Vikan - 27.06.1968, Side 14
Ní er oo oo
Henninoin að
ryðia sér ti! ríns
á íslandi
Hvað er ,,go go"? Eða go go stúlka?
Jú, það eru dömur, sem eru hafðar í búrum
í diskótekum (hver þekkir annárs betra orð yfir
slíka staði) eða stillt upp fyrir framan hlióm-
sveitir. Hið eina, sem af stúlkum þessum er
krafizt er að þær hreyfi sig nokkurn veginn f
takt við músikina. Skammt er síðan þetta fyrir-
brigði skaut upp kollinum hérlendis, en þó fer
víðsfjarri, að „go go stúlkur" séu einhver ný
bóla. Um langan tíma hafa þær verið hafðar í
danssölum erlendis gestum til augnayndis — og
til að örva fótamennt þeirra að líkindum. Þegar
,,go go" stúlkur komu fyrst fram í danssölum
hérlendis var ekki laust við, að dansgestir væru
í nokkrum vafa um, hvernig þeir ættu að
bregðast við. Þegar gestir seint um síðir hættu
sér út ó dansgólfið (flestir héldu, að hér væri
aðeins um skemmtiatriði að ræða), var þess gætt,
að hæfilegt bil væri milli dansmeyjanna og
gestanna. Sumir gesta af hinu sterkara kyni
virtust þó öllu ófjóðari að dansa ( kringum ein-
hverja „go go" stúlkuna en eigin dansnaut.
Þegar við vorum vitni að öllu þessu voru „go
go" stúlkurnar þrjár, og dansaði hver í sínu
horni. Eitthvað reyndu þær að samstilla hreyf-
ingarnar en það gekk skelfing illa.
Á Norðurlöndum eru „go go" stúlkur mjög
algengt fyrirbrigði, en mestur mun vegur þeirra
vera í Danmörku. Þar er meira segja efnt til
Danmerkurmeistarkeppni í „go go" hreyfingum.
Þróunin í þessum efnum hefur að undanförnu
gengið í þó ótt, að þvi fáklæddari sem stúlkurnar
Ylirleitt er það svo með tveggja laga hljómplötur,
að aðeins annað lagið nœr vinsældum og er það
hitt lagið á plötunni aldrei spilað. Lögin á ,,bak-
síðunni" eru yfirleitt ekki valin af jafn mikilli
kostgæfni og lagið, sem á að selja plötuna, en
stundum kemur það fyrir, að baksíðulögin á tveggja
laga plötum gefa titillaginu ekkert eftir. Þannig er
til dæmis með lagið ,,By request" sem er baksíðu-
lag, gefur það Mighty Quinn ekkert eftir, auk þess
sem það sýnir okkur nýja hlið á hljómsveitinni, en
lagið er grín frá upphafi til enda.
Pónik ofl
Einar
Hér er skemmtileg mynd aí
Pónik og Einar, þeirri vin-
sælu hljómsveit, sem víða
hefur verið á kreiki að und-
anförnu — austur í sveitum
og austur á fjörðum.
Skemmtileg hljómsveit með
úrvals söngvara í broddi
fylkingar. Þeir hafa aldrei
bundið sig við neina
ákveðna tegund tónlistar.
Þeir gætu jafnvel spilað
valsa og ræla og tangóa
heilt kvöld, ef því væri að
skipta. Þetta fer allt eftir
áheyrendum segja þeir. En
nú vill svo til, að þeir, sem
koma til að hlusta á Pónik
og Einar eru allflestir á
unga aldri og þá er ekki
um annað ræða en að spila
nýjustu lögin — og þar eru
Einar og hans menn sann-
arlega með á nótunum, enda
allir léttir í lundu.
14 VTKAN 25-tbl-