Vikan


Vikan - 18.10.1962, Side 37

Vikan - 18.10.1962, Side 37
Aðrar stundir átti hann einn sér, al- ger einstæðingur, sem skrifaði lát- laust, trúði pappírnum einum fyrir brimróti hugar síns, hann þjáðist, skreið eins og maðkur í dögginni og vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Að fram- an hefur hann við og við verið leiddur sjálfur sem vitni. Menn leiti skýringanna, geri sér hugmynd um inni þessa fyrirbrigðis í mannlífi þessarar litlu þjóðar. Hann fæddist við aldahvörf, mótaðist þegar rót var að komast á þjóðarsálina, þegar nýir straumar léku við bakkana og nýr r'ustur bærði strá, þegar harðast var barist til frelsis og mennirnir litu upp úr moldinni og risu á hnén. Og allir þessir straumar og allir þessir stormsveipir byltust í sálarinnum föls, langleits, viðkvæms og draum- lynds unglings á kotbæ í þröngum dal . . . . Einnig þar var saga íslands um næstu framtíð að mótast. NÁTTÚRAN OG NÁMIÐ. Það er áhyggjuefni foreldrum að eiga svona dreng. Hefði hann verið viljugur og iðinn við sveitastörfin, þá hefði allt verið í lagi, en hann var það ekki, lá í leti og sveikst um, og „hafði sérstakt lag á að fá aðra til þess að vinna þau verk, sem ég átti að vinna“. Hins vegar benti allt til þess, að hann væri allur upp á bókina og pennann. En hvernig átti að skapa honum lifibrauð upp á framtíðina í þá áttina? Það var í þann tíð ákaflega erfitt og ekki í neinum samanburði við það sem nú er. Faðir hans var hins vegar viss um, að hann var „söngvinn og fyrir hljómlistina“ — og þar mun hann hafa eygt einhverja möguleika. Sú hugmynd föður- ins er fráleit. Að vísu mun HKL hafa verið söngvinn, og þó miklu fremur, verið gott efni í hljómlistar- mann eins og fleiri ættmenn hans, en ekki var hljómlistin í þann tíð vænlegri til frama en bókmenntirnir. En hvað sem um þetta er, þá mun það hafa verið miklu fremur tón- listaráhugi sveinsins heldur en bók- menntaiðja hans, sem varð þess valdandi að ákveðið var að setja hann til mennta. Hann hafði lokið barnaskólanámi veturinn 1915 og veturinn eftir fór hann til Revkja- víkur og sótti kennslu í iðnskólan- um sem óreelulegur nemandi og um cama levti fékk hann tilsögn í hlióð- færaleik hiá Gilfer, en faðir hans hafði t*efið hontim orgel þegar hann var ellefu ára. Á sama vetri skrifaði hann heliarmikla skáldsögu, og var aldrei viss um, hvort hann ætti að láta hana heita Aftureldinau eða Haarenningu. Þannig skrifaði hann látlaust. Veturinn 1918—1919 fór hann í fjórða hekk Menntaskólans oe kvnntist þá piltum, sem síðar urðu kunn skáld: Guðmundi Haga- l'n, Sieurði Einarssvni. Tómasi Guðmundssyni op Jóhanni .Tónssyni. En námsáhuganum var ekki fvrir að fara. Hann segir sjálfur um nám sitt: .. . .Ég tók engan þátt í skóla- lífi né félaga, var gersamlega áhuga- laus fyrir því öllu, og í rauninni mannhræddur, undi mér afskaplega illa við skólabundið nám, og var nær dauða en lífi af andlegum skelfingum, weltschmerz, hypó- kondriu, angína, svefnleysi, og hélt að ég mundi drepast eða brjálast á hverri stund Ég hef aldrei lifað aðrar eins hörmungar og veturinn, sem ég var í fjórða bekk. Ég gat ekki fest hugann við neitt, sofnaði aldrei fir en undir morgun, hafði rii • lölll heimapermanent gerir hár yóar mjúkt, gljáandi og meðfærilegt Með TONI fáið þér fallegasta og varanlegasta permanentið. Vegna þess að „leyniefni" Toni heldur lagningunni og gerir hárið svo meðfærilegt, að þér þurfið aðeins að bregða greiðunni í hárið, til þess að laga það, Ekkert annað permanent hefir „leyniefni“, það er eingöngu Toni. Toni er framleitt i þremur styrkleikum REGULAR fyrir venjulegt hár SUPER fyrir mjög fínt hár GENTLE fyrir gróft hár, skolað og litað hár Einn þeirra er einmitt fyrir yður. Toni framleiðslatryggirfegursta hárið enga matarlist. Einu sinni varð ég blindur í tvo klukkutíma . Hann gafst upp, hætti námi. En þrátt fyrir þessar andlegu þjáning- ar — og ef til vill einmitt vegna þeirra, var hann opinn og næmur fyrir öllu því, sem gerðist í kring- um hann. Hann reit blaðagreinar og réðist með offorsi á ýmsa máttar- stólpa. Skólafélagar hans hafa ýms- ar sögur að segja af honum um þetta leyti. Hann var svo fíngerður og viðkvæmur, að það kom þeim hvað eftir annað gjörsamlega á óvart. Hann varð sjúkur ef notuð voru í viðræðum ljót orð. Hann tók aldrei þátt í tali félaga sinna um kvenfólk og brennivín, flýði ef slíkt var til umræðu. Saga, sem einn félaga hans hefur sagt um hann, lýsir honum ef til vill betur en flest annað um þetta leyti: Hann hafði, eins og fleiri skólapiltar, notið tilsagnar Lárusar Bjarnasonar í náttúrufræði. Um vorið fór Lárus með nokkra nem- endur sína út í vaknandi náttúruna til þess að sýna þeim gróandann. Halldór var einn þeirra. Lárus hafði tekið maðk í lófa sér og spriklaði hann. Hann talaði við nemendur sína um maðkinn og náttúrur hans, en Halldór hafði ekki veitt því at- hygli, heldur snúizt á hæli og skim- að í allar áttir. Lárus gekk til hans og rétti honum maðkinn, en Halldór vissi ekki hvað á seyði var fyrr en skepnan teygðist í lófa hans. Sam- stundis sleppti hann sér af ótta og viðbjóði. Hann stökk í loft upp, rak upp skerandi óp, skalf eins og hrísla og fór að gráta. Þetta kom Lárusi gjörsamlega á óvart, svo og hinum félögunum. Halldór komst heim til sín ásamt herbergisfélaga sínum — og lagðist sjúkur .... Ef til vill brosa einhverjir að þessari lýsingu á viðkvæmni piltsins, en hér er um að ræða djúpa alvöru, einn meginþátt- inn í gerð skáldsins, einmitt þessi dulda viðkvæmni fyrir hinu grófa, slímkennda, óhugnanlega hefur sett svip sinn á verk þess FYRSTA BÓK OG FYRSTA UTANFÖR. Guðjón, faðir Halldórs, lézt þetta sumar. Síðar, þetta sama sumar, fór Halldór í sína fyrstu utanför, til Danmerkur. Um haustið kom út fyrsta bókin frá hans hendi: „Barn VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.