Vikan - 27.06.1968, Síða 46
PER SPARID
MEDÁSKRIFT
ÞÉR SPARIÐ TÍU KRÓNUR Á HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ VERA
ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI
OG ÞER ÞEKKIÐ EFNIÐ
VIKAN ER IIEIMILISBLAÐ OG I I>VI ERU GREINAIt OG EFNI FYRIR ALLA A HEIMILINU, — UNGA OG
GAMLA, SI'ENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐIÆIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O. FL., O. FL.
KLIPPIÐ HER-----------------------------------------KLIPPIÐ HER
Vinsamlegast sendiS mér Vikuna í áskrift
□ 3 MÁNUÐIR - 13 töiubl. - Kr. 400,00. Hvert blað á kr. 30,77.
□ 6 MÁNUÐIR - 26 töiubl. - Kr. 750,00. Hverf blað ó kr. 28,85.
Gjalddagar: 1. febrúar — 1. maí — 1. ógúst — 1. nóvember.
, SKRIFIÐ GREINILEGA
I
I
I
L
NAFN
HEIMILI
PÓSTSTÖÐ
VIKAN
SKIPHOLTI 33
PÖSTHÖLF 533
REYKJAVÍK
SfMAR:
36720 - 35320
1
I
I
I
46 VJKAN 25'tbl-
ný yfirstétt stórbænda og iðjuhölda,
sem gnæfði hærra yfir almenning
an áður voru dæmi til í sögu Got-
lands.
Norðurlandaófriðurinn mikli, sem
Svíar háðu í tvo óratugi við Rússa,
Pólverja, Saxa, Dani og fleiri þjóð-
ir, lagði þungar byrðar á Gotlend-
inga sem aðra þegna Karls tólfta.
Undir lok ófriðarins, er Svíar höfðu
glatað yfirráðum á Eystrasalti, fór
sjólið Rússa báli og brandi um
austurstrendur Svíþjóðar. Komu þeir
einnig við á Gotlandi, brenndu
nokkra bæi og rændu fólki. Þreng-
ingar þessa tímabils virðast annars
hafa tengt eyna fastar við móður-
landið, en áður hafði verið um að
ræða. í heild varð átjánda öldin
uppgangstfmi fyrir Gotlendinga.
Lutu þeir þá dugandi landstjórum,
og einn þeirra, von Segebaden,
skipulagði vegakerfi eyjarinnar. Þá
tók Visbý einnig að rétta úr kútn-
um, þar reis nú upp ný stétt stór-
eignamanna, sem græddi vel á
verzlun og siglingum, meðal ann-
ars í sambandi við frelsisstríð Banda-
ríkjamanna.
1808 áttu Svíar og Rússar enn f
ófriði útaf Finnlandi, og er sú við-
ureign fræg af Ijóðium Runebergs.
Kom þá rússnesk flotadeild til Got-
lands og hernam það viðnámslaust.
Yfirstjórn innrásarliðsins hafði á
hendi Bodiskó aðmíráll, bezta skinn
og gleðimaður mikill. Fór hann
mildilega með Gotlendinga og þótti
brátt góður gestur í salarkynnum
Visbýar-auðvaldsins. Styrjaldir voru
honum hinsvegar síður að skapi, því
þegar sænsk herskip komu skömmu
síðar til eyjarinnar, gaf hann upp
herfang sitt jafn friðsamlega og
hann hafði aflað þess.
Síðasti hluti Gautasögu er heldur
snauður af stórviðburðum. Eyjan er
löngu orðin gróið líffæri f Ifkama
hins sænska velferðarríkis; hlutverk
hennar þar er nú fyrst og fremst
að sjá Stokkhólmi fyrir lífsnauð-
synjum. Sjálfsagt líður nú börnum
hennar betur en nokkru sinni áður,
enda þótt merki nýja tímans virðist
harla fáfengileg f samanburði við
tákn fornra frægðardaga. Hér finn-
ur gesturinn úr milljónaborginni
fróun f friði og kyrrð hins afskekkta
sem einnig eykur á dulúð hins liðna.
— Og þó að Gotland sé nú aðeins
fremur lítilfjörlegur hluti Svíþjóðar,
ber það sterkari eiginsvip en flest
eða öll önnur héruð landsins. Þvf
má líkja við víðförulan víking, sem
bragðað hefur á flestum ávöxtum
veraldar, sætum sem beiskum, en
að lokum hlotið sátt við lífið í
iImi smáans í túni feðra sinna.