Vikan - 31.07.1969, Blaðsíða 46
Handavinna hcímilanna
Ullarverksmiðjan Gefjun efnir til hugmyndasamkeppni í samráði við verzl.
íslenzkur heimilisiðnaður, um beztu tillögur að ýmsum handunnum vörum úr:
islenzkri ull í sauðalitum og öðrum litum í loðbandi, kambgarni, lopa og
Grettisgarni frá Gefjun.
Keppnin er í fjórum greinum:
1. Prjónles og hekl.
2. Röggvahnýting og vefnaður.
3. Otsaumur.
4. Mynstur í ofannefndum greinum.
1. verðlaun í hverri grein eru kr. 10.000.—, en síðan skiptast fjögur
þrjúþúsund króna verðlaun og átta eittþúsund króna verðlaun á greinarnar
eftir mati dómnefndar. Sömuieiðis verður efni og vinna í verðlaunamunum
greitt aukalega eftir mati dómnefndar. Verðlaunamunir verða eign Gefjunar.
Skilafrestur er til 31. ágúst n. k. Keppnismuni með vinnuiýsingu skal senda
merkta númeri til Iðnaðardeildar SÍS, Sambandshúsinu, Reykjavík, en
nafn þátttakanda með sama númeri skal fylgja í lokuðu umslagi.
Allt efni fæst í Gefjun, Austurstræti og verzlunum íslenzks heimilisiðnaðar
í Hafnarstræti 3 og á Laufásvegi 2 í Reykjavík, og ennfremur liggja frammi
á sömu stöðum fjölritaðar upplýsingar um keppnina, sem eru öllum
frjálsar og verða fúslega póstlagðar frítt eftir beiðni.
Dómnefnd skipa fulltrúar frá Heimilisiðnaðarfélagi íslands, Handavinnu-
kennarafélagi íslands, Myndlistar og handíðaskóla íslands, Félagi íslenzkra
teiknara og Gefjun, Akureyri.
Gerist hluthafar í:
HUGMYNDABANKA ÍSLENZKRA HANNYRÐA.
Gefjun
hygðust koma fram á hljómleikum
á nýjan leik. Rollingarnir eru aftur
vaknaðir til lífsins hvað þetta snert-
ir sem kunnugt er, og því leikur
mörgum hugur á að vita, hvort
Bítlarnir hafi í hyggju að gera slíkt
hið sama. Þegar John dvaldi í Am-
sterdam ásamt konu sinni sagði
hann fréttamönnum m. a., að ekki
væri loku fyrir það skotið, að Bítl-
arnir færu aftur á kreik og héldu
hljómleika víðs vegar um Bretland.
Ekki leið þó á löngu, þar til hann
varð að éta þessi ummæli ofan í
sig aftur. Astæðan var einfaldlega
sú, að Ringó var ekki nógu hress
yfir slíku tiltæki. Sagði Ringó, þeg-
ar hann var inntur nánar eftir af-
stöðu sinni til þessa, að sér kæmi
á óvart að heyra þetta haft eftir
John, þar sem þeir Bítlar hefðu
ekkert rætt um þetta sín í millum.
— Það krunkar hver í sínu horni,
sagði aumingja Ringó. — Við kom-
um sjaldan eða aldrei allir saman
nema þegar um plötuupptökur er
að ræða. Ég hef engan áhuga á
hljómleikastandi.
Um þessi ummæli Ringós sagði
John nokkru síðar:
— Hann hefur rétt fyrir sér. Það
væri óráðlegt af okkur að halda
hljómleika núna. Þegar á allt er lit-
ið eru Bítlarnir ekki annað en mið-
aldra táningar. Ég hef að vísu haft
áhuga á þessu hingað til — en ekki
lengur.
etta er ekki í fyrsta sinn, að
John hefur verið á öndverð-
um meiði við hina Bítlana. Umslag-
ið utan um plötuna „Tvær jómfrúr"
olli líka uppistandi innan hljóm-
sveitarinnar.
— Ég bjóst alltaf við einhverju
fjaðrafoki en aldrei þessum ósköp-
um, segir John. — Ég hafði lengi
ráðgert að gera hljómplötu með
Yoko. Það var áður en við byrjuð-
um að lifa saman, að slíkt flökraði
fyrst að mér. Paul hafði stjórnað
plötuupptökum Mary Hopkin, Ge-
orge sömuleiðis með Jackie Lomax,
og þess vegna langaði mig til að
gera eitthvað með Yoko.
— Ég var í Indlandi við hug-
leiðslu og hugsaði stíft um plötuna,
þegar ég fékk hugmyndina um
plötuumslagið. Ég sendi Yoko bréf
og sagði henni, að ég hefði í
)
hyggju að hafa mynd af henni nak-
inni á umslaginu. Hún varð mjög
undrandi en þó ekki jafn hlessa og
George og Paul.
— Paul hélt langar prédikanir yf-
ir mér vegna þessa og spurði, hvort
þetta væri nú nauðsynlegt. Það
tók mig fimm mánuði að sannfæra
hann um, að svo væri.
— Eins og málin æxluðust var
ekki nema eðlilegt að ég yrði með
Yoko á myndinni. Ég játa það, að
mér brá töluvert, þegar ég sá mynd-
irnar í fyrsta skipti. Ég hugsaði sem
svo: Ur því að mér bregður í brún,
hvað segja þá aðrir?
Myndirnar komu sannarlega róti
á hugi manna. John var hinn bratt-
asti samt sem áður og komst svo að
46 VIKAN 31-tbl-