Vikan - 22.03.1968, Page 12
Solin skein yfir Karberg þeg-
ar Greta opnaði frönsku glugg-
ana á svefnherberginu og teygði
ferskt morgunloftið. Bláu augun
hvörfluðu yfir stóran og fagran
skrautgarðinn, námu staðar við
litla styttu, hvörfluðu svo áfram
að lítilli tjörn og tveim öspum
sem stóðu sitt hvorum megin við
smíðajárnshliðið. Svo heyrði hún
eitthvert þrusk að baki sér og
leit við. f dyrunum stóðu maður
og kona. Þau voru hálfvand-
— Það liggur ekkert á, svar-
aði maðurinn. Feimnin rann af
honum og það kom á daginn að
honum var liðugt um málbeinið.
Hann gekk út að glugganum og
lýsti því með mörgum orðum
hvað þyrfti að gera í garðinum
og sagðist snúa sér að því strax
á morgun. Greta hlustaði á hann
með öðru eyranu og þótti gaman
að áhuga hans.
Konan stóð í gættinni og hlust-
aði á orðaflaum manns síns,
þrjAr konur
HÖFÐU FRAMIÐ
SJALFSMORÐ
[ ÞESSU HÚSI.
SKYLDI HÚN
VERÐA SÚ
FJÖRÐA?
ræðaleg og báðu fyrirgefningar
á því að þau skyldu koma óboð-
in inn í húsið. Maðurinn var
feitur og klæddur þröngum
vinnufötum. Hann gekk fram og
hneigði sig klaufalega.
— Góðan daginn, frú, sagði
hann og hneigði sig aftur. —
Konan mín og ég höfum verið
fjarverandi í nokkra daga, og
þess vegna gátum við ekki verið
viðstödd þegar þið komuð.
— Ó, sagði Greta, — þið hljót-
ið að vera herra og frú Hoffers!
Fasteignasalinn sagði okkur frá
ykkur. Þið búið í litla húsinu,
þarna neðst í garðinum. Ég vona
að þið viljið halda áfram að
vinna héma fyrir okkur líka.
Hvað kjörunum viðvíkur er bezt
að þið talið við manninn minn.
áhugalaus, að því er virtist. Að
lokum fann hann að Greta kærði
sig ekki um að heyra meira, svo
hann þagnaði. Þá tók kona hans
til máls, með hljómlausri rödd.
— Hvað húsverkunum viðvíkur,
skal ég sjá um þau, frú.
Brúnu, útstandandi augun,
voru sem límd við gólfið meðan
hún talaði, og Greta kunni ekki
við fólk sem ekki horfði framan
í mann þegar það talaði. Hún
reyndi samt að vera vingjam-
leg, þegar hún sagði: — Þér haf-
ið algerlega frjálsar hendur. Svo
brosti hún og sagði. — Við eig-
um eftir að venjast hvert öðru,
og ég er viss um að þið kunnið
vel við manninn minn.
Garðyrkjumaðurinn tók þetta
sem uppörvun og byrjaði á nýju
orðaflóði. — Þið hjónin verðið
ábyggilega ánægð með þjónustu
okkar. Og hvað þessu draugatali
viðvíkur, þá dettur engum í hug
að taka það alvarlega. Fólkið
hérna í nágrenninu hefur svo
lítið að gera, þess vegna er það
með þessar kjaftasögur.
— Draugatal? spurði Greta. —
Hvað eigið þér við með því?
— O-o, sagði Hoffers og yppti
öxlum. — Orsakirnar fyrir því
eru bara einhvers konar tilvilj-
anir.
— Tilviljanir?
— Það er löng saga, sagði
Hoffers. — Hartmut, sem byggði
þetta hús fyrir níu árum varð
fyrir þeirri sorg að konan hans
framdi sjálfsmorð. Hann seldi
svo Kotteshjónunum húsið, og
frú Kottes framdi líka sjálfs-
morð. Þriðji eigandi hússins, sá
sem átti það á undan ykkur, frú,
var Ragon læknir og Clara kon-
an hans. Ja, — Clara framdi líka
sjálfsmorð í þessu húsi. En ég
held að þessi sjálfsmorð hafi ekk-
ert verið tengd hvert öðru. en það
er skiljanlegt að fólk talar um
þetta.
— Mér finnst þetta alveg
hræðilegt, sagði Greta.
Hún gat ekki leynt því hve
skelkuð hún var yfir frásögn
garðyrkjumannsins. Fasteignasai-
inn hafði ekki sagt þeim neitt
um þetta, að minnsta kosti hafði
hún ekki heyrt neitt um það —
Skildi Herbert hafa vitað það?
Hún var náföl, en róleg, þegar
hún sneri sér að garðyrkjumann-
inum og sagði: — Jæja, ég hef
nú ekki í huga að fremja sjálfs-
morð. Ég kann vel við mig hér,
og við hjónin keyptum þetta hús
með það í huga að verða hér
áfram.
Klukkan sex kom Herbert loks-
ins í bílnum sínum. Hún hljóp
til móts við hann og var komin
að bílnum um það leyti sem hann
opnaði hann.
— Halló, Greta mín, sagði
hann og vafði hana að sér. Hann
var hávaxinn, ljóshærður maður
um þrítugt.
Faðmlag hans kom henni til að
gleyma hrollvekjunni sem hún
hafði heyrt, um stund. Hún var
búin að fá þessar sjálfsmorðssög-
ur staðarins staðfestar í Karberg,
fyrr um daginn og hafði alls ekki
getað gleymt þessum óhamingju-
sömu konum, sem höfðu svift sig
Iífi í þessu húsi.
— Hvernig hefurðu haft það
í dag, elskan? spurði Herbert.
Hún hugsaði um hryllingssög-
urnar, en sagði ekki neitt. —
Jæja? spurði hann, lyfti upp ljós
um hárlokk og kyssti eyra henn-
ar. — Hefurðu fundið eitthvað
nýtt og spennandi.
— Komdu inn, sagði hún, —
ég vil heldur segja þér það inni
í húsinu.
— Hvað er það? spurði hann,
en fékk ekkert svar. Hann gekk
12 VIKAN 11 tbl