Vikan - 06.04.1966, Side 34
Hrein
frísk
heilbrigð
húð
l»aS iklptlr ekkl máll, hvernig húS þúr hafiSj
Þatl er engln húð elns.
En Nlvea hsefir sérhverri húð. Þvf Nivea-creme
eða hin nýja Nivea-milk gefur húðinni allt sem hún
þarfnast: Fitu, raka og hlð húðskylda Euzerit.
Og þets vegna getur húð yðar
notið þeirra efna úr Nivea sem hún þarfnast helzt.
Hún getur sjúlf ákveðið það magn, sem hún
þarfnast af fitu og raka.
Þetta er allur leyndardómurinn við ferska, heilbrigða og
Nivea-snyrta húð.
— Þú lokar þig sem sagt ekki
inni í skrifstofu eftir kvöldmat-
inn og segir við konuna þína:
Nú ætla ég að yrkja svolítið?
— Nei. Og ég hef aldrei haft
það eins og kaupmaðurinn upp
á Njálsgötu — eða er hann á
Grettisgötu? Hann orti bók á
sínum tíma og gaf út. Þegar hann
var svo í miðju kafi að af-
greiða virðulega frú, sem bað um
eitt kíló af molasykri, kom and-
inn yfir hann allt í einu, kannski
þegar hann var búinn að vigta
700 grömm — þá fórnaði hann
höndum og sagði: Nú verðið þér
að afsaka, frú mín góð, andinn
hefur hlaupið í mig. Og svo fór
hann inn í skrifstofu, lokaði pen-
ingaskápnum og orti ódauðleg
ljóð um ástina og Heklugosið —
og vesalings frúin beið á meðan.
Svo brátt hefur andinn aldrei
komið yfir mig niðri á Morgun-
blaði. En það stendur kannski
til bóta. ☆
ÖmótstæSileg freisting
Framhald af bls. 15.
— Þar sem við erum hér á annað
borð, getum við verið hér í nokkra
daga og skemmt okkur. Svo för-
um við heim og tölum aldrei fram-
ar um þessa vitleysu.
— Ég ætla bara að pakka nið-
ur fötunum mlnum, svo kem ég
eftir hálftíma. Þú ert afskaplega
góður við mig, Jeremy, sagði hún,
en ( fyrsta sinn meinti hún ekki
það sem hún sagði.
Óljóst var hún farin að finna
að hann var alls ekki góður við
hana, ekki f venjulegri merkingu
þess orðs. Hún fór með honum ti!
Banchester og hafði það á tilfinn-
ingunni að hún væri flutt f böndum,
en ósjálfrátt fannst henni að þessi
bönd þrengdu meira að Jeremy en
henni sjálfri. Hann var samt jafn
óendanlega þolinmóður við hana
og áður.
Svo fór hún að reyna hve langt
hún gætl gengið.
Hún keypti dýra hluti handa
sjálfri sér. Hún fussaði við honum
og brátt fór hún að koma Mill-
ard til við sig. Hún fór á kaffihús
með honum, þegar hún var f bæn-
um að verzla, og í hvert sinn sagði
hún Jeremy frá því, og bætti við
að henni þætti Millard mjög að-
laðandi. Það var þó langt frá því
að henni þætti það.
Allan sannleikann um hjónaband
sitt sá hún eitt sinn í hnotskurn,
þegar hún heyrði setningar sem
féllu milli tveggja manna á vöru-
sýningu sem hún fór á. Á sýning-
unni hitti hún Millard, sem kom
þangað með kunningja sínum. Mill-
ard varð þreyttur á henni þegar
hann fann að hann hafði enga von
um að fá að hátta hjá henni. Menn-
irnir heilsuðu henni kurtelslega um
leið og þeir gengu fram hjá einum
sýningarpallinum. Rétt á eftir varð
VIKAN 14. tbl.