Vikan - 27.06.1968, Side 28
KRISTJÁN ELDJÁIN
Dr. Kristján Eldjárn er fæddur að
Tjörn í Svarfaðardal í Eyjafjarðar-
sýslu 6. desember 1916. Foreldrar hans
eru Þórarinn Kristjánsson Eldjárn,
hreppstjóri og bóndi, og Sigrún Sigur-
hjartardóttir frá Urðum í Svarfaðar-
dal.
Kristján settist í Menntaskólann á
Akureyri 1931 og lauk þaðan stúdents-
prófi 1936. Hann sigldi utan sama ár
og nam fornleifafræði við Kaup-
mannahafnarháskóla næstu þrjú ár-
in. Vorið 1939 hvarf hann heim, en
komst ekki aftur utan vegna stríðs-
ins. Hann gerðist þá stundakennari
við Menntaskólann á Akureyri, en
hóf skömmu síðar nám í heimspeki-
deild Háskóla íslands og lauk þaðan
meistaraprófi í íslenzkum fræðum
1944.
1945 var Kristján ráðinn safnvörð-
ur viö Þjóðminjasafnið. Hann tók við
embætti þjóðminjavarðar af Matthíasi
Þórðarsyni 1. desember 1947 og hefur
gegnt því síðan.
Kristján hefur tekið þátt í forn-
leifarannsóknum allar götur síðan 1937,
oftast hér á landi, en einnig á Græn-
landi, Nýfundnalandi og Gotlandi.
Hann hefur samið mörg rit um forn-
?°iifafræði, og eru þessi hin helztu:
Hústirnar í Stöng, 1947; Gengið á reka,
tólf fornleifaþættir, 1948; Um Hóla-
kirkju, 1950; Um Grafarkirkju, 1954;
Kuml og haugfé úr heiðnum sið á
íslandi, doktorsrit, 1956; Stakir stein-
ar, 1959; Hundrað ár í Þjóðminjasafni,
1962. Ritstjóri Árbókar Hins íslenzka
fornleifafélags hefur hann verið frá
1919 og hefur birt þar margar ritgerð-
ir, svo og í erlendum tímaritum.
Kristján Eldjárn hefur átt sæti 1 ótal
nefndum, gegnt ýmsum trúnaðarstörf-
um og verið sæmdur mörgum heið-
ursmerkjum.
Hann kvæntist 1947 Halldóru Krist-
ínu Ingólfsdóttur, sem er fædd á ísa-
firði 24. nóvember 1923, dóttir Ingólfs
Árnasonar, framkvæmdastjóra, og Ol-
afar Jónsdóttur. Þau hjónin eiga fjög-
ur börn, tvær dætur og tvo syni: Ólöf,
fædd 3. júlí 1947, stúdent, gift Stefáni
Erni Stefánssyni Jónssonar, arkiteks,
stúdent 1 Reykjavík; Þórarinn fæddur
22. ágúst 1949, við menntaskólanám;
Sigrún, fædd 3. maí 1954, við unglinga-
nám; Ingólfur Árni, fæddur 13. ágúst
1930.
7 ;-7 :
77; / .;/7.V ■
Kristján Eldjárn lýsir Þingvöllum fyrír Ólafi V. Noregskonungi 1961. Við
hlið konungs standa herra Ásgeir Ásgeirsson, forseti, og Emil Jónsson, ráðherra.
Við fornleifarannsóknir í Brattahlíð á Grænlandi. }
4 Kristján Eldjárn virðir fyrir sér nýfundinn forngrip.
28 VIKAN 25-tbl