Vikan - 07.09.1967, Síða 29
borgarmúrum Polycratesar má
enn sjá rústir af 30 varðturnum.
í forngripasafni eyjarinnar,
sem er eitt hið merkast í öllu
Grikklandi, gefur að Hta fjölda
hluta, allt frá frægum styltum
af vínguðinum Dionyos til saum-
nála og leikfanga.
Þeir sem hafa gaman af reikn-
ingi mega gjarnan minnast þess
að það var á eyjunni Samos sem
stærðfræðingurinn Pýþagóras
fæddist og setti þar á stofn fyrsta
heimspekiskólann árið 545 f. Kr.
Og stjarnfræðingurinn Aristark
gerði einnig garðinn frægan, á-
samt mörgum öðrum vitringum.
Seinna varð Samos rómverskt
skattland og enn síðar laut það
Tyrkjum. Þegar uppreisnin hófst
gegn ógnarveldi Tyrkja árið 1821
gengu íbúar eyjarinnar fram af
miklum hetjuskap sem lengi
verður í minnum hafður. Árið
1832 hlaut eyjan sjálfstæði en
sameinaðist loks Grikklandi árið
1812 eftir blóðuga uppreisn.
Á eynni Samos rísa há fjöll
skógi vaxin, hringinn í kringum
eyjuna eru ævintýralegar bað-
strandir en margvíslegur gróður
milli fjalls og fjöru. Loftslagið
er milt eins og á öðrum eyjum
þar í grendinni. íbúarnir fram-
leiða tóbak, olívuolíu og ávaxta-
safa en kunnasta framleiðsla eyj-
arskeggja er þó „Samos vinið“
sem frægt er um víða veröld. Og
þar stunda karlar fiskveiðar á
litlum bátum en konur sitja við
vefstóla.
Það yrði of langt mál að telja
upp alla þá hluti sem gefur að
iíta á eynni og minna á hina
glæstu fortíð: fornt leikhús, borg-
armúrar Pólukratesar, rústirnar
af hofi Heru og frá miðöldum
stendur enn í fullri dýrð mikil-
fenglegur kastali í sinni upphaf-
legu mynd. Þarna eru líka býs-
antísk klaustur sem staðizt hafa
tímans tönn.
Við kvöddum Samos síðdegis
og nú var stefnt aftur tii Aþenu.
Mér gafst ágætt tækifæri til að
ræða við Trikaiis skipstjóra.
Hann kvaðst afar hrifinn af hinu
nýja skipi sínu og stoltur af því
að þetta prúða skip sigldi nú
undir grískum fána. Trikalis
skipstjóri er 57 ára að aldri, hann
fór til sjós 18 ára að aldri og
hefur síðan siglt um öll heims-
ins höf á allskyns skipum.
Stærsta skipið sem hann hefur
stjórnað var 6000 lestir að stærð.
Á stríðsárunum var hann yfir-
maður á tundurspilli. Það var
einhverju sinni að kafbátur
skauzt upp úr sjónum og andar-
tak sást rák á sjónum stefna með
eldingarhraða á tundurspillinn.
Á síðustu slundu tókst Grikkjum
að snúa tundurspillinum þannig
að tundurskeytið smaug hjá án
þess að vinna þeim neitt tjón.
En Grikkir vildu þó sýna lit á
því að endurgjalda kveðjuna þó
í smáu væri og ójafn leikurinn.
Trikalis gaf skipun um að skjóta
36. tbi. VIKAN 29