Vikan - 11.10.1962, Side 37
honum, hélt ég áíram.
— Sagði hann þér það? spurði
húsfreyja.
Nei, ekki beint. Mér bara heyrðist
það á honum. Eða var það kannski
fyrri konan hans?
— Nei, Guðni er ekki tvígiftur og
hún hefur aldrei frá honum farið,
svaraði bóndi hægt og var auð-
sjáanlega ekkert um þetta tal gefið.
En ég var orðinn forvitinn og
þóttist ekki taka eftir því og hélt
áfram. Það er ekki hægt að segja
að þau séu lík, hjónin. Maðurinn
svona heljarstór en konan pínulítil.
Hún virðist líka hafa talsverðan
beyg af honum, og lét ekki sjá sig
eftir að hann kom.
— Hún hefur óttazt að hann tæki
því illa að þú værir kominn.
Það var húsfreyja sem sagði þetta.
— Þykir það óviðfelldið hér að
húsfreyjur bjóði inn gestum að
bóndanum fjarstöddum, spurði ég
og glotti.
— O nei, en orsakir eru til allra
hluta, sagði bóndi og rétti mér
kökudisk um leið.
— Góði, reyndu að hafa gott af
þessu.
— Takk, sagði ég og sá að hann
ætlaði að íara að segja eitthvað, og
beið.
— Mér er illa við að bera út sveit-
unga mína, sagði hann svo, en þar
sem þú hefur nú af tilviljun komið
á þetta heimili, finnst mér réttar
að segja þér sannleikann svo þú
gerir þér ekki rangar hugmyndir.
— Já, blessaður gerðu það, sagði
ég feginn. Mér þætti gaman að
heyrna nánar um þetta.
— Það er nú vonandi að þér þyki
ekki gaman að þeirri frásögn, það
er engin skemmtisaga, sagði nú hús-
freyja, stóð upp og gekk út, eftir
að hafa boðið mér meira kaffi.
— Nei, það var ekki konan hans
sem fór frá honum, Sólbjörgu dytti
það víst aldrei í hug. Nei, það var
móðir hans sem yfirgaf hann og föð-
ur hans.
— Jæja, einmitt það, og nú minnt-
ist ég þess hve Guðna hafði brugðið
þegar ég hafði sagzt vera að fara
við jarðarför móður minnar.
— Og hvernig stóð á því?
Ja, hvernig stendur á því að sum-
ar manneskjur bregða heitum sin-
um og yfirgefa ástvini sína sem
elska þær og treysta þeim. Því er
ekki svo gott að svara. Þetta er
einn af þeim harmleikjum, sem svo
oft gerast þegar tvær gjörólíkar
manngerðir ætla sér að deila ævi-
kjörum hvor við aðra.
Guðmundur faðir Guðna var hæg-
látur maður, sem alla ævi hafði
lifað þarna fábreyttu lífi. Það var
því strax spáð illa fyrir hjónabandi
hans, þegar hann flutti konu sína
heim, kornunga, fríðleiksstúlku,
glaðværa og skemmtanafíkna. 111-
ar tungur sögðu að hún hefði strax
verið manni sínum ótrú. Þá var oft
gestagangur á bænum, áður en bíl-
vegurinn var lagður yfir heiðina,
og margir þurftu að koma við og
hressa sig á mat eða drykk áður
en lagt var á heiðina. Eða voru að
koma að sunnan og höfðu lent í
slæmu veðri eins og þú núna. Þá
var því fljótlega haldið á lofti að
unga konan væri ákaflega gestrisin
við karlmenn, sérstaklega væri
bóndi hennar ekki heima. Ég held
nú samt að þær sögur hafi flestar
verið lognar. Glaðværð og alúð ungu
konunnar aðeins verið lögð út henni
til áfellis. En svo einn kaldan haust-
dag börðu örlögin að dyrum í gervi
ræfilslegs ferðalangs sem kom að
Heiði síðla dags og baðst gistingar.
Þetta var hálfgerður landshorna-
maður, sem hvergi undi, þvældist
úr einum stað í annan, og stundaði
kvennafar af miklum dugnaði hvar
sem hann var, síyrkjandi ástavísur
ef kvenmanni brá fyrir, því hann
var talandi skáldmæltur eins og sagt
er, en þannig bullarar eiga oft und-
arlega létt með að koma að sér
kvenfólki, þótt persónan sjálf sé
ekki merkileg. Þessi maður dvaldi
á Heiði í nokkra daga og beið góðs
veðurs. Guðni var þá á fermingar-
aldri, og lengst af úti við að hjálpa
pabba sínum.
Svo einn dag þegar þeir feðgar
komu til bæjar voru þau bæði horf-
in gesturinn og húsfreyjan. Vafa-
laust hefur Guðmundi ekki dottið
annað í hug en að hún hefði brugð-
ið sér til næsta bæjar, því annars
hefði hann farið á eftir þeim og náð
þeim fljótlega. En af því varð sem
sagt ekki, og því fór sem fór.
Hér þagnaði bóndi og starði svip-
þungur fram fyrir sig.
—- Hvað varð svo um þau, kom
konan aldrei aftur?
— Þau komust aldrei suður heiðina.
Þegar leið á kvöldið gerði ofsabyl
og þau urðu bæði úti. Lík þeirra
fundust ekki fyrr en um vorið, og
voru þau þá flutt norður og jörðuð
i sama kirkjugarði.
— Hvernig tóku feðgarnir þessu.
Urðu þeir tveir þarna áfram?
— Já, þeir voru þar áfram, því
miður fyrir drenginn, sem auðvitað
hefði þurft að flytja í annað um-
hverfi þar sem ekkert minnti á móð-
ur hans og hinn voðalega verknað
hennar. Engum datt samt í hug að
gangast fyrir því, þótt vita mætti
að þessi hryllilegi atburður hefði
geigvænleg áhrif á sálarlíf hans.
— Varð hann þá strax svona und-
arlegur?
— Nei, það varð hann ekki, og faðir
hans ekki heldur svo nokkur vissi,
þeir töluðu aldrei um þetta og menn
forðuðust að nefna það við þá. Svo
stækkaði Guðni og varð nákvæm
eftirmynd föður síns og hverjum
manni stilltari og hæglátari. Löngu
seinna, kom svo Sólborg til þeirra.
Enginn vissi hvaðan hún kom eða
hverra manna hún var. Hún giftist
Guðna og allt virtist leika í lyndi.
Þá tókst einhverjum að grafa það
upp að hún væri dóttir mannsins
sem forðum tældi konuna með sér
út í dauðann. Og einhver óþokkinn
þóttist þurfa að stinga því að gamla
manninum. Þá fór allt í bál og
brand. Guðmundur gamli ofsótti
tengdadóttur sína svo að hætt var
við að hann ynni henni mein. Seinna
varð hann alveg brjálaður svo að
Guðni varð oft að sitja yfir hon-
um, en fékkst aldrei til að láta
gamla manninn á hæli. Loks andað-
ist hann úr lungnabólgu eftir að
hafa hlaupið fáklæddur upp á helði
í vondu veðri. En í slíkum veðrum
var hann verstur og talaði þá sí-
fellt um að þau væri úti á heiðinni.
Eftir að gamli maðurinn dó var
sem Guðna væri líka brugðið. Hann
virtist nú óttast að sagan endurtæki
sig. Hann varð sjúklega hræddur
um konu sína og forðaðist allt sam-
neyti við aðra menn, sérstaklega
þegar líða tók að hausti og dag fór
að stytta. Og þá fyrst sá fólk hví-
líku holundarsári þessi hryggilegi
atburður hafði sært drenginn, þegar
móðir hans yfirgaf hann og galt
fyrir það líf sitt. Og sú und opnað-
ist nú að nýju ...
Gef
mér líka!
Svona, svona ungfrú góð. Ekki svona
mikið í einu! Sjáðu bara hvernig
mamma fer að: Lítið í einu en oftar.
En þú hefur rétt fyrir þér — maður
byrjar aldrei of snemma á réttri húð-
snyrtingu. Mamma þín hefir líka frá
æsku haft þessa reglu: Nivea daglega.
Gott er að til er NIV E A !
Nivea inniheldur Euce-
rit — efni skylt húðfit-
unni — frá því stafa
hin góðu áhrif þess.
— Er þá ekki hætt við að hann
skaði konu sína þegar sá gállinn er
á honum? spurði ég.
— Nei, það hald ég ekki. Það er
ekki beinlínis eins og hann van-
treysti henni, enda ástæðulaust. Nei,
það er atburðurinn sjálfur, sársauk-
inn og skelfingin. Það er ekki von að
við skiljum það til hlítar, en þannig
kemur háttalag hans mér fyrir
sjónir.
— Hafa þau virkilega ekkert sam-
band við aðra menn?
— Það getur varla talizt, og ekki
nema það allra nauðsynlegasta.
Enginn sími, ekkert útvarp eða blöð,
og þar kemur varla nokkur maður.
Þetta er orðið afskekkt síðan bíl-
vegurinn kom, svo þangað eiga fáir
erindi. Mér varð satt að segja hverft
við þegar þú sagðist hafa komið þar
í kvöld, þó kannski engin hætta sé
á ferðum, er því ekki að neita að
Guðni gæti gert ókunnuga æði
skelkaða ef í það færi.
Nú stóð bóndi upp og fór að ganga
um gólf.
— Já, þetta er hryggileg saga, sagði
hann svo. Svona gat, að því er virt-
ist lítilfjörleg gestakoma á sveita-
bæ gripið inn í líf hamingjusamrar
fjölskyldu og skilið eftir þjáningar
og dauða.
— Örlögin eru oft býsna undarleg,
sagði ég og stóð upp og þakkaði
fyrir kaffið.
— Mér þótti vænt um að þú
skyldir segja mér þetta, sagði ég.
— Og mér þætti vænt um að þú
segðir ekki óviðkomandi fólki frá
þessu, sagði hann og leit fast á mig.
Svona sögur eru ekki til að henda
á milli manna finnst mér.
Ég kvaðst skilja það.
Nú kom konan inn og ég þakkaði
henni kærlega fyrir mig.
— Verði þér að góðu. Hefur þér
svolítið hlýnað, sagði hún og brosti
móðurlega til mín.
— Jú, áreiðanlega, sagði ég og
kvaddi hana.
Svo gengum við bóndi út á tröpp-
urnar.
— Jæja, þú kemur þá við í baka-
leiðinni, sagði hann. Það verður þá
búið að þurrka fötin þín svo þú
getir skipt aftur.
— Já, ég geri það, líklega á morg-
un eða annað kvöld. Vertu blessað-
ur og sæll.
— Vertu blessaður góði, sagði
hann og tók þétt í hönd mína. Svo
gekk hann inn um dyrnar, en ég
labbaði niður tröppurnar í áttina
til bílsins.
Peningar í hendi.
Framhald af bls. 1R.
Og allt í einu kom honum nokk-
uð í hug. Hann hafði þegar gerzt
sekur um morð, svo ekki breytti
neinu þótt hann fremdi annað til.
Vitanlega varð hann að ganga þann-
ig frá því, að engum kæmi til hugar
að um morð væri að ræða. Það varð
að líta út sem slys — eða þá sjálfs-
morð; konuvæfla, sem truflazt hafði
á geðsmunum af harmi, þegar móð-
ir hennar lézt ... þjáðist af fárán-
legustu firrum og loks ráðið sjálfa
sig af dögum ...
Hann reykti pípu sína um hríð.
Virti eiginkonu sína fyrir sér, þar
VIKAN 37