Vikan - 11.10.1962, Blaðsíða 41
ÚTGERÐARMENN — SKIPSTJÓRAR
XAITO fiskinet og kaSlar eru framleidd af TAITO FISHERY CO.
I Japan, sem er stærsta útgeröarfélag í heimi. Afkoma þess er
eins og yðar er ekki hvað sízt undir veiðarfærum komin. — ÞaS
er því víst að framlciðsla þeirra á þessu sviöi er hin fullkomnasta
sem völ er á —einmitt byggt á reynslu og eftir kröfu sjálfra fiski-
mannanna.
ÞEGAR SLÍKAR VÖRUR ERU í BOÐI Á SAMKEPPNISVERÐI
ÆTTI VALIÐ AÐ VERA EINFALT.
EINKAUMBOÐ
ASÍUFÉLAGIÐ Hafnarstræti 11 Sími 10620.
ins leið að reikna út tilfinningar
kvenna, hvað það snertir....“ Grea-
torex gamli rétti allt í einu úr sér og
leit fast á Dahl. „Engu að síður er
auðvelt að reikna það út, að þessi
stúlka er reiðúbúin að kasta sér í
fangið á þér, og það er einungis und-
ir þér sjálfum komið, Dahl, að það
ríði henni ekki að fullu. Þú....þú
mátt ekki....“ Rödd hans hljóðnaði,
og hann leit enn undan.
Dahl var orðinn litverpur af neiði,
og hann vissi vel, að það var þess
vegna, að Greatorex gamli þagnaði án
þess að ljúka við setninguna. Sá þarf
ekki orðið djúprar stungu við, svo úr
honum fari vindurinn, hugsaði Dahl,
og gat ekki verið honum reiður leng-
ur. Rómurinn varð tiltölulega vin-
gjarnlegur, þegar hann svaraði eftir
nokkra þögn: „Ég fæ. ekki séð að þetta
sé neitt vandamál. Það er eins líklegt,
að við berum beinin hér. Og þó svo
færi, að við losnuðum úr þessari sjálf-
heldu, þá fæ ég eiginlega ekki skilið
að hvaða leyti þetta getur komið þér
við.... “
Greatorex gamli tók að núa ákaft
vinstri handlegginn. Þrátt fyrir allt
átti hann enn það skap, að honum
var það ekki ljúft að verða að láta í
minni pokann. „Hún gæti verið dóttir
mín“, mælti hann lágt, og það var
ekki laust við að röddin titraði.
Dahl hefði ekki komið sérlega á ó-
vart, þótt karlinn hefði farið að
kjökra. Sjálfum var honum algerlega
runnin öll reiði. Hann kenndi í brjósti
um Greatorex gamla, eins og hann
sá hann nú — niðurbrotið gamal-
menni....
Framhald í næsta blaði.
PEYSA.
Framhald af bls. 21.
úr 1 1. í byrjun prjóns næstu 12
umf., 2 1. í byrjun prj. næstu 4 umf.,
3 1. í byrjun prj. næstu 4 umf og
fellið síðan af 18 (18) 20 1., sem eftir
eru í einni umferð.
Prjónið hina ermina eins, en
handvegsúrtökur gagnstætt.
Kragi: Fitjið upp 142 1. á prj. nr.
4 og prj. 2 1. sl. og 2 1. br., 15 cm.
Prjónið þá eina umf. þannig að prj.
2 1. sí. og 2 1. br. saman. Fellið af.
Leggið nú öll stykkin á þykkt
stykki, mælið form þeirra út með
títuprjónum, leggið rakt stykki yfir
og látið þorna. Saumið saman hliðar-
og ermarsauma með aftursting og
úrröktum ullarþræðinum. Saumið
vinstri öxl og 2—3 cm handvegs-
megin af hægri öxl. Festið ermum
í handvegi. Takið nú upp 65—70 1.
í hálsmálinu, þannig að draga garnið
frá röngu upp á réttu með prjóni,
en taka ekki upp laus bönd.
Prjónið 2 umf. sl. og fellið af.
Saumið- nú smellur innan á axl-
arsauma og við miðju að aftan,
einnig á kragann á samsvarandi
staði.
Smellið síðan kraganum föstum.
Bobby Yee.
Framhald af bls. 19.
Um framtíSaráform Bobbys er
það að segja, að hann reiknar með
því að hætta söngnum innan fárra
ára, en hyggst þá snúa sér að kvik-
myndalcik og hefur jafnvel hug á
að taka þá að sér alvarleg hlutverk,
ef tækifæri bjóðast til þess. Þess
má geta, að það versta, sem Bobby
Vee getur hugsað sér eru vekjara-
klukkur, en hann hefur löngum átt
í brösum við þær svo sem marka
má af því, að hann hefur þrjár
stórar og miklar vekjaraklukkur
við rúmstokk sinn og eina fram við
herbergisdyrnar til þess að vera
alveg öruggur um að vakna tíman-
lega á morgnana.
Tækniþáttur
Framhald af bls. 3.
væru tveim stundum skemur yfir
hafið — þann áfangann, sem for-
ráðamenn hinna miklu flugfélaga
hafi alltaf einblínt á og geri enn.
Þrátt fyrir þessar, að því er virð-
ist hyggilegu leiðbeiningar sérfræð-
inganna, er svo að sjá sem forráða-
menn flugfélaganna láti sér ekki
segjast. í hinni hörðu samkeppni
sinni um farþegaflutningana virðast
þeir ekki þekkja nema eitt vopn —
stöðugt hraðfleygari flugvélar, enda
þótt þau vopn kosti svo gífurlegt fé,
að ekki er annað sýnna en að styrj-
aldarátökum hinna miklu flugfélaga
ljúki eins og styrjöldum yfirleitt,
með tapi beggja aðila.
Caravelle-þoturnar frönsku hafa
að undanförnu getið sér mjög góðan
orðstír sem farþegaflugvélar, og
mörg af hinum stærri flugfélögum
hafa þær nú í förum. Nú hefur
franska ríkisstjórnin veitt verk-
smiðjunum, sem framleiða þessa
þotugerð, ríflegan styrk til að
standast straum af kostnaði við und-
irbúning að smíði á „Super-Cara-
velle“-þotu, sem á að geta flogið
með allt að 2.800 mílur á klst. í
50.000 feta hæð og flutt um 100
farþega. Teikningar að slíkum far-
kosti og allir útreikningar þar að
lútandi eru þegar fyrir hendi; meira
að segja er ráð fyrir því gert að
fyrstu „Super-Caravellurnar“ verði
tilbúnar til notkunar að fimm til
sex árum liðnum.
Og þegar flugfélögin hafa tekið
þær, og aðrar ámóta afkastamiklar
yfirhljóðhraðaþotur í þjónustu sína,
tekur það farþegana að ölum lík-
indum talsvert skemmri tíma að
komast yfir Atlantshafið, milli Ev-
rópu og Ameríku, en það tekur þá
að komast upphafs- og endaspölinn
og í gegnum skilríkjamúrinn!
SAAB
Framhald af bls. 3.
og halda þeim lausum við móðu og
hélu.
Farangursrýmið er aftur í bíln-
um, ferkantáð að lögun og rúmar
vel, en er heldur lítið. Varahjól-
barði er geymdur undir gólfi far-
angursgeymslunnar.
Áður én yfirbyggingin er máluð
er hún látin í fosfatböðun til ryð-
varnar.
Aksturseiginleikar eru góðir, bíll-
inn er stöðugur í beygjum, liggur
vel á ójöfnum vegi og vélin vinn-
ur vel. Fríhjólunin er þægileg í
langkeyrslu, þegar menn hafa van-
izt henni, og nýtist vel vegna loft-
mótstöðulítillar byggingar bílsins en
krefst meiri notkunar hemlanna.
Gírkassinn er þrír gírar áfram, ann-
VIKAN 41