi ég móður mína, systur og bróður á að flytjast þangað. Við keyptum okkur hús í Cheviothæðunum og samrýmdumst brátt fólkinu og um- hverfinu, rétt eins og við værum þarna borin og barnfædd. Merkileg kona, móðir min. Lífið hafði ekki alltaf tekið hana mjúkum tökum, en hana brast aldrei kjark- Þegar við Vincent bróðir minn vorum enn í æsku og Elisabeth systir okk- ar aðeins ársgömul, hafði faðir okkar fengið nóg af búskapnum, að því er Clark Gable sem Christian í „Upp- reisninni á Bounty“. virtist, svo hann bara fór leiðar sinn- ar án þess að kveðja. Við sáum hann aldrei framar. Það var erfitt fyrir mömmu að ann- ast uppeldi okkar, stjórna búinu og halda öllu i horfi, sér í lagi þau árin sem uppskeran brást vegna óhag- stæðrar veðráttu. En við unnum öll hörðum höndum við ávaxtaræktina — ég er þjálfuð í að lesa baunir, epli, kirsuber og þrúgur. Enginn vann þó hálft á við mömmu. Hún var staðráðin í að við börnin skyldum njóta góðrar menntunar, og hún varð því sannar- lega að beita bæði sparsemi og hag- sýni i hvívetna, þessi erfiðu ár. En einhvernveginn tókst henni Þetta. Hún kom mér í St. Benedicts menntaskólann, bróður mínum til náms í herskólanum að Riverside og systur minni í Villa Maria mennta- skólann. Við vorum ákaflega sam- heldin fjölskylda, og það var okkur öllum því mikið áfall, þegar móðir okkar lézt af hjartabilun árið 1953, aðeins 58 ára að aldri. Okkur var það nokkur huggun, að við skyldum hafa getað létt undir með henni síðustu árin. Mér hefur oft fundizt, að maður kynni ekki að meta óeigingirni, fórn- íýsi og umhyggju foreldranna fyrr en maður á börn sjálfur. Og oft hef ég óskað þess, að mamma hefði lifað það að sjá hvílíkrar ham- ingju ég naut í hjónabandinu við Clarx Gable. Þau kynntust lítillega fyrsta árið, sem við vorum saman, og henni leizt mjög vel á hann og honum þótti mjög vænt um hana. Eftir að við Clark giftumst fórum við oft saman með blóm á gröf henn- ar, og eins lögðum við oft blóm á gröf Caroline Lombard og föður Clarks. Þetta ár, sem við Clark vorum mest saman, hafði hann alltaf gam- an af því hvað mamma var ströng við mig. Þótt ég væri þá orðin 26 ára að aldri, og hefði tvisvar verið gift, neitaði hún því stöðugt að ég bæri á mér lykil að húsinu. Frá þvi varð hen'ni ekki hnikað. Það getur vel verið að ég sé gamal- dags, sagði hún stundum. „En ég er móðir þin engu að síður, og á með- an þú dvelst í mínum húsum vil ég fylgjast með því hvenær þú kemur heim á nóttunni, telpa mín. Þú færð því ekki neinn útidyralykil — og verður að hringja bjöllunni." Og það urðum við að láta okkur lynda. Það átti sér stað að hann fylgdi mér ekki heim fyrr en klukkan tvö á nóttunni; svo hringdi hann dyrabjöll- unni og stóð hlæjandi á þrepinu með- an mamma kom og hleypti mér inn. Þegar við vorum gengin í hjóna- bandið og ég fluttist heim til hans, færði hann mér lítið skrin. „Fyrsta gjöfin, sem ég gef þér,“ sagði hann. Það var útidyralykill úr gulli. Við hlógum bæði. Og ég er viss um að mamma mundi líka hafa hlegið. Hvorugt okkar Clark tók þá viðvör- un í símtalinu alvarlega, að við skyld- um ekki hyggja á hjónaband aftur. Ég giftist þriðja sinni árið 1945. Það hjónaband varð ekki eins og skyldi, enda þótt við reyndum að þola fjötr- anna vegna barna okkar, Jóhönnu og Bunkers, í full átta ár, en þá fékk ég skilnað. Hjónabandsævintýri Clarks varð ekki eins langætt. Hann kvæntist Sylviu Ashley í desembermánuði, 1949, en þau skildu eftir seytján mán- uði. Ég minnist þess að eitt sinni var ég, ásamt þáverandi eiginmanni mín- um, boðin í hóf þar sem Clark var einnig meðal gesta, ásamt eiginkon- unni sinni nýju. Við heilsuðumst og kynntum maka okkar, en létum síðan eins og ekkert væri. Þegar skilnaður minn var kominn i kring, seldi ég hið stóra hús mitt að Bel-Air og keypti annað, mun minna, í Beverlyhæðunum. Ég hafði nóg að

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.