Vikan - 31.03.1966, Page 27
augysingafeiknari
Fellur bókauppsetning bezt
Kaupsýslumenn af aldamótakynslóðinni hafa fram undir þetta
litið auglýsingar hornauga. En þeir verða fleiri og fleiri með
hverju ári.. sem skilja það.. að erfitt er að ná til fólks í nútíma
þjóðfélagi án auglýsinga. Afleiðing af þessu gamalgróna skiln-
ingsleysi á hlutverki og gildi auglýsinga, hefur meðal annars
verið sú, að auglýsingaþjónusta hefur verið í molum og fag-
mennskan heldur fátið. A þessu öllu hefur orðið mikil breyt-
ing á allra siðustu árum. Nokkrir ungir menn fara á ári hverju
til náms í auglýsingateikningu og við eigum álitlegan hóp af
ágætum fagmönnum á þessu sviði.
Einn þeirra sem hvað mest hefur rifið sig upp á fáum ár-
um er Gísli B. Björnsson. Þó er hann meðal hinna yngri manna
í stéttinni, fæddur í Reykjavík 1938 og alinn þar upp. Foreldr-
ar hans eru Fjóla Þorsteinsdóttir, ættuð úr Vestmannaeyjum,
•og ffarald St. Björnsson, bróðir Björns Th. listfræðings.
Gísli tók landspróf 1955 og byrjaði í þriðja bekk Mennta-
skólans í Reykjavík og var þá að hugsa um að verða arkitekt.
En þennan fyrsta vetur í Menntaskólanum, gerði hann upp við
sig hvað hann vildi; hætti þar á útmánuðum og fór strax í
Handíðaskólann. Þá var byrjað að kenna auglýsingateikningu
Franihald á bls. 30.
Jón E. Ragnarsson
lögfpæðingup
FuBlfpúi hjá bopgapsffópa
Á ári hverju útskrifast frá Háskóla íslands milli tíu og tuttugu
lögfræðingar. Það er undantekning, að þeir setji upp sjálfstæða
lögfræðistarfsemi fyrstu árin, því að stofnkostnaður er töluverð-
ur og fyrsta árið gefur jafnan litlar tekjur. Flestir fara því fyrst
í stað í fuiltrúastöður hjá lögmönnum, dómaraembættum, hjá
hinu opinbera eða í viðskiptalífinu.
Jón E. Ragnarsson er af yngsta árgangi lögfræðinga, en hann
lauk embættisprófi nú í vetur með góðri I. einkunn. Jón er
fæddur í Reykjavík á aðfangadag 1936 og hefur alla tíð átt
heima í höfuðstaðnum, ef frá eru skilin nokkur sumur við kúa-
smalastörf á Ströndum og tveir vetur f heimavist Menntaskólans
á Akureyri, en þar lauk hann landsprófi. Þótt heimavistin væri
talin hafa þroskandi áhrif á piltinn, þá leitaði hann fljótlega
aftur til föðurhúsa og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík 1957. Foreldrar Jóns eru Matthildur Edwald og
Ragnar H.B. Kristinsson, forstjóri, sem nú er látinn.
Framkvæmdastjóri Heimdallar var Jón veturinn 1957—58,
en fór síðan til Þýzkalands og lagði stund á þýzku og bók-
menntir f eitt misseri við Háskólann í Köln. Heim kominn hóf
Jón lögfræðinám og lauk þvf í vetur. Jafnframt náminu hefur
hann unnið meira og minna við blaðamennsku hjá Morgun-
blaðinu s.l. 5 ár.
Framhald á bls. 31.
VIKAN 13. tbl. 27