Vikan - 31.03.1966, Side 26
Sígurlaug
Sæmunds-
dótfir
arkitekt
Hringar og
sexhyrningar
í byggingarlist
Sigurlaug Sæmundsdóttir á ekki langan
starfsferil að baki, en hún vinnur mikið
til að anna því, sem hún hefur lofað, enda
teiknar hún húsin yzt sem innst og fylg-
ist með byggingu þeirra.
A teiknistofu hennar getur að líta teikn-
ingar að stórum heimavistarskóla, sem
verið er að byggja úti á landi. Þetta virð-
ist geta orðið í senn frumleg bygging og
falleg; skólinn er þrjár álmur út frá kjarna
í miðju. Sigurlaug hefur lagt sexhyrning-
inn til grundvallar við þessa byggingu
og mun það vera í fyrsta skipti, sem slík
form koma fram í byggingarlist hér á
landi. Þarna eru teikningar að tveggja
hæða einbýlishúsi, sem byggt verður í
Stykkishólmi. Þar hefur Sigurlaug notað
íslenzka burstastílinn á annars mjög ný-
tízkulegu húsi úr fyrirframgerðum hlut-
um. Uppi á vegg hanga grunnteikningar
af einbýlishúsi, sem er í smíðum á Flöt-
unum í Garðahreppi og er ekki ólíklegt,
að mörgum eigi eftir að verða starsýnt
á það hús. Það er að vísu ekki í nein-
um kastalastíl, en minnir óneitanlega á
klettaborg eða virki tilsýndar. Það er ný-
stárlegt, að öll horn í húsinu eru ávöl,
og telur Sigurlaug, að þetta form hæfi
steinsteypu vel. í Reykjavík er að
rísa raðhús frá teiknistofu Sigurlaug-
ar og er það með sama markinu
Framhald á bls. 30,
Ámi Guranapssora
fpéttamaður
IVIeð hlióðnemann
þar sem tiðinsíSn
gerast
Þar sem einhver meiri háttar tíðindi gerast á
landi voru, verða fréttamenn Ríkisútvarpsins að
vera viðstaddir, ef vel á að vera. Fréttaaukarnir
eru vinsælt efni enda gripnir beint út úr daglega
lífinu og fréttamennirnir eru líkt og góðkunningj-
ar á heimilunum, enda þótt fólkið hafi ef til vill
aldrei séð þá. Einn þessara manna, sem sér um að
koma fréttunum áleiðis til fólksins, er Arni Gunn-
arsson. Hann er fæddur á Isafirði 14. apríl 1940.
Foreldrar hans eru Gunnar Stefánsson og Ásta
Árnadóttir. Árni fluttist á barnsaldri til Reykjavfk-
ur og þar hefur hann alizt upp. Á námsárum sín-
um varð Árni altekinn af flugáhuga og þá var
hann alveg ákveðinn í því að gerast flugmaður.
Hann var kominn áleiðis með flugnám, en varð að
hætta við það af heilsufarsástæðum. En jafnframt
skólanámi var Árni á sjó, bæði á humarveiðum og
kokkur á síldarbát. Hann hefur einnig selt föt í
fataverzlun og lagt gjörva hönd á margt annað.
Það markaði tímamót fyrir Árna, þegar hann
fór til Bandaríkjanna í boði New York Daily Mirr-
Framhald á bls 30.
20 VIKAN 13. tbl.