Vikan


Vikan - 26.09.1968, Blaðsíða 40

Vikan - 26.09.1968, Blaðsíða 40
Ronson HÁRÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF EINKAUMBOD: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Eins og undanfarið halda verkefnin áfram að hlað- ast á þig, en þér verður furðuvel ágengt. Þú nýtur félagsskapar sjaldséðra ættingja um stundarsakir. Heilladagur er þriðjudagur. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú gerir nokkrar tilraunir til að fá leyst úr spurn- ingu sem hefur valdið þér nokkrum ónotum. Þú færð fréttir af vinum þínum sem valda þér heila- brotum. Þú ferð í fámenna skemmtiferð. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vinur þinn hjálpar þér dyggilega þegar þú gefur honum bendingu. Veikindi hafa áhrif á atvinnuna. Þú vcrður stálheppinn á laugardag. Heillalitur er gulur. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlf): Þú kvíðir fyrir fundi með yfirboðurum þínum. Lík- ur eru á að þú verðir að leggja harðar að þér 1 framtíðinni. Þú átt kost á að taka með þér gest á skemmtun, en þú átt mjög erfitt með að velja hann. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Af einhverjum ástæðum ertu nokkuð miður þín og gctur ekki notað starfskrafta þína sem skyldi. Þú stendur starfsfélaga þinn að óheiðarleika, en gerðu ekkert að sinni í málinu. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Varastu að tala mikið um samstarfsmenn þína út á við. Kunningjar þínir koma óvænt með lausn á verki sem þú hefur átt í erfiðleikum með. Þú verð- ur á mikilvægum fundi. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Vegna utanaðkomandi áhrifa verðurðu að draga ýmsar persónulegar framkvæmdir. Þú neyðist til að rifa seglin, en getur huggað þig við að margir eru vcrr settir en þú. Heillalitur er blár. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú lendir í klípu og úr henni rætist ekki fyrsta kastið. Ef þú ert glöggur geturðu losnað við fylgi- kvilla hennar. Varastu að safna að þér verkefnum, það hafa vissir hlutir forgangsrétt. Bogamannsmerkið (23. nóv. — 21. desember); Þú átt því láni að fagna að þú losar þig við tvær skuldir sem þú hefur haft áhyggjur af. Þú gerir skynsamlegar áætlanir í samráði við þér reyndari persónur. Þú ferð í leikhús. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Kunningi sem þú hefur oft aðstoðað sýnir þakklæti sitt í verki. Þér verður boðið á vinsælan skemmti- stað, þar sem nokkuð óvænt ber fyrir sjónir. — Fimmtudagur er góður til viðskipta. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú hefur áhyggjur af að geta ekki staðið í skilum meö verk þín. Þú tekur upp gamalt tómstundastarf og sinnir því nú með endurnýjuðum þrótti. Póstur- inn leggur leið sína oft til þín. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú stendur í þakkarskuld við nákomna persónu og þér þykir leitt að geta ekki endurgoldið vináttu hennar. Eldri maður ber upp vandræði sín við þig og áttu mjög úr vöndu að ráða. 40 VTKAN 38' tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.