Vikan


Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 41

Vikan - 18.10.1962, Blaðsíða 41
1. Hárið á mér er orðið feitt þrem dögum eftir að ég þvæ það. 3. En í dag keypti ég NUVOLA. 5. Einungis að bursta hárið vel og þá verður það hreint án þess að liðirnir fari úr. 2. í»ví oftar sem ég þvæ það þeim mun feitara verður það. 4. Á þremur mínútum eyða hinir smáu kristallar allri feiti og óhreinindum úr hárinu. Ekkert vatn í hárið. 6. Húrra! Nú hef ég aldrei framar feitt hár. En hvað með yður? ótrúlega áhrifaríkt hárþvottaefni. Nuvola, þvær hárið án þess bleyta það. fæst í næstu snyrtivöruverzlun. Heildsölubirgðir: J. Ó. MÖLLER & COMPANY Kirkjuhvoli. — Símí 16845. isstaða norðursins! — Gleður mig. Vona, að þér kunn- ið vel við yður. Það kunna allir vel við sig hér í Punkaharju. — Mig furðar ekki á því. — En heyrið mér annars, herra Saarinen. Hvaða fólk býr á herbergi nr. 47 á þriðju hæð? Hann leit á mig og það kom ein- hver hótelvarúð í svipinn. Ég fann um leið, að ég hafði gert mig sekan um brot á háttvísi og bætti við, þó að það kynni jafnvel að gera illt verra: — Annars skiptir það engu máli. — Hefur herrann orðið fyrir ó- næði? Ég átti að skilja það svo, að það eitt kynni að réttlæta svo óvið- urkvæmilega spurningu. — Nei, engan veginn. Ég spurði aðeins af rælni, líður alltaf betur, ef ég veit hverja ég hef að nágrönn- um. Það er mín sérvizka. Afsakið. Ég snerist á hæli og gekk til dyra. — Bíðið augnablik. Þau heita herra og frú Gessler. Theodor Gessler, verzlunarerindreki frá Dresden. -—■ Þau eru á brúðkaups- ferð. — Þakka. Ég gekk niður að bátanaustunum, fékk mér kænu og reri út á vog- inn. Það var blæjalogn, skógarang- an og glitrandi sólskin. Ég fékk mér duglegan róðrarsprett út í sundin, lenti við tvær smáeyjar, var eigin- lega að skyggnast um eftir fallegum 40 VIKAN stað, þar sem ég gæti verið alger- lega útaf fyrir mig, synt, legið í sól, lesið. Ég fann brátt vík, sem var alveg eftir mínu höfði, mjúkur sandur, brennheitar klappir báðum megin. Það mátti stinga sér útaf þeim. í dæld upp af víkinni var bjarkalundur, beinvaxnar bjarkir með hvítum stofnum, mjúkt gras þétt upp að bjarkarótunum. Ég skírði hana í huganum Fögruvík. Þangað ætlaði ég að koma oft. Mér var nú allur flótti úr hug. Frú Gessler frá Dresden. Mér var ná- kvæmlega sama. Hún mátti heita Gudda úr Geitareyjunum mín vegna. Ég gekk upp að hótelinu með snúðugu dugnaðarfasi, eins og maður, sem hefur tekið ákvörðun. Það var kominn hádegisverðartími. IV. Þjónninn vísaði mér til sætis á sama stað. Hjónin sátu líka þar, sem þau höfðu setið í gærkvöldi. En nú hafði ég vaðið fyrir neðan mig, hafði til vonar og vara, gripið dagblað með mér í blaðasölunni. Nú gat ég borðað í ró og lesið mitt blað. Ég leit aldrei í þá átt, sem þau sátu, en sá það um leið og ég gekk fram- hjá þeim, að Theodor Gessler var mjög geðþekkur maður. Hann var fríður sýnum, ljós yfirlitum, glað- legur og mildur á svip. Ég sá ekki augu hans, veit ekki, hvort ég hefði litið í þau, þó að ég hefði átt þess kost. Mér þótti slsemt, að hann var svona álitlegur maður. Ég átti langt í land þá að geta þakkað lífinu fyrir þá hamingju, sem öðrum fell- ur í skaut, né skynjað mína eigin. En ég leit ekki í þá átt, þar sem þau sátu, borðaði hægt, las mikið. Nú skyldu þau fá að standa fyrst upp, skötuhjúin. Og það gerðu þau. Þegar þau voru að ganga út úr dyr- unum leit ég rétt sem snöggvast á eftir þeim. Hún gekk með aðra höndina á öxl hans og hallaðist eilítið að honum, eins og blóm, sem svignar. Þau gengu eins og einn maður. Það var eins og ein vitund stýrði þeim báðum. Það var ósvegj- anleg kvenleg ástúð í þessari sveigðu stellingu, sjálfsgjöf, þakklæti og traust. Þau gengu að stiganum, sem lá upp á efri hæðirnar. Ég sá þeim bregða fyrir á 5. eða 6. þrepi. Þau gengu ennþá, eins og einn maður. Svona myndu þau ganga alla leið upp á nr, 47. Svona myndu þau ganga þaðan út. Alltaf, Ég var allt í einu orðinn mjög einmana. V. Ég fór í gönguferð inn eftir Punkaharju-ásnum, reikaði um súlnagöng skógarins, telgdi mér kvistaprik og gerð mig heima- mannlegan. Það var dauðahljótt og svalt í skóginum, aðeins daufur þytur og skrjáf hið efra í laufi og limi, rökkur með flögrandi ljósi hið neðra. Eftir langa göngu beygði ég suður af ásnum, stóð allt í einu í birtu grasvalla og glitrandi vatna, smábára gjálfraði við strönd. En vitund mín er einhvern veginn ekki í sambandi við þessa náttúru. Hljóð hennar eru dumb, ljós hennar ó- virkilegt. Ég geng út með strönd- inni í átt til hótelsins. Það er bezt að drífa sig heim og fara að gera eitthvað. Ég er ekki búinn að vera hér nema rúman sólarhring og er þegar orðinn eins og hjáræna. Þessu til áréttingar lem ég kvistaprikinu harkalega í stein. En nú skal því vera lokið! Heim og vinna. Annað bylmingshögg í stein. Skógarnes gengur fram í vatnið, mjótt eins og fleygur. Stígurinn liggur fyrir oddann. Ég fylgdi stígnum gallharður í minni nýju ákvörðun, lít hvorki til hægri né vinstri, lít ekki upp. Um leið og ég beygi fyrir oddann rekst ég á þau. Það munar ekki hársbreidd, að ég hafi flanað í fangið á þeim. Þau haldast í hendur, brosa, hrökkva ofurlítið aftur á bak. — Afsakið, heiðursfólk! sagði ég á þýzku. Gekk hér grandalaus í þönkum. Ég heiti Ólafsson, frá ís- landi. — Góðan dag, Ólafsson. Ekkert að afsaka! Þau höfðu sleppt höndum. Það var hann, sem talaði. — Ég heiti Theodor Gessler frá Dresden. Þetta er konan mín, María Gessler. Við heilsuðumst. Hann var ákaf- lega viðfelldinn, tillitið rólegt og vingjamlegt, handtakið frjáls- mannlegt og þétt. Ég leit ekki á hana, tók aðeins í hönd henni og hneigði mig. Fann mér til ósegjan- legs léttis, að ég var alveg rólegur í návist hennar. Kannski er hún hættulegri í fjarlægð, hugsaði ég. Samt þorði ég ekki að hætta á sam- fylgd, þó að hún yrði boðin, kreisti kvistaprikið, tók á mig dugnaðar- fasið og sagði: — Vona að ég fái þá ánægju að hitta ykkur síðar! Bauð þeim góðar stundir og stikaði í átt til hótelsins. Ég vann eins og berserkur fram á kvöld, lét færa mér kvöldverð upp, nartaði í hann öðru hvoru, hamaðist. Ég var alráðinn í því að halda svona áfram fram á rauða nótt, leggja mig ekki fyrr en ég væri úrvinda af þreytu, sofa draum- laust. Klukkan tíu barst ómur af yndis- legri danstónlist upp til mín um opinn gluggann og svaladyrnar. Þá mundi ég eftir því, að í kvöld átti að vera dansleikur fyrir gestina í samkvæmissölum hótelsins. Ég rauk upp og lokaði glugga og dyrum. Það stoðaði ekki hót. Tónlistin flæddi um mig eftir sem áður, flæddi inn í mig, söng undurlágt í veggjunum, dunaði í gólfinu. Ég hætti við fræðiritgerðina, sem ég var að skrifa, fór að skrifa kon- unni minni bréf. Það var mjög inni- legt bréf, angurvært og saknaðar- þrungið. En það var haugalygi frá upphafi til enda. Ég sló í það botn- inn. Það var haugalýgi af því, að hugur minn var ekki hjá henni. Mér bauð við því og hætti við að skrifa á umslagið. Nú var hún að dansa niðri, sú, sem hugur minn var hjá. Mér varð það raunalega ljóst, að hugur minn var þar. Hún hét María. Hvað vissi ég um hana? Ekkert. Hvað varðaði mig um hana? Ekkert.-----------— Ég er sú hin sæla, sem elskar — þetta hafði-hún sagt. Það var einhvern tíma önnur María. Hún elskaði líka og af því að hún elskaði mikið, var henni fyrirgefið mikið. María Magdalena. Frú María Gessler •— verður þér líka fyrirgefið mikið? Þvæla! Hér verður ekki meira um vinnu. Hér verður ekki meira um svefn. Hvað þá? Ég snaraðist að skápnum, set koníaksflöskuna góðu á borðið, hringi á kaffi. Raka mig, dreypi á kaffinu, dreypi á koníakinu, skipti um föt. Geng nið- ur í samkvæmissalina. Gesslers-hjónin sitja við borð sér út við svalirnar. Ég geng þangað rakleitt, býð gott kvöld, sný mér síðan að honum: — Frú Gessler er eina daman, sem ég hef þá ánægju að þekkja í þessu samkvæmi. Leyfið þér að frúin dansi við mig einn dans? — Með ánægju. Hann leit til hennar eins og til þess að leita samþykkis. Hún var þegar staðin upp — brosti. Það var sama brosið. Hún minnti mig aftur á glitrandi bikar sem flóir yfir barma, freyðir og glitrar. Hún dans- aði mjög vel. Ég hafði að vísu ekki mikið vit á því, var sjálfur enginn snillingur. En þetta gekk létt og mjúkt og án allra árekstra. Ég var mjög vel á verði gagnvart sjálfum mér, hélt henni öruggt og þó aðeins frá mér, reif mig upp í að spjalla við hana, sagði nokkur gamanyrði, fékk hana til að hlæja sínum lága kurrandi hlátri. Þegar ég skilaði henni, bauð herra Gessler mér sæti við borðið hjá þeim. Ég þáði það umsvifalaust. Við sátum stundar- korn og spjölluðum. Hann hafði mjög falleg augu, drengileg, athug- ul og mild. Ég leit aldrei á frúna, en skynjaði hana alla eins og heitan, myrkan kraft í návist minni. Svo dönsuðu hjónin, urðu aftur eins og einn maður, eins og ein vitund stýrði þeim báðum. Ég varð mjög einmana, rauk á fætur og fór að dansa, dansaði við talsverðan hóp af konum og meyjum, sagði sömu vitleysurnar við þær allar, kom

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.