Vikan


Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 30

Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 30
 Jfofimvn’s barnapúður notið JONSON‘S barnapúður eftir liverl bað og alltaf þegar skipt er um bleyju. ^Ámxyn’s barnavörur Barnapúður, Olía, Lotion, Shampoo, Sápa, Eyrnapinnar, Bleyjur, Þvottaefni. II eildsölubirgðir: FRIÐRIK BERTELSEN & CO. H.F. Laugavegi 178. — Simi 36620. tóku síðan höndum saman og ætl- uðu að finna þetta, sem glettast var við þá, en allt í einu ætlar kýrin að verða óhemjandi niðri og vildu þeir þá ekki bíða lengur og hélt bóndi síðan af stað, illa ánægður með að geta ekki komizt fyrir orsökina, hvar fyrir hann hefði orðið fyrir þessu; hann vissi ekki nökkrum manni væri í kala við sig og eirði því mjög illa. Um vorið, áður en þetta skeði, voru hjónin bæði á stekk með börn- unum. Stekkurinn stendur nærri djúpri tjörn. Börnin tóku til að henda steinum í tjörnina. Segir þá faðir þeirra þeim að hætta því og segir þeim, að þau kunni að detta í hana og gjörir sig myndugan. Móð- ir þeirra segir þá það sé óþarfi að [banna] börnunum þetta, þau gjöri það að gamni sínu. Nokkru eftir þetta dreymir konuna, að henni þyk- ir koma til sín stórvaxin kona og tala til sín heldur stuttaralega á þessa leið: „Illa fórst þér að mæla upp í börnunum þínum að skemma veiðina í tjörninni með því að kasta grjóti í hana, því að það var veiði- vatn mitt, á hverju ég lifði með mína fjölskyldu og mun ég launa þér það þó seinna verði“. Einu sinni sáu börnin um hábjart- an dag fullorðinn kvenmann og unglingsstúlku, sem stefndu til fjalls og héldu menn spurnum fyrir, hvert nokkur hefði verið á ferð, en það var ekki. — Bóndinn hafði í seli á Núpi næsta ár, fékk svo jarða- skipti og hefur ekki á neinu borið síðan. ★ Dýrkeyptur sálarfriður. Framhald af bls. 8. um vanskapnaðarfæðingum fjölgað gífurlega. í Vestur-Þýzkalandi eru þau talin vera 5000, sum blöð þykj- ast þó hafa heimildir fyrir miklu hærri tölum. Það var læknir í Ham- borg, dr. Lenz, sem fyrstur kom auga á samhengið milli lyfsins og hinnar miklu fjölgunar vanskapn- inga í móðurlífi. Nærfellt önnur hvor kona, sem neytti lyfsins á fyrstu 2—3 mánuðum meðgöngutím- ans, fæddi vanskapning. Framleið- andinn dró lyfið til baka þegar í stað, er þetta varð uppskátt, ásamt 50 öðrum lyfjum, sem blönduð voru hinu skaðvænlega efni (thalidomid). En eftir sitja 5000 mæður í sorg og vanda, sem valda mun svefnleysi margra nátta. Þessi atburður vekur fólk til um- hugsunar um það, að þörf sé auk- innar varúðar bæði í framleiðslu, dreifingu og neyzlu læknislyfja. Skrúðmálgar auglýsingar mega ekki ráða jafnmiklu þar um og nú er, en einkum er það háskalegt, ef almenn- ingi er ráðlagt að ganga framhjá lækni sínum og kaupa sér á eigin 30 VIKAN spýtur lyf við sjúkdómum, „sem óþægilegt er að hafa orð á“. Það væri í raun og veru að trúa aug- lýsingahöfundinum fyrir heilsu sinni. Bak við æsifregnir stórblaðanna og sjálfsásakanir örvilnaðra mæðra er unnið að því að skýra orsaka- samhengið milli lyfsins og van- skapnaðarins. Sú rannsókn tekur ef- laust langan tíma og margt óvænt kann að koma fram. Að mínu viti einblína menn um of á hinn ytri vanskapnað. Ef thalidomid megnar að sundra vaxtarlögmálum fósturs svo gersamlega, má þá ekki einnig búast við vanskapnaði í innri bygg- ingu, í taugakerfi og heila? Truflun vaxtarlögmálanna, sem hið skaðlega efni veldur, gerist varla eingöngu í þeim vefjum, sem armar og fætur eiga að myndast úr, heldur mitt í hinni margbreytilegu efnaskiptingu og vaxtarþróun líkamans. Enn er engin reynsla fengin um það, hvort þau Contergan-börn, sem kunna að lifa og vaxa upp, verða fullþrosk- aðar vitsmunaverur eða fávitar. Úr því verður ekki skorið með vissu, fyrr en börnin eldast. En ef það skyldi sannast, að Contergan-svefn- , - tl léMVilL. Ílrti lyfið valdi ekki aðeins ytri vansköp- un, heldur einnig þeirri innri rösk- un, sem leiðir til fávitaháttar, þá má með sterkum líkum gera ráð fyr- ir því, að innri vanskapnaður eigi sér stað án sýnilegrar ytri vöntun- ar. Þá væri Contergan-slysið miklu víðtækara en það virðist nú. Nýjar þúsundir foreldra myndu þá sjá fram á ævilanga óhamingju yfir þroskavana börnum sínum. Múnchen, 2. sept. 1962. Matthías Jónasson. Reimleikar á Núpi. Framhald af bls. 12. það væri óbrotið. Nú var farið að gæta, hvernig því hefði orðið náð úr skemmunni, sem var læst og lyk- illinn vandlega geymdur hjá bónd- anum. Sáu menn þá, að ein rúðan úr glugganum var brotin, en stokkur- inn, sem glasið var í, stóð svo nærri, að maður hefði getað smeygt hand- legg inn um gluggann og náð því. Daginn eftir var allt flutt burt nema kindumar. Þegar farið var að leysa kýrnar, sem voru undir palli í baðstofunni, virtist þeim, sem eitt- hvað ríslaði uppi á loftinu. Þeir Hvar er örkin hans Nóa? Gngírú Yndisfríð Síðast þegar dregið var hlaut verðlaunin: Jón Haukur Hákonarson Hólmgarði 54, Rvík. Nú er það örkin hans, Nóa, sem ungfrú Yndisfríð hefur falið í blaðinu. Kannski í einhverri myndinni. Það á ekki að vera mjög erfitt að finna hana og ung- frú Yndisfríð heitir góðum verð- launum: Stórum konfektkassa, sem auðvitað er frá Sælgætis- gerðinni Nói. Nafn Heimilisfang Örkin er á bls. Sími

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.