Vikan


Vikan - 22.03.1968, Blaðsíða 10

Vikan - 22.03.1968, Blaðsíða 10
HIIER VERDUR FULLTRÚI UNGU KYNSLÓDARINNAR 196S? Þá eru það stúlkurnar númer þrjú og fjögur. Eins og áður eru þær í fötum frá Karnabæ, sem ásamt Vikunni stendur að keppninni. Ekki er ætlazt til, að lesendur greiði atkvæði um stúlk- urnar, heldur mun sérstök dómnefnd fjalla um úrslitin. Eins og áður hefur komið fram, skiftir fegurðin ekki meginmáli í þessari keppni, hæfileikar og persónuleiki eru auk útlits þau atriði, sem tekið verður tillit til. GLÆSILEG VERDLAUN Sigurvegari í keppninni fær verðmæt verðlaun: Ferð til Englands og dvöl á sumarskóla þar. Kristín Waage, full- trúi unga fólksins 1967, hlaut sams konar verðlaun og var á síðastliðnu sumri á skóla í Newton Abbot á Devon, og lét hún mjög vel af vistinni, eins og lesendur Vikunnar rek- ur sjálfsagt minni til. Onnur verðlaun er plötuspilari af vandaðri tegund. Þriðju verðlaun eru gott úr. Allir þátttakendur verða leystir út með fatnaði frá Kamabæ. GUDRÚN RIRGISDÓTTIR ÁSENDA 15, REYKJAVfK NO. 4 TIL URSLITA Hún er dóttir Ásdísar Jóhönnu Jónas- dóttur og Birgis Jóhanns Jóhannsson- ar, fœdd 22. janúar 1952 og því 16 ára. Hún er 166 sm, bláeyg og ljóshærð, og lærir um þessar mundir undir lands- próf í Réttarholtsskóla, 3 bekk X. — Hún segist hafa gaman af að reikna, þótt hún sé ekki dugleg í reikningi, og enska er iíka uppáhaldsfag. í fyrrasumar var hún á sumarskóla í Brighton í Suður-Englandi, en hefur líka unnið á sumrin á tannlæknastofu Birgis Jóhanns Jóhannssonar. Hún fer stundum út að dansa, oft- ast á skólaböll, en stundum i Tjarnar- búð. Það er vínveitingastaður, en henni finnst ekki mikið fylliri þar. Helzt segist hún verða vör við ölvaða ung- linga í hópi þeirra, sem ekki er hleypt inn á skemmtistaðina. Aðspurð um unglingavandamálið segir hún: Jahá, þau eru mörg. Það er of lítið um samastaði fyrir 16—17 ára urtglinga. Þau mega fara í Búðina, en hún er mikið sótt af 15 ára unglingum, og þá vilja þeir sem eru 16—17 ára ekki vera með. Tómstundaheimilið á Frí- kirkjuvegi 11 er mjög skemmtilegt fyrir 13—15 ára unglinga, og Guðrún kom þar iðulega í fyrra, en það er sama sagan, 16—17 ára unglingar telja sig ekki eiga samleið með þeim. Til úrbóta á unglingavandamálinu þarf fleiri og fjölbreyttari staði fyrir 16— 17 ára hópinn. Hún segir félagslíf mikið og gott i Réttarholtsskóla, oft haldna málfundi, og svo er opið hús. Opið hús er það, þegar nemendur skólans geta komið þangað á kvöldin og unað sér við spil, kvikmyndasýningar, bob, tennis og fleira, eftir því hvað hverjum þókn- ast. Guðrún hefur verið í jassballett og píanótímum, en hefur nú orðið að leggja það á hilluna um stund til þess að einbeita sér að landsprófinu. Að því náðu hyggst hún fara í mennta- skóla og þaðan í háskóla, en hefur ekki ráðið við sig enn, hvað hún tekur fyrir þar. Hún gæti mjög vel hugsað sér að vera flugfreyja á sumrin, með- an hún er i skóla. Varðandi giftingaraldur segir hún fyrir sig, að hún vilji að minnsta kosti vera orðin 22—23 ára, þegar hún geng- ur í það heilaga. Mannsefnið á þá að vera tveimur árum eldra, — en alls ekki yngra en hún. Hún telur trúlof- unartíma hljóta að verða misjafnan eftir fólki, en heldur að löng trúlof- un geti verið leiðigjörn. Væri hún ekki Islenzk gæti hún hugsað sér að vera itölsk, vegna þess hve vel henni féll við itölsku ung- lingana, sem hún kynntist í skólanum i Brighton. Af horfnum íslenzkum konum kýs hún helzt að velja Bríeti Bjamhéð- insdóttur sér til fyrirmyndar, vegna þess hve hún hafi verið merkileg kona. Hins vegar tekur hún það skýrt fram, að hún sé hreint engin sérstök kvenréttindakona. ☆ LJÖSMYNDIR: ÓLI PÁLL 10 VIKAN 11 M

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.