Vikan


Vikan - 06.04.1966, Blaðsíða 40

Vikan - 06.04.1966, Blaðsíða 40
sagði hann. „En einum of kurt- eis, finnst þér ekki?“ „Ég býs við að þið hafið séð, hve fljótur hann var með kokk- teilana," -var Villi að segja þeg- ar ég kom aftur inn. „Og sáuð þið hvernig hann skóflaði í sig steikinni og nýrunum? Hann hef- ur áreiðanlega ekki fengið al- mennilega máltíð svo vikum skiptir.“ Villi frændi gleymdi aldrei eigin reynslu af því, sem hann hann var eldri aðilinn að firm- anu Maugham og Sewall. Þegar hann var við málafærslustörf fyrir brezka sendiráðið, hitti hann stórfallega unga stúlku, Edith Mary Snell, sem þá hafði nýlokið menntun sinni í frönsk- um klausturskóla. Þau gengu í hjónaband í París árið 1864. Ed- ith var þá aðeins tvítug og mjög falleg, sem fyrr er sagt. Robert Ormond Maugham var fertugur — og hroðalega ljótur. í París synir hennar skyldu eiga til minningar um hana. Svo voru kraftar hennar á þrotum. Þessi mynd stóð alltaf á litlu borði hjá rúmi Villa, og hann notaði þetta atvik, eins og hann notaði næstum öll mikilvægari atvik bernsku sinnar, í skáldsöguna Of Human Bondage. Fátt er dulbúið í Of Human Bondage. Eftir að faðir Villa dó 1884, var Villi sendur til dvalar hjá frænda sínum og frænku í ég ekki. Fyrir fáum árum borð- uðum við Villi tveir einir saman í Lundúnum. Hann var veikur og hann fann til, og hugur hans stundum á nokkru reiki. Skyndi- lega umlaði hann: „Ég kemst aldrei yfir dauða hennar.“ Sem snöggvast hélt ég að hann ætti við mína kæru systur Kate, sem dáið hafði viku áður, en .þegar hann hélt áfram máli sínu, skildi ég að hann var að hugsa um móður sína, sem þá var dáin fyrir Perla er mitt þvottaduft kallaði „nístandi angist fátæktar- innar, sem kemur yfir fólk, sem verður að lifa innan um þá, sem eru ríkari en það sjálft." „Ég hataði fátæktina,“ sagði hann eitt sinn við vin sinn. „Ég hataði að þurfa að nurla sam- an og spara til að ná endunum saman.“ Hann gleymdi því aldrei að fyrsta skáldsagan hans, sem sló í gegn, Liza of Lambeth, færði honum aðeins tuttugu sterlings- pund í aðra hönd, vegna óhag- stæðs samnings við útgefandann. Um hríð var hann hrjáður af kvíða fyrir því, að hann yrði að hætta við feril sinn sem rithöf- undur. Hann var kominn á fremsta hlunn um að viðurkenna ósigurinn og fá sér atvinnu sem skipslæknir. „Peningar,“ hefur hann skrifað, „eru sjötta skiln- ingarvitið. Án þess koma hin fimm að litlu gagni.“ Faðir Villa var einu sinni mik- ils metinn lögfræðingur í París; voru þau kölluð „Dísin og Dýr- ið“, og þau eignuðust fjölda önd- vegisvina. Amma mín var heilsu- veil og þjáðist af berklum, en þá var talið að barneignir hjálp- uðu konum að sigrast á þeim sjúkdómi. Elztu synir hennar þrír döfnuðu vel, en tveir þeir næstu dóu ungir. Þann tuttug- asta og fimmta janúar, 1874, fæddist svo sjötta og síðasta barn hennar, William Somerset Maugham. Átta árum síðar dó amma, útslitin og uppgefin, þótt hún væri aðeins þrjátíu og átta ára að aldri. Villi dáði móður sína, og mest- an hluta þeirra fimm ára, sem hún lifði eftir að éldri bræður hans höfðu verið sendir í Dover College, naut hann umhyggju hennar einn. Þegar móðir hans vissi, að hún átti aðeins fáeinar vikur ólifað- ar, kallaði hún á þjónustustúlk- una, lét búa sig í hvítan satín- kjól og taka af sér mynd, sem Kent. Frændi hans, sóknarprest- ur í Whitstable, var strangur, smámunasamur og þröngsýnn; þar á ofan var hann snobbari úr hófi fram. Frænka hans var tilgerðarleg en virðuleg, góð- gjörn en smásmugul. Bæði koma þau skýrt fram í skáldsögu Villa sem séra William Carey og kona hans. Whitstable, þar sem Villi varði svo mörgum sársaukafull- um æskuárum, heitir í sögunni Blackstable; Kantaraborg, þar sem Villi gekk í King’s School. varð Tercanbury; og síðast en ekki síst varð stam Villa að klumbufæti Philips Careys. Að öðru leyti eru fyrstu kaflar sög- unnar nærri óbreytt lýsing á bernsku Villa. „Ég skrifaði Of Human Bond- age til að losa mig við nokkuð, sem hvíldi á mér af óþolandi þunga,“ sagði Villi. „Ég vildi kveða alla þessa drauga niður, og það tókst mér.“ En tókst honum það? Það held nærri áttatíu árum. Þessi löngu liðnu ár höfðu gagngerð áhrif á skapgerð Villa. Auðmýktin, sem hann fann til vegna höf ðingj adaðurs f rænda síns, leiddi til þess, að síðar á ævinni mat hann mikils kunn- ingsskap við mikilsháttar fólk. Allt til dánardægurs þótti honum gaman að segja sögur um ríka og volduga kunningj a sína, um hátíðahöld og ferðalög. Morgun einn ekki alls fyrir löngu sátum við milli tveggja kýprustrjáa framan við húsið hans, þaðan sem ágætis útsýn er yfir Mið- jarðarhafið. „Þú manst,“ sagði Villi skyndilega, „að Svíakon- ungur kom hingað til hádegis- verðar. Ég hafði á undan spurzt fyrir um, hvað hans hátign vildi borða, og mér var sagt að það væri roast beef. Svo að Annette matbjó þennan rétt fyrir konunginn sem bezt hún kunni. Maturinn var borinn fyrir hann, og hann fór að borða 4Q VIKAN 14. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.