Vikan - 18.01.1962, Blaðsíða 23
HJ
HALDIÐ ÖLLUM GETRAUNASEÐLUNUM SAMAN
Hér birtist annar hluti Axminster-verðlaunakeppninnar.
Eins og aSur hefir verið skýrt frá — en keppnin hófst í
síðasta blaði Vikunnar — er hér um ein glæsilegustu verð-
laun að ræða, sem nokkru sinni hafa verið veitt hér á
landi fyrir lausn á blaðagetraun: Fjörutíu fermetrar af
einu glæsilegasta gólfteppi, sem framleitt er hér á landi
— Axminster, og að verðgildi tuttugu þúsund krónur.
Vinnandi hefur frjálst val á mynztri, en starfsmenn verk-
smiðjunnar sjá um uppsetningu teppisins eftir ósk vinn-
anda.
Getraunin er í því fólgin að finna einhvern hlut, sem
ekki á heima á myndinni hér til hliðar, og skrifa nafn
þess hlutar á getraunaseðilinn. Þá skal einnig fyila út seð-
ilinn með nafni, heimilisfangi og símanúmeri, og senda
síðan alla seðlana í einu til: „Vikan, Box 149, Reykjavík“
— en neðst í vinstra horni umslagsins skal rita orðið:
„Axminster“.
Verðlaunakeppnin er í fimm blöðum Vikunnar, og hófst
í öðru tölublaði 1962. Allir fimm seðlarnir þurfa að vera
rétt útfylltir og sendast að lokinni keppni í sama umslagi.
Axminster-teppið á þessari glæsilegu stofu á myndinni
er gráyrjótt og fer einstaklega vel við húsgögnin þarna, sem
flest eru úr palisander, klædd leðri. Stúlkan á að sjálf-
sögðu heima i íbúðinni, en það er einn hlutur — og raunar
tveir, sem ekki eiga þar heima, en ykkur nægir að finna
einn.
— Klippið hér. —
GETRAUNASEÐILL B.
Hluturinn, sem ekki á heima í stof-
unni er:
'3,
.g.
5
Nafn:
Heimili: ..............................
Sími:
•— Klippið hér. —