Vikan


Vikan - 18.01.1962, Qupperneq 29

Vikan - 18.01.1962, Qupperneq 29
1* w Slankbelti eða brjóstahaldari er undir- fatnaður, sem þér kaupið ekki nema að vel athuguðu máli. Lífstykkjavörur eru það þýðingarmikill þáttur I klæðaburði yðar, að nauðsynlegt er að velja þær með fyllstu nákvæmni. Spyrjið um hinar vel þekktu KANTER'S lífstykkjavörur, sem eingöngu eru framleiddar úr beztu efnum, í nýjustu sniðum. Þér getið ávallt verið öruggar um að fá einmitt það sem yður hentar bezt frá WIK ii 4 'bilpnap Hrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Þú skalt ekki leggja út í neina óvissu í þessari viku, vegna þess að á einu sviði leikur lánið allt annað en við þér. Vinur þinn einn gerir þér ómetanlegan greiða í vikunni og innan skamms gefst þér tækifæri til þess að launa honum þetta. Farðu varlega með peninga um helgina. Fimmtudagurinn verður bezti dagur vikunnar. NautsmerkiO (21. apr.—21. maí): Þetta verður vika mikillar hamingju á flestum sviðum. Þó er hætt við að eitthvert smáatvik eigi eftir að vaida þér einhverjum áhyggjum. Þú ferð i skemmtilegt samkvæmi um helgina, þar sem þú kynnist per- sónu, eða jafnvel persónum, sem þú átt eftir að sjá tals- vert meira af næstu vikur. Heillalitur rautt. Tvíburamerkið (22. maí—21. júni): Líklega verð- ur þessi vika ekki á allan hátt eins og þú hafðir gert ráð fyrir, en ekki skaltu kvíða neinu, því að þetta verður yfirleitt hin ánægjulegasta vika. Eitthvert kvöldið gerist eitthvað, sem þú hefur lengi beðið — kannski er það samt of seint. Á laugardag verður þér komið þægilega á óvart. Krabbamerkið (22. júní—23. júli): Þú færð'hug- mynd í vikunni, sem rétt er að hrinda i fram- kvæmd, áður en það verður orðið um seinan. Þó skaltu ekki fara of geist af stað. Eitthvað í fari ástvinar þins hefur angrað þig undanfarið, en líklega er bezt að minnast ekki á þetta, heldur láta það sem vind um eyru þjóta. Heillatala 14. Ljónsmerkiö 24. júli—23. ág.): Það gerist óvenju- mikið í vikunni, og þú munt verða miðpunktur- inn í einhverju, sem þú og kunningjar þínir gera. Þú virðist öfundsjúkur út í einn félaga þinn, og er það ljótur löstur. Það er ekki síður hann, sem hefur ástæðu til að öfunda þig. E'kki finnur þú samt til öfundar í fari hans, eða hvað? MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þú leggur út í eitthvað, sem verður þér ofviða, þegar fram í sækir, en láttu það samt ekki á þig fá, þvi að þetta verður til þess að kenna þér góða lexíu. Það er ágætt að hafa sjálfsálit, en of mikið má Þó að öllu gera. Líklega gerist eitthvað neikvætt á laugardag, ef þú heldur ekki vel á spöðunum. Er það af sérhlífni? VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú munt eiga mjög ánægjulega daga, og ekki verða kvöldin sizt. Eitt kvöldið gerist eitthvað, sem kemur þér í gott skap næstu vikur, svo ekki er það að verra taginu. Þér gefst tækifæri að eignast mjög góðan vin i vikunni — ef sá er af hinu kyninu, gæti hugsazt að Amor færi eitthvað að skipta sér af sambandi ykkar. DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú skalt reyna að forðast allar öfgar í þessari viku, einkum hvað allan mat og drykk snertir. Það biða þín miklar freistingar um helgina, en líklega ert Þú gæddur nægilegum viljastyrk til að standast þær. Trúðu því ekki nema mátulega vel, sem félagi þinn segir þér um annan félaga þinn. Heillatala 11. BogamannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.): Þú virðist einkennilega heppinn í vikunni, og máttu þakka þínum sæla, því að ýmislegt það, sem þú gerir, virðist i fyrstu vera hið mesta glapræði. Gleymska þín gæti komið þér illilega í koll. Á miðvikudags- kvöld berast þér tíðindi, sem eiga eftir að breyta áformum þínum varðandi næstu daga til mikilla muna. ______ GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Vinur þinn ger- ir eitthvað, sem særir þig mjög, en líklega skil- urðu ekki fyllilega, hvers vegna hann gerði þetta. 1 vikunni kemur svo hið sanna í ljós, og þá mun allt leika í lyndi. Þú færð skemmtilegan mann í heimsókn einhvern daginn. Þú ættir að umgangast hann meira. Miðvikudagurinn er heilladagur fyrir konur. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. febr.): Þetta verð- ur fremur leiðinleg vika — þ. e. a. s. ef þú kannt ekki að gera þér mat úr þvi litla meðlæti, sem þér býðst. Ef þú ert maður til þess, verður þér ríkulega launað. Þú lest eitthvað, sem kemur þér til að skipta um skoðun varðandi mál, sem þér er mjög ofarlega í huga. Föstudagurinn er dálítið varasamur, ekki hvað sízt fyrir ung hjón. Fiskamerkiö (20. febr.—20. marz): Þú munt eiga mjög þægilega daga i vændum, enda þótt ekki gerist neinir stórviðburðir. Þú virðist óvenjuvel hæfur til að njóta lífsins þessa dagana, og er það vel. Láttu þetta þér að kenningu verða. Þú verður gagnrýndur eitthvað fyrir það, sem þér varð á í vikunni, sem leið, en láttu þá gagnrýni sem vind um eyru þjóta. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.