Vikan


Vikan - 06.04.1966, Page 12

Vikan - 06.04.1966, Page 12
Þan nota tímani til fnlls Hér er Unnur á þjóSbúningnum 0 og þrír Japanir kvikmynda hana vestur á Seltjarnarnesi. Unnur hefur verið virkur þátttak- andi í Þjóðdansafélaginu í mörg ár. Hér syngur hún einsöng hjá Þjóðdansafélaginu. Hér skartar frú Unnur Eyfells 0 skautbúningi. Litmynd sem tekin var af henni við sama tækifæri hefur verið gefin út á korti. VIKAN 14. tbl. á framfæri við listamanninn, að skipið ætti ef til vill ekki langt eftir ofansjávar eins og raunin varð á, og varð aldrei af því að myndin færi um borð. Á nokkuð ólíkri bylgjulengd er svo djörf abstraktmynd, mest í rauðum og svörtum lit, einnig eftir Jóhann arki- tekt og höggmyndasmið. í borðstof- unni er allmiklu hærra undir loft af eðlilegum ástæðum þar sem gólf hennar er um það bil hálfum öðr- um meter lægra en í stofunni. ( seilingarhæð var þar grannur járn- biti þversum, þar settur vegna þess, að Jóhann ætlar að gera sérstakan skulptúr fyrir þetta hús og honum á að koma fyrir þarna á bitanum. Það er svo margt athyglisvert og skemmtilegt innanstokks þarna, að maður meltir það naumast í stuttri heimsókn; þar sá ég t.d. röggva- feld einn forkunnarfagran og var upplýst, að hann væri eftir móður Unnar. Einar Eyfells er vélaverkfræðing- ur að menntun og hefur um árabil unnið á Keflavíkurflugvelli. Á síð- asta ári tók hann hinsvegar við því embætti hér hjá borginni að verða umsjónarmaður eldvarna. Það er umfangsmikið starf; hann fer t.d. yfir allar teikningar hjá byggingarfulltrúa, áður en þær eru lagðar yfrir byggingarnefnd. At- huga þarf staðsetningu kyndiklefa og stigahúsa, almennar útgöngu- leiðir og neyðarútganga, hólfun sundur á iðnaðarhúsnæði til að minnka hugsanlegar brunaskemmd- ir, kröfur um viðvörunar- og slökkvi- kerfi og ýmislegt fleira í sambandi við afbrigðalega starfsemi og notk- un bygginga. Einnig er fylgzt með innréttingum og frágangi með til- liti til eldhættu. Fyrst og fremst er hér um að ræða opinberar bygg- ingar, iðnaðarhúsnæði og sambýlis- hús. Hinsvegar nær þetta eftirlit ekki til einbýlishúsa og smærri húsa. Undir eldvarnareftirlitið heyra einn- ig leiðbeiningar og eftirlit með slökkvitækjum, allsstaðar þar sem um samkomuhald, atvinnurekstur eða starfsemi er að ræða. Við þetta starf er Einar með fjóra menn með sér og vinnur venjulegan vinnu- tíma. Á þessum síðustu og beztu við- reisnartímum er það algeng um- kvörtun, að enginn hafi tíma til neins. Ég hef oft hitt og talað við fólk, sem er uppfullt af áhuga á allskonar tómstundaiðju og sporti en lætur það duga og bætir við: — bara að maður hefði nú tíma til þess. Við þetta fólk vildi ég segja; sjáið þið bara hvernig Unn- ur og Einar Eyfells fara að því. Þau hafa tíma til að sinna ótrú- lega fjölbreyttum áhugamálum, eða eins og Einar segir sjálfur: — Mað- ur tekur sér tíma til þess. Ég sá þau hjónin fyrst fyrir þrem árum. Það var f ágústmánuði uppi í Kerlingarfjöllum. Einar var með allra færustu svigmönnum, sem þar voru f þann tíma og mér þótti merkilegt að sjá frúna fylgja hon- um eftir og ekki aðeins hana, held- ur einnig dóttur þeirra, sem þar var með þeim, og þá þegar orðin býsna fær í skíðasportinu. Nú spurði ég þau um skíðin og það kom í Ijós, að þau hafa ekki verið látin á hilluna eins og við er að búast hjá fólki, sem náð hefur árangri Framhald á bls. 48.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.