Vikan - 31.07.1969, Blaðsíða 34
— Segðu halló við ömmu, elskan! — É'g hafði nú hugsað mér ann-
að, þegar þú bauðst mér út að
borða!
V.________________________________________________________________________________________________________________________________________^
— Þér hafið þó ekki slasazt?
spurði Hilda.
— Nei, nei, sagði dr. Feldman.
— En það drukknaði maður, ves-
alingurinn. Annars hafði ég það
stórfínt. Jæja, sagði hann svo
og neri saman fíngerðum skurð-
læknishöndum sínum, eins og til
þess að njóta þess fyrirfram að
vera fær um að bjarga manns-
lífum, — hvað heitir þá fyrsti
sjúklingurinn okkar þessa vik-
una?
— Það er einhver frú Moritzer,
sagði Hilda
Punktar, kommur
og þankastrik
Framhald af bls. 11
sem dugar, og til þess þarf menn
með viti, en enga stórskrýtna
vísindamenn sem sjá ekkert
nema mold og slor. Og það eru
svoleiðis menn sem eru að drepa
okkur úr hor og volæði með alls
konar béuðum bætiefnum. ís-
lenzkir bændur eru að drepa
niður hvert einasta kvikindi hjá
sér með svoleiðis óþverra, og svo
bölvuð fíflin sem eru að anda að
sér rykinu hér 1 Austurstrætinu;
þú ert ágætur, elskan mín. En
það er þessi heimska og ágirnd
sem gerir mig reiðan. Ég kann
nefnilega að verzla, og er á móti
allri þessari verðbólgu og sí-
felldu hækkunum. En eins og ég
segi, þá er álarækt það eina sem
dugir, og hefði ég nokkrar millj-
ónir, þá gæti ég farið út í þetta,
og grætt milljónir á milljónir of-
an á nokkrum dögum. Hrossa-
kjöt er fínasta álafæða, en ekki
ólukkans bætiefnin sem eru allt
að drepa.“
Og hugsuðurinn útlistaði fyrir
mér, fjálglega, hvernig mætti
breyta sjálfu Austurstræti í ála-
poll, og talaði mikið. í rauninni
talaði hann svo mikið, að ég gat
varla andað á meðan. Hann vitn-
aði sífellt í álaræktarpésann
sinn, sem ég hafði af slysni ját-
að að hafa heyrt getið um. Loks-
ins kom ég að orði, og bað meist-
ara Hoffmann að se’ja mér eitt-
hvað um sjálfan sig. „Ja, ég er
fæddur árið sem André flaug til
pólsins, og ef þú veizt eitthvað
um þann mikla mann, þá get-
urðu sagt þér sjálfur að ég er
fæddur árið 1897- En heyrðu,
ertu frá VIKUNNI? Þú gætir þá
skotið því að ritstjóranum að
hann gæti fengið langt og gott
viðtal við mig.“
Ég lofaði að skila þessu til rit-
stjórans, og fór svo að reyna að
hafa mig brott úr Austurstræt-
inu, enda var ég búinn að hlusta
á þennan afkomanda víking-
anna — í beinan karllegg — í
nærri heila klukkustund. Það
tókst átakalaust, eftir að Pétur
Salómónsson Hoffmann hafði
stillt sér upp fyrir myndatöku,
og var ekki laust við að sópaði
að þessum aldna höfðingja þar
sem hann stóð í hinum ímyndaða
álapolli í skikkjunni.
Við hinn endann í Austur-
stræti er bílastæði, sem við, unga
fólkið, köllum „Hallærisplanið“
í daglegu tali. Töffarar á trylli-
tækjum leggja bílum sínum þar
á kvöldin, og flauta á stelpurnar
sem leið eiga hjá. Gárungarnir
kalla þessa menn „Hannibalista“,
og gefa þá skýringu, að þeir sitji
eins og gammar yfir hvaða tæki-
færi sem þeim gefst, sama hve
lítilfj örlegt það sé. En þennan
sólskinsdag voru engir töffarar á
Hallærisplaninu, heldur ein-
göngu virðulegir borgarar sem
voru að sinna erindum sínum í
miðbænum.
Sami umsjónarmaðurinn hefur
verið þarna í 6 ár, Jason Sigurð-
arson, ættaður norðan af Jökul-
fjörðum, nánar tiltekið frá Stein-
hólum í Grunnvíkurhreppi, —
fæddur 1898. „Það eru bara tveir
menn i bænum sem heita þessu
nafni,“ sagði Jason, „og ég var
skírður eftir afabróður mínum.
En ég má annars ekkert vera að
því að tala við þig, og hef held-
ur ekkert að segja.“
Ég lofaði að trufla hann ekki
lengi, bara ef hann vildi segja
mér eitthvað um sjálfan sig og
mannlífið í heild. „Ég er enginn
spámaður,“ svaraði hann, „og ef
þú ert að spyrja um unga fólk-
ið, þá er það sjálfsagt ágætt, en
mér líkar bara ekki við þessa
hávaðatónlist og síða hárið á
bítlastrákunum. Hitt er annað
mál, að ég hef gaman af kórum
og einsöngvurum og þess háttar;
það er allt annað. Annars hef ég
lítinn tíma til að vera að hlusta
á svona nokkuð, ég vinn hér frá
9 á morgnana til klukkan 7 á
kvöldin, og þess á milli geri ég
helzt ekki neitt. Það var öðru-
vísi þegar maður var yngri, á
sjónum, þá hafði maður meiri
frítíma- Já, ég var á sjó lengi
vel, en hætti svo, og fór að reka
nýlendu- og kjötvöruverzlun hér
í bænum. Það var löngu eftir að
ég kom hingað, að ég fór að fást
við verzlun, en ég var 9 ára þeg-
ar ég fór frá Steinhólum til Bol-
ungarvíkur, og svo fór ég til
ísafjarðar 1921.“
Ég vildi fá að taka mynd af'
honum, en það kom alls ekki til
greina. En hins vegar sýndi hann
mér mynd af sér, sennilega tek-
in um svipað leyti og hann var
á ísafirði, og var hann þá búinn
að krækja annarri löppinni aftur
fyrir hnakka. „Jæja,“ sagði hann
svo, „ég má ekkert vera að þessu
þvaðri, ég get ekki einu sinni
fvi gzt með bílunum sem koma
hér inn fyrir forvitninni i þér.“
Og ég varð að fara, án þess að
fá mynd af Jasoni Sigurðarsyni,
— Ég verð víst að hætta, það er einhver maður úti, sem vill komast
í síma!
Í34 VIKAN 31-tM-