Vikan - 31.07.1969, Blaðsíða 2
VERBLÆKKUN
Knstar mí kr. 260.000-
Vegna hagstæðra samninga við FORD-verksmi9jurnar í Englandí
getum vi9 bo9i9 y9ur Ford Cortina á kr. 260 þúsund. Ver9 til ör-
yrkja 190 þúsund krónur.
ATH.: Lækkun þessi er tímabundin. Geri9 hagstæ9 bílakaup.
Margs konar bílaskipti möguleg.
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
Umboðsmenn úti á landi:
Bílasala Akraness: Bergur Arnbjörnsson
Vestmannaeyjar: Sigurgeir Jónasson
ísafjarðarsýsla: Bernódus Halldórsson, Bolungavík
Siglufjörður: Gestur Fanndal
Vilji almennings
í flestum lýðfrjálsum lönd-
um er almenningsálitið eitt
sterkasta afl þjóðfélagsins.
Stjórnmálamenn varast eins
og heitan eld að fá það upp
á móti sér, því að ella gætu
þeir átt á hættu, að dagar
þeirra á vettvangi stjórnmál-
anna yrðu senn taldir. Þess eru
dæmi erlendis, að stjórnvöld
hafi ekki séð sér annað fært
en hætta við fyrirhugaðar að-
gerðir, vegna eindreginna
mótmæla almennings.
Hér á landi er þessu á allt
annan veg farið. Stjórnmála-
menn virða vilja almennings
yfirleitt að vettugi, nema þá
rétt fyrir kosningar, þegar
þeir lofa gulli og grænum
skógum. Góðu heilli hafa á
undanförnum árum orðið til
nokkrir þættir bæði í blöð-
um og útvarpi, þar sem al-
menningi gefst öðru hverju
kostur á að láta álit sitt í
ljós á ýmsum málum. En
þetta kemur að litlu sem engu
haldi, þar sem ráðamenn
virðast ekki hafa neinn áhuga
á að kynnast skoðunum al-
mennings. Auðvitað hljóta að-
gerðir stjórnvalda stundum
að verða óvinsælar, þótt þær
séu ill nauðsyn. Hins vegar
kemur það alltof oft fyrir,
að nær allir séu sammála um,
að ranglæti hafi verið beitt,
en það fæst ekki leiðrétt,
þrátt fyrir almenna óánægju.
I þessu sambandi má nefna
ranglátar stöðuveitingar, sem
mótmælt hefur verið, en síð-
an hefur sama sagan endur-
tekið sig aftur og aftur. Nú
síðast er nokkrum nýstúdent-
um meinað um inngöngu í
læknadeild háskólans fyrir-
varalaust, en enn er óvíst, að
þeir fái nokkra leiðréttingu
mála sinna, þótt nær allir séu
sammála um, að þeir hafi ver-
ið rangindum beittir. Ótal
fleiri dæmi mætti nefna, þar
sem ekki hefur verið tekið
minnsta tillit til vilja almenn-
ings. G.Gr.
9. VIKAN
31. tbl.