Vikan


Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 34

Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 34
EFNAGERÐ AKUREYRAR H.F., AKUREYRI. Hvernig verða bílamir? Framhald af bls. 7. endur byrjuðu að framleiða sjálf- skipta bíla og Bandaríkjamenn virð- ast öðrum betur kunna að meta þess konar þægindi. Tiltölulega mjög fáir Evrópubílar eru enn þann dag í dag sjálfskiptir og ástæðan sennilega sú, að evrópskir bílneytendur vilja held- ur handskiptingu. Á flestum bílum eru gírarnir nú orðnir samstilltir (synkromesh). Fram til þessa hefur stýrisskiptingin verið nær einráð nema á sportbílum, en gólfskiptingin vinnur mjög á núna, enda er hún hraðari og öruggari. Þetta bendir til þess, að þrátt fyrir allt þyki sjálf- virknin ekki mjög eftirsóknarverð nema að ákveðnu marki. Þá gæti farið svo, að kúpling með fæti væri úr sögunni, enda þótt handskipting yrði notuð. Það er leyst þannig, að gírstöngin kúplar frá um leið og hún er hreyfð. Þann- ig er það á dýrustu gerðinni af Ford Taunus 17ts og væntanlega koma fleiri á næsta ári með þess háttar búnaði. Cadillac er búinn ljósum, sem lýsa fyrir horn. Geislinn snýst um leið og stýrinu er snúið. Fleiri gerðir eru væntanlegar þannig á næsta ári. Allt það bezta úr þessum nýjung- um verður notað í bíl framtíðarinn- ar. Fleira má nefna: Fjöldamargar gerðir bíla eru nú með stillanlegum bakhalla á sætum. í Rambler er þessi búnaður sérstaklega fullkom- inn og farþegasætið að framan með höfuðpúða eins og í flugvélasæti. í Vikunni hefur nýlega verið minnzt á hinn nýja Morris 1100 og vatns- fjöðrunþá sem hann er útbúinn með. Þar er algjör nýjung á ferðinni, sem gæti haft kosti umfram fjaðrir og dempara. Citroen 1D 19 hefur verið talin ein stærsta framför í bílaiðnað- inumað undanförnu. Það er hægt að hækka hann og lækka að vild með glussa. í lægstu stöðu sýnist hann nálega dragast við jörðu, en í þeirri hæstu er hann hár eins og jeppi. Ef skipta þarf um dekk, er ekki ann- að en hækka hann á hinum hjólun- um svo hjólið, sem um er að ræða verði á lofti. Ýmislegt er á döfinni til þess að auka öryggi. Talið er að allmargar bílagerðir muni á næsta ári hafa alla bíla sína með öryggis- beltum eins og Volvo hefur haft og gefið hafa mjög góða raun, þegar slys ber að höndum. Sportútgáfur af flestöllum bílgerð- um eiga mjög auknum vinsældum að fagna og líklegt er, að sú þróun haldi áfram. Bílaframleiðendumir- hafa yfirleitt fundið, að menn leggja sífellt aukna áherzlu á getu og akst- urseiginleika og taka slíkt fram fyrir nýtízkulegt útlit. Sumir eins og til dæmis Volvo og Mercedes- Benz hafa tekið upp fremur íhalds- sama stefnu um útlitið, en leggja þeim mun meiri áherzlu á verkfær- ið sjálft; að auka mótorstyrkleikann og bæta aksturshæfnina. Sú stefna virðist skynsamleg og líkleg til þess að eiga fylgi að fagna. Eða til hvers er fallegur bíll og nýtízkulegur, ef hann veldur vonbrigðum að öðru leyti. í framtíðinni mun „breiddin“ enn aukast. Litlir bílar með 30—50 hestafla vélum verða vinsælir áfram vegna þess að þeir eru þægilegir. Hins vegar er líklegt að framleiddir verði enn sterkari og hraðskreiðari bílar en nú þekkjast. Fyrir utan sportbíla, sem hafa allt að 400 hest- afla vél og beina innspýtingu elds- neytis (Ferrari), er Chrysler afl- mestur, hefur 385 hestöfl. Þegar túrbínuhreyflar verða orðnir al- mennt notaðir og fullkomnaðir frá því sem nú er, má telja víst, að boðið verði upp á enn fleiri hestöfl. En hvað um stærðina? Verða byggð- ir ennþá stærri, breiðari og þyngri lúxusbílar en nú eru til. Það er tæp- lega líklegt. Á Bandaríkjamarkaðn- um, sem er sá stærsti í heiminum, hefur sala stóru lúxusbílanna numið aðeins 5% af heildarsölunni. Aftur á móti nam sala þeirra 17% fyrir 10 árum. Samt eru nú framleiddir enn glæsilegri lúxusbílar en fyrir 10 árum og að auki hafa nokkrir sér- lega góðir evrópskir lúxusbílar kom- ið á markaðinn. Þetta bendir til þess, að stóru þungu bílarnir, (Cad- illac, Imperal, Lincoln) sem dýrast- ir hafa verið í lúxusflokknum, verði hvorki stærri né þyngri en þeir nú eru. Fjórmenningarnir, sem stjórna teiknistofum bandarísku framleið- endanna og ráða mestu um útlit bíla í framtíðinni, eru sammála um það, að bílar breytist varla mikið á næstu fimm árunum, en áherzla verði lögð á fágun á öilum sviðum. Elwood P. Engel hjá Chrysler telur ekki heppi- legt að hafa stóra bíla mjög straum- línulagaða, því plássið nýtist þá ver. Þó telur hann ávalar línur sjálfsagð- ar. „Bandarískir bílar,“ segir hann, „hafa svo mikið afl, að mjög mikið straumlínulag er óþarft. Vindhvin- ur getur alveg eins komið til af hurðarhúnum og öðrum smáhlutum, sem auðvelt er að breyta.“ Gene Bordinat, aðalteiknari hjá Ford, segir: „Straumlínulag er miklu þýðingarmeira fyrir evrópska smábílaframleiðendur en fyrir okk- ur. Við viljum hafa bílana rúmgóða að innan og straumlínulag er alltaf á kostnað innra rýmis. Aftur á móti held ég, að sérstakar gerðir bíla mnni koma þar fram, þar sem á- herzla verður lögð á sportlega eig- irdeika". Bill Mitchell er aðalteiknari hjá General Motors. Hann segir: „Allt sem gerist' i kringum okkur hefur áhrif á teiknara. Það er ekki hægt að hafa rakettur og geimför á flugi án þess að svipurinn af þeim lendi einhvers staðar í verki teiknarans. Stravunlínulag? Ójú, það er stefnan; ekki til þess að ná auknum hraða, heldur til þess að útiloka hvin af vindi. Vindhvinur þreytir taugarnar eins og hver annar hávaði. Bygg- ingarlag á bílum er alltaf að verða sléttara og einfaldara en það má ekki verða tilbreytingarlaust. Takið ítalina eins og Ferrari og Maserati. Þeir eru einfaldir, það er rétt, en þegar betur er að gáð, er fullt af götum og smáhlutum, sem gefa á- kveðinn svip. Smekkúrinn er alltaf að batna. Og fólk vill fá meira fyrir peningana." ★ Dick Teague, aðalteiknari hjá American Motors (Rambler) spáði þannig fyrir næstu 5—6 árunum: Um 1968—1970 verða bílar stíl- hreinni en nú og ef til vill einfald- ari að útliti. Útlitið verður mjög fágað og hæfilega straumlínulagað svo rými verði sem bezt að innan. Ég býst við því að miklu meira verði notað af gleri í bíla um þær mundir. Allar rúður verða bognar og hugsanlegt er, að hurðir nái eitt- hvað út á þakið til þess að auð- velda umgang. Hvað Rambler á- hrærir, mun hann halda áfram að vera „compakt", (þ. e. mun minni en stóru amerísku bílarnir). Ekki býst ég við því, að bílar verði lægri 1970 en þeir eru núna, en við getum með ýmsu móti látið þá sýnast lægri og rennilegri en þeir eru núna.“ Af þessu sést, að þessir fjórmenn- ingar hafa ótrúlega svipaðar skoð- anir. Þeir vinna nú að teikningum fyrir bíla, sem koma munu á mark- að 1967—68, — þeir byrjuðu að forma hugmyndir að nýjustu bílun- um, sem nú eru í umferð, fyrir 5 árum. Evrópa hefur að þessu leyti aldrei átt fulla samleið þeim í Detroit. Fjölbreytnin er miklum mun meiri hjá hinum fjölmörgu bílaframleið- endum í Evrópu, en þar er einkum að ræða smærri bíla. En engin skyn- samleg rök mæla gegn því, að ein- hver þeirra geti ekki alveg eins dottið niður á tæknilegar framfarir, sem verði þýðingarmiklar fyrir framtíðarbílinn. Þjóðverjar eru til dæmis búnir að búa til lítinn mótor, svonefndan Wankelmótor, sem byggist á allt öðru en strokkamótor- inn og getur haft stórfellda þýðingu, þegar fram líða stundir. Ef til vill hafa engir náð lengra en hinir beztu teiknarar Evrópu eins og Porsche og Ghia. Þeir teikna að vísu yfir- leitt minni bíla en framleiddir eru í Bandaríkjunum, en þeir stefna líka eindregið meir að því að útfæra straumlínulagið sem mest. 34 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.