Vikan - 27.06.1968, Blaðsíða 5
azt fyrir utan sjoppu, sem
var þarna rétt hjá, Mér
brá illilega og fannst, að
það væri A. sem hefði slas-
azt. Ókunnu strákarnir
hlupu út og vinkona mín
líka. Ég elti þau. Mér
fannst vera hálka og snjór
og mjög dimmt. Ég kallaði
á eftir vinkonu minni:
„Hver var þetta? Var
það A.?“
Þá varð hún reið og
sagði hranalega:
„Hvað ert þú að gera
hér?“
Við hlupum svo út að
sjoppunni og þar lá A. með
lokuð augun, eins og hann
væri dáinn. Ég fékk kökk
í hálsinn og fleygði mér
niður við hlið hans. Ég
lagði vinstri hönd mína á
hægri kinn hans og tók
með hinni um höfuð hans
og lyfti því í kjöltuna. Þá
opnaði hann augun og ég
laut niður að andliti hans.
En svo vaknaði ég.
Þessi draumur var svo
skýr og eðlilegur, að hann
hlýtur að tákna eitthvað
sérstakt.
Ég vona, að þú ráðir
hann eins vel og þú getur.
Með kærri fyrirfram
þökk.
Ein áhyggjufull.
Þessi draumur boðar alls
ekki nein ótíðindi, þótt
hann hafi ef til vili verið
þér afar óþægilegur. Hann
er þvert á móti fyrir góðu.
Við mundum ætla, að
hann væri hagstæður fyrir
sambandið milli A. og þín.
A, opnar augun, þegar þú
lyftir höfði hans í kjölt-
una. En mikla erfiðleika
þarf að yfirstíga, áður en
óskir þínar rætast. Strák-
arnir og vinkonan gera þér
lífið leitt um nokkurt
skeið, en allt fer vel að
lokum.
SPÆUNGAR OG
ABSTRAKT
að hann sé alveg ferlega
myndarlegur.
Getur þú nú gert svo vel
og skorið úr þessu fyrir
mig?
Kær kveðja.
Arndís Jónsdóttir,
Ægissíðu, Reykjavík.
Þetta er einn og sami
maðurinn. Abstraktmálar-
ar kunna nefnilega að
teikna, að minnsta kosti
sumir.
ATVINNULAUSIR
UNGLINGAR
Kæri Póstur!
Ég er hissa á því, hve
lítið hefur verið skrifað um
mjög alvarlegt mál, sem
skotið hefur upp kollinum
hjá okkur undanfarin sum-
ur. Nú er flestum skólum
lokið, en unglingarnir
ganga iðjulausir um bæ-
inn og vita ekki hvað þeir
eiga af sér að gera. Oftast
hefur tekizt að útvega
flestum unglingum ein-
hverja vinnu á sumrin. En
þetta hefur gerzt erfiðara
með hverju ári, en aldrei
hefur það þó verið eins
slæmt og nú í sumar. Eg á
hvorki meira né minna en
þrjá syni í framhaldsskóla,
og enginn þeirra hefur von
um vinnu í sumar. Hvað
eiga þeir af sér að gera í
sumar? Og hvernig á ég
að fara að því að sjá fyr-
ir þeim, ekki aðeins í sum-
ar, heldur einnig allan
næsta vetur?
Mér finnst þetta vera
orðið mjög alvarlegt
vandamál og mig langar að
spyrja þig, hvort ekki
verði gripið til neinna
„ráðstafana“. Verður ekki
að minnsta kosti skipuð
„nefnd“ til að „athuga“
málið?
Með beztu kveðju.
Fátækur faðir,
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær
vinkonur, og erum ekki á
sama máli varðandi Bjarna
Jónsson, sem gerði mynd-
irnar í Spælingar og stæla.
Ég held því fram, að Bjarni
þessi sé ekki sá sami og
abstraktmálarinn Bjarni
Jónsson. Ef svo væri, af
hverju í ósköpunum málar
hann þá abstrakt?
Vinkona mín segist hins
vegar vera alveg viss um,
að þetta sé sami maður-
inn. Henni var einu sinni
bent á hann, og hún segir,
Eitthvað mun hafa verið
um þetta vandamál rætt að
undanförnu, og það mun
rétt vera, að atvinna sé nú
minni fyrir unglinga en
nokkurn tíma áður. —
Reykjavíkurborg starfræk-
ir vinnuskóla fyrir ung-
linga, en þar komast að
sjálfsögðu færri að en
vilja, þegar svona er í pott-
inn búið. Gaman væri, ef
hugvitsamir menn brytu
heilann um þetta vanda-
mál og sendu okkur tillög-
ur sínar.
Höfum einnig fyrirliggjandi allt efni til:
HITA-, VATNS- og SKOLLAGNA.
IsleifHC Jóasson M.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN — BOLHOLTI 4
SÍMAR: 3 69 20 -r 3 69 21
25. tM. VIKAN 5