Vikan - 21.05.1964, Blaðsíða 45
Ferðaskrifstofan L A N D S Y N
TÝSGATA 3, REYKJAVlK - SlMI 2 28 90 - P.O. BOX 465.
0 Veitir upplýsingar og fyrir-
greiðs'u varðandi ferðalög um allan
heim.
0 Selur flugmiða hvert sem er.
Getur séð um fyrirgreiðslu á far-
miðum með skipum og jórnbraut-
um víðs vz-gar um heim.
& Onnumst fyrirgreiðslu á hótel-
gistingum innanlands og utan.
0 Skipuleggjum hópferðir og ferð-
ir einstaklinga innanlands og utan.
0 Erum umboðsmenn:
LOFTLEIÐA h.f., INTOURIST, Sovét-
ríkjunum, CEDOK, Té.kkóslóvakíu,
IBUSZ, Ungverjalandi, ORBIS, Pól-
landi, PUTNIK, Júgóslavíu, D.E.R.,
A-Þýzkalandi, BALKANTOURIST,
Búlgaríu, CARPATE, Rúmeníu,
SPUTNIK, Sovétríkjunum, LOMAM-
ATKA, Finnlandi, PROGRESSIVE
TOURS, Englandi, FOLKETOURIST,
Danmörku, CENTRO GIOVANILE PER
GU SCAMBI TURISTICI e CULTUR-
ALI, Ítalíu, LOISIR et VACANCES
de la JEUNESSE, Frakklandi.
0 Höfum auk þess bein viðskipta-
sambönd við fjölda annarra ferða-
skrifstofa víðs vegar um Evrópu,
Asíu og Ameríku.
Á þessu óri munum við auk fyrr-
greindrar þjónustu bjóða upp ó
ferðir til Sovétríkjanna, Austur-
Þýzkalands, Tékkóslóvakíu, Ung-
verjalands, Kúbu, Búlgaríu, Rúm-
en(u, Júgóslavíu, Austurríkis, Rín-
arlanda, Ítalíu, Spánar, Bretlands
og fleiri staða.
0 Eftirtaldar ferðir hafa verið
ákveðnar:
L.S.l. - SOVÉTRÍKIN.
18. dagar. 31 maí — 17. júní.
Verð áætlað kr. 16.000,00.
Flogið verður til Kaupmannahafn-
ar og þaðan verður flogið til
Moskvu, eftir tveggja daga dvöl
í Kaupmannahöfn. Ferðazt verður
um Sovétríkin og m.a. heimsóttir
staðir, svo sem Leningrad, Moskva,
Kiev, Yalta. Flogið verður aftur til
Kaupmannahafnar og síðan til
Reykjavikur.
L.S.2. - SOVÉTRÍKIN.
16 dagar. 4,—19. september.
Verð áætlað kr. 16.000,00.
Flogið verður til Kaupmannahafn
ar og þaðan beint til Moskvu og
ferðazt um Sovétrikin og heimsótt-
ir m.a. eftirtaldir staðir: Leningrad,
Moskva, Kiev, Yalta. Flogið til
Kaupmannahafnar og beint til
Reykjavíkur.
L.S.3. - AUSTUR-ÞÝZKALAND.
(Eystrasaltsvikan) 1., 3., 5.—20. júlí.
Mest 20 daga ferð. Verð áætlað
kr. 8.000,00 til 8.500,00.
Farið verður til Kaupmannahafn-
ar dagana 1., 3. og 5. júlí og geta
menn valið milli ferða. Þeir sem
fara 1. júlí geta stoppað 2 daga í
Kaupmannahöfn, en hinir fara með
lest og ferju beint til Warnemunde
þann 3. og 5. júlí. Dvalizt verður á
Eystrasaltsvikunni til 17. júlí með
þátttöku í hátíðahöldunum. —
Iþróttaleikir, skemmtiferðir, bað-
strönd, leikhús, kvikmyndasýning-
ar o. fl. — Þá verður farið um
Austur-Þýzkaland í tvo daga, m.a.
til Berlínar, og því næst til Kaup-
mannahafnar frá Warnemúnde með
ferju og lest og síðan flogið heim
til Reykjavíkur.
L.S.4. - TÉKKÓSLÓVAKÍA.
18 daga ferð, 5.-22. júní.
Verð áætlað kr. 14.000,00.
Flogið verður til Kaupmannahafn-
ar og þaðan til Prag og ferðazt síð-
an um Tékkóslóvakiu og heimsóttir
m.a. eftirtaldir staðir: Maríanske
Lazne, Karlovy, Vary, Frantiskovy
Lalne, Pilzen, Lidice. Síðan flogið frá
Prag til Kaupmannahafnar og það-
an heim til Reykjavíkur.
Aðrar ferðir verða auglýstar síð-
ar. Tilkynnið þátttöku sem fyrst
vegna takmarkaðs þátttakenda-
fjölda.
— ★ —
0 Þá viljum við vekja athygli á
því að við útvegum sérstaklega
ódýrar ferðir til Olympíuleikanna í
Tokyo í sumar.
Hægt er að velja um að fljúga
til Helsingfors, þaðan til Leningrad
og Moskvu eða til Kaupmannahafn-
ar og þaðan til Moskvu. En frá
Moskvu verður flogið til Khabarovsk
og þaðan með hraðlest til Nak-
hodka, en með skipi frá Nakhodka
til Yokohama í Japan. Sama leið
til baka. — Ferðalangar geta dval-
izt I 1—2 daga á eftirtöldum, stöð-
um: Leningrad, Moskvu, Khdbar-
ovsk og skoðað þar ýmislegt sem
þessar borgir hafa upp á að bjóða.
Leitið upplýsinga I tíma.
0 Einnig vlljum við benda yður á
skemmtilegar ferðir með skipum frá
Vín eftir Doná til Yalta með við-
komu á ýmsum stöðum í eftirtaldum
löndum: Tékkóslóvakíu, Ungvérja-
landi, Júgóslavíu, Rúmeníu og til
baka sömu leið. — 6 landa sýn.
Þægileg og skemmtileg ferð.
Við getum auk þess útvegað far-
miða í fjölda annarra ferða víðs
vegar um heim: vörusýningar, tón-
listarhátíðir o.fl. vlðs vegar um
Evrópu og Asíu. Þar viljum við
benda yður á hinar vinsælu leik-
húsferðir til Moskvu. Þar skemmta
frægustu listamenn heims á sviði
balletts, leiklistar og tónlistar.
0 Vandamálið er. Hvert viljið þér
fara? Viljið þér ferðast ódýrt? Viljið
þér skemmta yður vel? Við reynum
að aðstoða yður við að leysa vand-
ann.
0 Ef þér þurfið að fljúga, hringið
til okkar. Við útvegum flugferðir
strax með hinum glæsilegu Loft-
leiðavélum. Munið greiðsluskilmála
Loftleiða - FLUGFERÐ STRAX - FAR
GREITT SÍÐAR. - Loftleiðir bjóða
íslenzkum viðskiptavinum sínum
upp á þriggja til tólf mánaða
greiðs'.ufrest á allt að helmingi
þeirra gjalda, sem greidd eru fyrir
flugför á flugleiðum félagsins.
® ATHUGIB: Dragið ekki lengi að
hafa samband við okkur.
Síminn er: 22890.
Skrifið: — Utanáskriftin er:
FERÐASKRIFSTOFA
L/\ N Q B V N 1
P.O. BOX 465 - Reykjavik ísland