Vikan


Vikan - 06.04.1966, Qupperneq 37

Vikan - 06.04.1966, Qupperneq 37
hún vör við að hún hafði tapað öðrum hanzkanum sínum og sneri við til að ná f hann. Hún var kom- in rétt að mönnunum þegar hún heyrði Millard segja: — Vesalings gamli Jeremy, hann er ennþá f hrosshársskyrtunni . . . Þetta orð, hrosshársskyrta, kom henni til að brjóta heilann. Þegar hún kom heim spurði hún Jeremy hverskonar skyrta það væri. — Hrosshársskyrta? Hún var not- uð á miðöldunum til sjálfspynding- ar. Munkar báru hrosshársskyrtu til að afplána syndir sínar. Nú til dags er þetta notað sem orðtak, það merkir eitthvað sem er auð- mýkjandi og erfitt og menn leggja á sig til sjálfspyndingar. Allt í einu rann upp nýtt Ijós fyrir Elsie. Jeremy var einskonar munkur sjálfur, hann áleit að það sem fram fór á milli þeirra fyrstu nóttina á hótelinu í London, hafi verið dauðasynd. Svo hafði hann reynt að bæta fyrir það, ekki henni, heldur sjálfum sér. Þegar hann gift- ist henni hafði hann lagt á sjálf- an sig eitthvað sem var „auðmýkj- andi og erfitt" til að pynda sjálf- an sig. Hún var honum dýrmæt, einmitt vegna þess að hann hafði viðbjóð á hverju augnabliki sem hann var samvistum við hana. Hvaða tilfinningar sem Elsie hafði áður haft gagnvart Jeremy, varð það nú að óslökkvandi hatri. Æ oftar dreymdi hana um að myrða hann. Hún lék sér að þessari hugsun allan veturinn. Sjálfsvirðing henn- ar hafði liðið skipsbrot, hún missti matarlystina og svaf illa. Það er hægt að segja upp á mínútu hvenær þetta ástand hennar tók enda. Það var klukkan hálf ellefu að kvöldi, fyrsta júní. Þau höfðu farið í bíó og þegar þau komu heim lá pakki á borðinu í anddyrinu með utan- áskrift Jeremys. — Þetta er gerðabókin. Bewley hlýtur að hafa komið með hana rétt eftir að við fórum,- Þetta sýn- ir að stjórnin vill hafa hraðann á. Við verðum að athuga vandlega hverjum þeir stinga upp á í stjórn. — Við getum gert það núna. — Nei! Þú ert þreytt, væna mín og það er ég líka. Þú getur at- hugað þetta meðan ég er á skrif- stofunni á morgun. Það er bezt að ég loki fyrir gasið, það er bezt að eiga ekkert á hættu. Gasiðl Það var eins og þetta orð æpti I heilanum á henni, en samt var sem öll deyfð væri rokin burt og hún vissi upp á hár hvað hún ætlaði að gera. Anna, ég sé að mamma þín er í símanum! Þau háttuðu og hún beið þang- að til Jeremy var sofnaður. Þá fór hún fram og skrúfaði frá gasinu aftur, opnaði fyrir gasarininn sem var næstur rúmi Jeremys. Svo lædd- ist hún út og lokaði hurðinni á eftir sér. Þjónustufólkið fór á fætur klukk- an sjö. Klukkan átta átti stúlkan að færa Jeremy morgunteið. Hún ætlaði að sitja í dagstofunni þang- að til klukkan hálf sjö. Ennþá var aðeins liðið að miðnætti. Setjum svo að Jeremy vakni, áð- ur en gasið næði að drepa hann. Hvað átti hún þá að gera. Hún hló lágt. Þá ætlaði hún að játa fyrir honum að hún hefði ætlað að drepa hann og siá svo til hvort hann fyrirgæfi það líka! Elsie sat í dagstofunni og fór að verða auqnlöng eftir morgun- skímunni. Það var júní og sólin kom upp klukkan þrjú. Hún leit á gluggann og svo á klukkuna, hún var aðeins eitt. Aldrei höfðu mínúturnar drattazt svona áfram. Ef hún sæti í myrkr- inu, gat hún átt það á hættu að sofna. Hún kveikti því Ijós oq á- kvað að taka sér eitthvað fyrir hendur, sem gæti haldið henni vak- andi. Jeremv hafði beðið hana að líta yfir gerðarbókina. Það var bezt að gera það núna. Hún sökkti sér ofan f bókina. Þar voru uppfærð nöfn allra sem höfðu tekið þátt í vörusýningu síð- asta árs. Þar sá hún Ifka að það hafði verið stungið upp á því á fundi að bjóða Millard þátttöku á næstu sýningu, en Jeremy hafði skrifað athugasemd á spássíuna: „óábyggilegur fjárhagslega". Hún var ekkert reið út í Millard, þótt hann hefði kallað hana hross- hársskyrtu. Um morguninn hafði hún hitt hann í bænum og þau höfðu fenaið sér kaffi á veitinga- húsi og þá talaði hann mikið um vörusýningu næsta árs. Henni fannst óréttlátt að útiloka hann frá sýningunni, þótt honum gengi ekki allskostar vel fjárhagslega. Hún strikaði því yfir athugasemd Jer- emys og skrifaði f staðinn: „Mæli eindregið með að hann sé kos- inn". Elsie tók varla eftir morgunskím- unni. Klukkan tuttugu mínútur yfir sex var hún búin að fara yfir bók- ina. Og hún var hreykin af sjálfri sér, þvf að Jeremy hafði sagt að þetta væri fimm tíma verk fyrir þau bæði. Nú var kominn tími til að fara upp f svefnherbergið. Það var til einskis að vera með blautt hand- klæði, hún varð bara að halda niðri í sér andanum, annars léti hún sjálf lífið. Svo opnaði hún dyrn- ar og flýtti sér að rúmi Jeremys. Þegar hún var búin að fullvissa sig um að hann væri dáinn, lædd- ist hún út aftur og beið eftir þvf að heyra einhverja hreyfingu, þá ætlaði hún að draga djúpt and- ann, flýta sér f rúmið og bíða þar til hún heyrði þjónustustúikuna England, Skotland, DanmÖrk, Noregur, Færeyjar.. . Flugfélagið sér yður fyrlr fari á íslandi og um víða veröld FLUCFELAC ISLANDS ÍCELANDAIR VIKAN 14. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.